Morgunblaðið - 14.12.2005, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
MÚRVERK
SÍMI 698 0111
HÆKKANIR á fasteignaverði hér á landi á
undanförnum misserum virðast fremur vera
leiðréttingar á verði í átt til eðlilegra verðlags
á markaðnum, en að um of hátt verðlag sé að
ræða. Sveiflur á verði fasteigna hér eru hins
vegar með því mesta sem þekkist meðal þjóða
sem eru innan Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar, OECD, og því er áhætta samfara
fasteignaviðskiptum meiri hér á landi en víð-
ast annars staðar.
Mest hækkun á Vesturlandi
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri
skýrslu viðskiptaráðuneytisins um mismun-
andi þróun fasteignaverðs eftir kjördæmum.
Árleg raunhækkun íbúðaverðs hér á landi
hefur verið 1,1% frá árinu 1960, en hækkunin
er mjög mismunandi frá einu landsvæði til
annars og á Vestfjörðum er um að ræða veru-
lega lækkun raunverðs á undanförnum fimm-
tán árum. Frá 1990 til 2004 hefur raunhækk-
un íbúðarhúnæðis þannig verið mest á
Vesturlandi um 63%, því næst á höfuðborg-
arsvæðinu 52%, Suðurnesjum 47%, á Suður-
landi 44%, Norð-Austurlandi 30%, á Austur-
landi 24% og Norð-Vesturlandi 1%. Á
Vestfjörðum hefur hins vegar húsnæðisverð
lækkað um 28% að raungildi á tímabilinu.
Skýrsluhöfundar segja einnig að lykilþætt-
ir í þróun íbúðaverðs séu hagvöxtur, tekjur og
mannfjöldaþróun. Þá virðist fjarlægð frá
þéttbýli einnig skipta miklu máli. Góðar sam-
göngur séu einnig mikilvægar, sem sjá megi
til dæmis á Vesturlandi, þar sem tilkoma
Hvalfjarðarganga sé ein ástæða verðhækk-
unar þar. Sömu áhrif megi greina frá stór-
verkefnum svo sem af uppbyggingu orku-
frekrar stóriðju.
Meðal tillagna nefndarinnar, sem stuðla
eiga að auknum hagvexti og treysta þannig
forsendur fyrir hækkun húsnæðisverðs á ein-
staka landsvæðum, er meðal annars að stuðla
að byggðakjörnum á landsbyggðinni og að
efla innri gerð samfélagsins, til dæmis með
bættum samgöngum. Starfsemi framhalds-
skóla og háskóla verði efld á einstaka svæðum
og stuðlað að frekari atvinnuuppbyggingu á
landsbyggðinni, þ. á m. stóriðju. Þá er lagt til
að reynt verði að draga úr gengissveiflum
eins og kostur er þrátt fyrir annmarka smæð-
ar gjaldeyriskerfisins og að aukið verði við
umsvif hins opinbera á landsbyggðinni.
Verulegar verðhækkanir á fasteignum í flestum landshlutum frá 1990
Verð á fasteignum
ekki óeðlilega hátt
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Verðleiðrétting | 10
KOSNINGU um kjarasamning Eflingar við
Reykjavíkurborg lauk í gær og samþykktu 95%
þeirra sem þátt tóku í atkvæðagreiðslunni samn-
inginn. Alls voru 1.922 félagsmenn á kjörskrá og
tóku 694, eða rúm 36%, þátt í kosningunni. 659
þeirra sem þátt tóku, eða 95%, sögðu já en 35
manns, eða 5%, sögðu nei við samningnum.
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, kveðst
ánægður með útkomuna. „Ég held að það sé al-
menn ánægja ríkjandi með samninginn og að hún
speglist að einhverju leyti í þátttökunni. Það vill
gjarnan vera þannig að þegar mikil ánægja er
með samning skilar fólk sér síður inn því það telur
tryggt að hann verði samþykktur,“ segir Sig-
urður. Hann segist bærilega sáttur við þátttökuna
í atkvæðagreiðslunni, en hún sé svipuð og í síðustu
atkvæðagreiðslu félagsins um kjarasamninga.
„Við höfum farið víða þessa dagana og kynnt
samninginn og það hefur almennt verið mikil
ánægja með hann,“ bætir hann við.
Samningur Eflingar
samþykktur með
95% atkvæða
MAÐUR sem reyndi að smygla þremur kílóum af
hassi til landsins hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Tollverðir á
Keflavíkurflugvelli fundu hassið í ferðatösku
mannsins þegar hann kom til landsins á föstudag.
Þetta er mesta magn af hassi sem tekið hefur
verið á Keflavíkurflugvelli í einu lagi á þessu ári.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er mað-
urinn þýskur og hefur ekki verið búsettur hér á
landi.
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, segir að málið sé í rannsókn.
Fleiri hafi ekki verið handteknir vegna málsins
en hann verst frekari fregna af rannsókninni.
Tekinn með þrjú kíló af
hassi í ferðatösku
EKKI hefur verið lokið við frágang stíga eða uppsetningu lýsingar
við göngu- og hjólreiðaleiðir vegna færslu Hringbrautar og er frá-
gangi ábótavant á mörgum stöðum, m.a. við gatnamót Hring-
brautar og Njarðargötu eins og sést á þessari mynd. Þar eru
gönguleiðir margar enn ófrágengnar og illfærar. Þá er erfitt að
komast leiðar sinnar inn eftir Miklatúni og inn í Hlíðahverfið
vegna þess að verið er að breyta gatnamótum við Rauðarárstíg.
Hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar fengust þær upplýs-
ingar að framkvæmdir við Rauðarárstíg tengdust ekki færslu
Hringbrautar og áætlað væri að þeim lyki fyrir áramót. Þá væri
vinna vegna færslu Hringbrautar á lokastigi en tafir hefðu orðið á
vinnu af ýmsum ástæðum. | 23
Morgunblaðið/Ómar
Vinnu við frágang ekki enn lokið
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
fengið það staðfest að eigandi
skemmtibátsins Hörpu sem fórst á
Viðeyjarsundi 9. september var
sjálfur við stýrið þegar báturinn
steytti á Skarfaskeri og sökk. Lög-
reglurannsókn á slysinu er lokið og
hefur hún leitt í ljós að stjórnandi
bátsins var undir áhrifum áfengis
þegar slysið varð. Tveir létust í slys-
inu, en stjórnandi bátsins bjargaðist
ásamt konu sinni og syni.
Í tilkynningu frá lögreglunni í gær
kemur fram að rannsókn hafi leitt í
ljós að í bátnum var GPS-staðsetn-
ingarbúnaður sem skráði staðsetn-
ingu, tíma, stefnu og hraða bátsins.
Ferð bátsins hófst nokkru eftir kl. 19
að kvöldi föstudagsins 9. september,
þegar siglt var frá Snarfarahöfn, um
ytri höfnina og inn á Reykjavíkur-
höfn, Gömlu höfnina. Þaðan var siglt
út á Sundin, m.a. með viðkomu í
Þerney. Síðar lá leiðin inn Elliðavog
þar sem m.a. var lagst að bryggju í
Bryggjuhverfinu. Þaðan var siglt af
stað aftur út sundið.
Sigldi síðast um Viðeyjarsund
Síðasti hluti siglingarinnar var um
Viðeyjarsund til vesturs. Út af Laug-
arnesi var stefnunni breytt, snúið við
og siglt til baka. Þá var klukkan orð-
in rúmlega hálftvö um nóttina, rign-
ing og myrkur. Eftir að bátnum var
snúið við var honum siglt á auknum
hraða og skv. GPS-tækinu var bát-
urinn á 17 hnúta hraða þegar hann
lenti á Skarfaskeri um kl. 01.38.
Nokkru síðar, eftir að hafa verið
kyrr við eða á skerinu í 20 mínútur,
var bátnum siglt frá skerinu og
áfram áleiðis austur Viðeyjarsund.
Vegna skemmda sem hlutust af
ásiglingunni var kominn leki að bátn-
um, honum hvolfdi og hann sökk, eft-
ir að hafa verið siglt nokkur hundruð
metra í austur frá Skarfaskeri. GPS-
tækið hætti að skrá kl. 02.06. Síma-
samband var við bátinn um GSM-
síma í tæpa hálfa klukkustund, eða
frá kl. 01.49;45 til kl. 02.27;42.
Eigandi bátsins einn við stjórn-
völinn og undir áhrifum áfengis
Morgunblaðið/Júlíus
Skemmtibáturinn Harpa fórst á Viðeyjarsundi 9. september sl. eftir að
hann strandaði við Skarfasker. Mikill leki kom að bátnum við óhappið.
Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á slysinu á Viðeyjarsundi
TUTTUGU OG FJÖGUR lög
hafa verið valin til þátttöku í for-
keppni Sjónvarpsins fyrir
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva sem fram fer í
Aþenu á næsta ári. Þá verða
jafnframt liðin 20 ár frá því að
Sjónvarpið tók fyrst þátt í
keppninni með laginu „Gleði-
bankinn“. Meðal lagahöfund-
anna í ár eru bæði þekktir og
óþekktir höfundar. Fram-
leiðslufyrirtækið BaseCamp sér
um alla framkvæmd keppninnar
fyrir hönd Sjónvarpsins en lögin
verða frumflutt í beinni útsend-
ingu laugardagskvöldin 21. jan-
úar, 28. janúar og 4. febrúar.
Hvert kvöld keppa átta lög og
komast fjögur þeirra áfram í úr-
slitakeppnina sem fer fram 18.
febrúar. Lögin sem komast
áfram verða valin í símakosn-
ingu og dómnefnd verður ein-
göngu til vara. Alls voru 226 lög
send inn í keppnina. | 58
Forkeppni
Evróvisjón
ÍSLAND á að afnema öll höft í landbúnaði og yf-
irgefa G10-hópinn svonefnda fyrir samningalot-
una sem hefst í dag og stuðla þannig að auknum
viðskiptum með landbúnaðarvörur, segja þeir
Halldór Benjamín Þorbergsson og Tryggvi Þór
Herbertsson hagfræðingar í grein blaðinu í dag.
„Ekki eingöngu myndi velferð á Íslandi aukast
við það að höftin yrðu rofin heldur myndum við
leggja lið baráttu fyrir því að þróunarlöndin hæfu
raunhæfa sjálfbæra sjálfshjálp,“ skrifa þeir. Þeir
segja að á Íslandi ríki afturhald þegar komi að frí-
verslun með landbúnaðarvörur. Til marks um það
sé sú staðreynd að Ísland sé í hópi hinna svoköll-
uðu G10-landa. Í þeim hópi eru, auk Íslands, Búlg-
aría, Ísrael, Japan, Kórea, Liechtenstein, Máritíus,
Noregur, Sviss og Taívan. | 18 og 32
Vilja að Íslendingar
yfirgefi G10-hópinn