Morgunblaðið - 19.12.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 19.12.2005, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR F í t o n / S Í A F I 0 1 4 9 1 5 SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN EFTIR JÓN KALMAN STEFÁNSSON 5-STJÖRNUBÓK „... HRÍFANDI FYNDIN ... SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN ER FRÁBÆRLEGA VEL STÍLUÐ BÓK. ... ÞVÍ SKÁLD ER JÓN KALMAN, GLIMRANDI SKÁLD.“ - Páll Baldvin Baldvinsson, DV MÁLAMIÐLUN HJÁ WTO Aðildarríki Heimsviðskiptastofn- unarinnar (WTO) náðu í gær sam- komulagi um málamiðlun sem greið- ir fyrir frekari samningaviðræðum um aukið frelsi í heimsviðskiptum fyrir lok næsta árs. Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að komið hafi verið til móts við fátækari aðild- arríkin, en samkomulagið hafi ekki mikil áhrif hér á landi. 21% fleiri ti l sérfræðinga Heimsóknir til sérfræðilækna voru samtals 481 þúsund á síðasta ári. Hafði þeim þá fjölgað um 84 þúsund, eða 21% frá árinu 1994. Út- gjöld Tryggingastofnunar vegna kaupa þjónustu klínískra sér- fræðilækna var rúmlega 1,7 millj- arðar á síðasta ári og áætluð útgjöld sjúklinga voru 1.133 milljónir króna. Bergrán samþykkt Mannanafnanefnd samþykkti ný- verið að nöfnin Bergrán, Nicolas og Aðaldís skyldu færð í manna- nafnaskrá, en hafnaði nöfnunum Apríl, Engifer og Liam. Yfir 100 beiðnir hafa borist til nefndarinnar á árinu 2005. Sharon á sjúkrahús Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur með hraði á sjúkrahús í Jerúsalem í gær eftir að hafa fengið vægt heilablóðfall og misst meðvitund. Læknar sögðu í gærkvöldi að forsætisráðherrann hefði komist aftur til meðvitundar og væri á batavegi. Bush ver njósnir innanlands George W. Bush Bandaríkja- forseti staðfesti um helgina að hann hefði heimilað símahleranir og aðrar njósnir innanlands og sagði þær nauðsynlegar til að afstýra frekari hryðjuverkum í landinu. Bush fór hörðum orðum um þá, sem láku upplýsingum í fjölmiðla um njósnir innanlands, og sakaði þá um að hafa stefnt öryggi þjóðarinnar í hættu. Mannskæður troðningur Að minnsta kosti 42 manns létu lífið í troðningi í skóla í borginni Madras á Suður-Indlandi í gær. Flestir þeirra sem fórust voru kon- ur er voru að sækja matarmiða fyrir fólk sem varð heimilislaust í flóðum í október. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 30/35 Vesturland 14 Dagbók 38/40 Viðskipti 15 Myndasögur 38 Erlent 16/17 Víkverji 38 Menning 22 Staður og stund 39 Daglegt líf 18/21 Leikhús, bíó 41/45 Umræðan 26/28 Ljósvakar 46 Bréf 28 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is TÍÐNI snjóflóða og grjóthruns í vegahlíðum frá Bolungarvík til Súðavíkur, eru meðal upplýsinga sem notaðar eru til að meta áhættu vegfarenda á þessum slóðum í skýrslu sem Harpa Grímsdóttir, landfræðingur hjá Snjóflóðasetri Veðurstofu Ís- lands á Ísafirði, vinnur nú að. Drög að skýrslunni verða send Vegagerðinni og öðrum aðilum sem málið snertir til umsagnar og þeim gefinn kostur á að gera athugasemdir á næstu þremur vikum. Skýrslan er unnin í samvinnu við Leið ehf. Harpa hefur undanfarið safnað saman gögnum sem til eru um snjóflóð og grjóthrun hjá Veð- urstofunni, Vegagerðinni, lögreglunni, Náttúru- fræðistofnun Íslands og fleiri aðilum. Um er að ræða flóð og hrun sem orðið hafa í Súðavíkurhlíð, Kirkjubólshlíð, Seljalandshlíð, Eyrarhlíð og Ós- hlíð. Einnig eru teknar saman upplýsingar um slys og óhöpp af völdum snjóflóða og grjóthruns á vegunum. Þær heimildir sem Harpa skoðar ná misjafnlega langt aftur. Gögn Veðurstofunnar ná t.d. um tvo áratugi aftur í tímann en gögn lögreglunnar, sem bókað hefur töluverðan fjölda grjóthrunsatvika, eru frá árinu 1998. Heimildir Hörpu varðandi slys sem orðið hafa á vegunum vegna snjóflóða og grjóthruns ná þó enn lengra aftur. Sex látist í ofanflóðum í Óshlíð frá 1950 „Það hafa til dæmis orðið mjög mörg slys í Ós- hlíðinni en þau hafa ekki verið mörg í Súðavík- urhlíðinni miðað við hvað snjóflóð eru tíð þar,“ segir Harpa en samkvæmt heimildum hennar hafa þrettán manns farist í grjóthruni eða snjóflóðum í Óshlíð í gegnum tíðina. Mörg slysanna urðu áður en vegur var þar lagður árið 1950, en eftir að ak- vegur var lagður um Óshlíð árið 1950 hafa sex manns farist þar í slysum tengdum snjóflóðum og grjóthruni. Út frá tíðni ofanflóðanna gerir Harpa tilraun til að meta áhættu vegfarenda um þessa vegarkafla. „Ég er að reyna að meta hversu miklu hætta af völdum snjóflóða og grjóthruns bætir við dánar- líkur í umferðinni,“ segir Harpa. Hún segir hugmyndina að skýrslunni hafa fæðst í vor, þegar aðilar frá Verkfræðistofunni Línu- hönnun, Leið ehf. og Snjóflóðasetrinu ræddu sam- an. „Þegar við hjá Veðurstofunni höfum verið að kynna snjóflóðahættumat í bæjarfélögum á Vest- fjörðum, þá fáum við alltaf þá spurningu hver áhættan sé á vegum á milli bæjarfélaga en ekki að- eins innan þeirra,“ segir Harpa m.a. um aðdrag- anda skýrslunnar. En skýrslan ætti líka að verða mikilvægt inn- legg við undirbúning gangagerðarinnar. „Mér finnst eðlilegt að áður en teknar eru ákvarðanir um dýrar og stórar framkvæmdir á borð við gangagerð, séu teknar saman þær upplýsingar sem til eru og reynt að meta hvaða þýðingu göng hafi fyrir vegfarendur og hvar þau eigi að vera,“ segir Harpa. „Því að þessi göng eru fyrst og fremst til að draga úr áhættu, þá væntanlega að- allega af völdum grjóthruns og snjóflóða, þetta styttir engar vegalengdir. Því er sjálfsagt að taka saman gögn sem til eru til að sjá hversu mikið til- vonandi göng koma til með að draga úr áhættunni á Óshlíð.“ Áhætta vegfarenda um veg- kafla á Vestfjörðum metin Þrettán hafa látist af völdum ofanflóða í Óshlíð í gegnum tíðina Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is FÁTT er skemmtilegra en að velja jólagjafir handa ættingjum og vinum en það vita þeir sem reynt hafa að langar verslunarferðir eiga til að draga úr manni alla orku. Því getur verið ágætt að tylla sér niður á milli þess sem arkað er í hverja verslunina á fætur annarri. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka versl- unar og þjónustu, segist aðeins hafa heyrt bjartsýnisraddir frá kaup- mönnum, hvort sem er á Laugaveg- inum eða í verslunarkjörnum, og allt eins megi búast við að jólaverslun verði ívið meiri í ár en í fyrra. Morgunblaðið/Golli Kærkomin hvíld í jólaösinni DAGSBRÚN, hlutdeildarfélag Baugs Group og móðurfélag 365- miðla og Og Vodafone, kannar kaup á Orkla Media, sem gefur út fjölda tímarita og dagblaða á Norð- urlöndum, m.a. Berlingske Tidende. Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Dagsbrúnar, sagði við Morgunblaðið í gær að þetta mál væri ekki eins langt komið og frétt Sjónvarpsins um helgina hefði gefið í skyn. Væntanlega myndi það skýrast fyrir áramót hvort af kaupunum yrði. „Þetta er einn þeirra kosta sem við höfum verið að skoða á erlendum fjölmiðlamarkaði,“ sagði Eiríkur. Skoðar kaup á norrænum miðlum REYKINGAR hafa aukist lítillega meðal kvenna undanfarið ár, en dregist nokkuð saman hjá körlum. Í dag segjast 19,2% fólks á aldrinum 15–89 ára reykja daglega, sem er lít- ils háttar lækkun frá því árið 2004. Þetta kemur fram í samantekt þriggja kannana sem unnin var af Gallup fyrir Lýðheilsustöð. Þegar munur á kynjunum er skoð- aður má sjá að 19,2% kvenna segjast reykja daglega, en hlutfallið var 18,6% árið 2004. Því er um litla upp- sveiflu að ræða á annars stöðugum samdrætti í reykingum hjá konum frá árinu 2000, þegar 22% kvenna reyktu. Alls sögðust 19,3% karla reykja daglega og hefur hlutfallið lækkað úr 21,1% á síðasta ári, og 22,8% árið 2000. Dregið hefur úr reykingum á landsbyggðinni og er hlutfall reyk- ingafólks nú svipað á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, um 19%, en árið 2004 sögðust tæp 22% að- spurðra á landsbyggðinni reykja, samanborið við tæp 19% á höfuð- borgarsvæðinu. Háskólafólk reykir síður Eins og áður er mikill munur á hlutfalli reykingafólks eftir mennt- un. Um 9,5% þeirra sem sögðust vera með háskólapróf reykja dag- lega, samanborið við 22,5% þeirra sem eru minna menntaðir. Reyk- ingamönnum hefur fækkað meira í hópi háskólamenntaðra ef þróunin er skoðuð, tíðni reykinga hjá þeim fór úr 16,9% árið 1989 í 9,5% nú, sem er 43,8% minnkun. Hjá þeim sem minna eru menntaðir fór hlutfall reykingamanna úr 33,1% árið 1989 í 22,5% nú, sem er um 32% minnkun. Konur auka reyking- ar en karlar draga úr  Meira á mbl.is/ítarefni MAÐUR um tvítugt var í vikunni úr- skurðaður í gæsluvarðhald eftir að fjórar ungar stúlkur kærðu manninn fyrir kynferðisbrot. Dómari við Hér- aðsdóm Reykjavíkur úrskurðaði manninn í varðhald til 23. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir að maðurinn hafi verið yfirheyrður eft- ir að tvær stúlkur undir 18 ára aldri kærðu manninn vegna kynferð- isbrota. Hann hafi verið handtekinn aftur í kjölfar nýrra kæra. Grunur um ítrekuð kynferðisbrot

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.