Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 29

Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 29 UMRÆÐAN Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Treystið aldrei alfarið á kertaslökkvara Kringlunni, sími 553 2888 Gabor stígvél í L vídd og XL vídd - Stærð 36-41 - Litur svart Verð frá kr. 24.950 Póstsendum BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÞEGAR ákveðið var að koma fyrir mjög stórri olíu- og bensínbirgðastöð allra olíufélaganna í Örfirisey, hafa stjórnvöld sýnt af sér mikla léttúð. Mjög mikil al- mannahætta staf- ar af stöðinni fyrir alla Reykvíkinga. Ef eitthvað alvar- legt gerist og ör- yggismál bregð- ast, gæti komið upp þvílíkt eldhaf sem óþyrmilega gæti minnt á brunann mikla í Hertfordskíri við Lundúnir nú á dögunum. Hvað með hugsanleg skemmdarverk? Senni- lega vilja yfirvöld Lundúna síst af öllu tengja þennan stórbruna við skemmdarverk. Með því væri kynt undir eldum af öðru tagi sem torvelt kann að vera að slökkva. Hvað með íslenskar aðstæður? Við gætum ímyndað okkur að ein- hver hópur sem af einhverjum ókunnum ástæðum vill láta eitthvað virkilega illt af sér leiða á Íslandi, kæmi saman í skugga nætur og und- irbyggi skemmdarverk í íslensku samfélagi. Við þekkjum úr okkar eig- in sögu skemmdarverk sem unnin voru á eigum Hvals hf sem rak um áratuga skeið hvalveiðiskip og hval- stöð í Hvalfirði. Nú gætum við hugs- að okkur aðra atburðarás sem gæti átt sér stað á eftirfarandi hátt. Við lesum aukaútgáfu Morgunblaðsins: „Þegar klukkan var 20 mínútur gengin í fimm í nótt var gerð árás á stóra flutningabifreið á móts við Kringluna. Bifreiðin flutti þotuelds- neyti frá Örfirisey á leið til Keflavík- urflugvallar, með fullfermi, 35 tonn. Allt tiltækt slökkvilið, lögregla og hjálparlið var kallað út. Eldurinn læsti sig í nokkrar aðliggjandi bygg- ingar. Enginn átti sér nokkurs ills von í annars friðsamri nóttinni. Hálf- tíma síðar barst önnur tilkynning, að gerð hafði verið árás frá sjó á olíu- birgðastöðina í Örfirisey, sennilega með sprengjuvörpum. Töluverður vindur var af norðri og breiddist eld- urinn fljótlega í alla eldsneytisgeym- ana. Brennandi olían rann í sjóinn og náðu logarnir alla leið inn í gömlu höfnina í Reykjavík og kveiktu í nokkrum húsum. Allur norðanverður Vesturbærinn, Miðbærinn allur og Skólavörðuholtið var þegar rýmt. Allmargir eru stórslasaðir, loga eldar víða og hafa valdið gríðarlegu tjóni. Hefur slökkviliðið í Reykjavík fengið aðstoð allra slökkviliða um allt Suð- vesturland, þ. á m. alla slökkvibíla frá Keflavíkurflugvelli. Hefur af þeim ástæðum öllu flugi á Íslandi verið af- lýst.“ Við skulum vona, að svona lagað gerist aldrei. En Íslendingar hafa verið þekktir fyrir að gera lítið úr hættu. Fyrir tæpum áratug var ákveðið að endurbyggja Reykjavík- urflugvöll án þess að huga almenni- lega að öryggismálum. Sjálfsagt hef- ur þótt að flugvélar í aðflugi svífi yfir olíubirgðastöðina í Örfirirsey, áfram yfir Miðbæinn og meira að segja yfir Alþingishúsið. Eins gott fyrir okkur að hermdarverkamenninrnir sem gerðu árásina miklu á Bandaríkin 11. sept. 2001, höfðu ekki fengið þá hug- mynd að framkvæma skuggaleg áform sín hér á landi. Góðan rithöfund á borð við Einar Kárason ætti ekki að skorta góðar hugmyndir að nýjum verkefnum þessi misserin. Hann sló virkilega í gegn með bók sinni: „Þetta eru asn- ar, Guðjón“ og nokkrum árum síðar bókunum um Djöflaeyjuna. Olíustöðin í Örfirisey er mikil tíma- skekkja. Því fyrr sem hún verður lögð niður, því betra. Þotueldsneyti á hvergi betur heima en í Helguvík norðan Keflavíkur þar sem öryggis- mál eru í mjög góðu lagi. Best af öllu væri að draga sem mest úr þörfinni til að flytja inn eldsneyti. Við getum t.d. notað strætisvagna miklu betur, gengið meira og jafnvel hjólað. Við verðum að vera sem mest óháð þess- ari hættulegu vöru sem bensín og olía er. GUÐJÓN JENSSON, Arnartanga 43, Mosfellsbæ. Olíustöðin í Örfirisey víki! Frá Guðjóni Jenssyni: Guðjón Jensson AÐ UNDANFÖRNU hafa fjöl- miðlar fjallað um mannlega eymd í ríkari mæli en einatt áður. Máski það stafi af því, að jólin eru í nánd. Ekki er nema gott eitt um þetta að segja, nema hvað vert er að hafa í huga að mannleg eymd er staðreynd sem við varir allt árið, ekki aðeins á aðventunni. Því mið- ur. Og eymdin. Kannski búum við öll við einhverskonar eymd, en finnum aðeins misjafnlega fyrir henni, því slíkt er einstaklings- bundið. Innri fátækt er oft var- anleg í ríkra manna ranni, en innri auður í drjúgum mæli meðal þeirra sem lítið hafa handa á milli. Þegar um er að ræða að gera eitthvað í málum þeirra sem bein- línis eru á götunni er því oft borið við, að erfitt sé að afla fjár til að greiða úr málum bágstaddra. Sjálfsagt er það rétt. En margt er hægt að gera án mikils tilkostn- aðar, og ýmsir vilja og geta lagt lið, án þess að reiða fram fé, oft fátækir sjálfir. Um nokkurt skeið hefur verið rekin virðingarverð starfsemi í svonefndu Konukoti. En fjármuni skortir til, svo að starfið þar geti verið tryggt fram í tímann. Er ekki hægt að brýna örláta björg- ólfa til að sýna rausn? Margt gamalt fólk býr við ágæta heilsu, en veit varla hvað það á við tímann að gera og reynir að drepa hann með því að spila á spil. Sumt af þessu fólki myndi óefað fagna því að geta á einhvern hátt lagt sitt lið, án þess að ætlast til borgunar af opinberu fé. Þetta þarf að athuga. Og hvað með skáta? Eru þeir ekki viðbúnir að veita hjálp, þótt ekki væri nema stutta stund? En svo að vikið sé aftur að Konukoti: Þar er veitt húsaskjól um nætur, en að morgni er gisti- vinum vísað út, og við blasir gat- an. Hér þarf úr að bæta og án þess að bíða eftir peningum. Fólk- ið þarf að eiga vísa staði sem það getur horfið til og unað þar við eitthvað sem það kýs. Koma þarf upp litlum bókasöfnum í ein- hverjum þeim húsakynnum sem borgin á. Sömuleiðis á fólk að geta hlustað á tónlist ef það hefur þörf fyrir hana. Mér koma til hugar kirkjurnar, til dæmis Fríkirkjan, því að hún er miðsvæðis og þar starfar sóknarprestur sem er hug- sjónamaður. Tilgangur minn með birtingu þessara sundurlausu þanka er alls ekki sá einn að benda á það sem miður fer og/eða á vantar. Hann er jöfnum höndum að gleðjast yfir því sem vel er gert. Ég vil sem dæmi nefna það fórnfúsa starf sem Hjálpræðisherinn hefur af höndum leyst í á aðra öld og jafn- vel gárunginn Gröndal skrifaði um með virðingu og af þakklæti. Nú gerir enginn grín að Hernum lengur. Alþjóð metur hann eins og vert er. Á aðventunni verður mér sem oft endranær hugsað um þá há- vaðamengun sem við hér í þéttbýl- inu erum undir lögð árið um kring. Hér á ég ekki aðeins við umferðarysinn, sem líklega er óumflýjanlegur einsog lúsin í barnaskólunum, heldur ekki síður þann ærandi glym sem maður er neyddur til að hafa í eyrunum í verzlunarmiðstöðvum, víða á göt- um úti, í mörgum veitingahúsum og jafnvel í strætisvögnum og á víst að kallast músík. Er þetta lög- um samkvæmt? Flestir matsölu- staðir leggja víst blátt bann við reykingum – en á sumum þeirra er fólk neytt til að hlusta á „tón- listar“-hávaða, svo að vart heyrist mannsins mál. Ég veit ekki hvað er stressandi ef ekki ómenning af þessu tagi. Og hefur uppvaxandi æska eitthvað gott af þessu? Og úr því ég hef orðað hér sitt- hvað um tónlist, þá minnist ég þess sem sá mæti kúltúrmaður Gylfi Þ. Gíslason vék að í tónlist- arþætti sem hann flutti í útvarp fyrir meira en þrjátíu árum. Þá vakti hann máls á því, að slæmur væri sá ósiður íslenzkra kirkju- gesta að rjúka á dyr strax þegar organistinn byði upp á sérlega val- ið tónverk einhvers meistara org- elsins. Ég vil í lokin gera orð hans að mínum. Prestarnir geta vakið at- hygli safnaðarins á þessu, án þess að gera það í skipunartón. Þeir geta bent á það, hversu hollt það er að hlýða á göfuga tónlist áður en haldið er heim og farið að hest- húsa jólarjúpuna. ELÍAS MAR, rithöfundur. Aðventuþankar Frá Elíasi Mar: Föt fyrir allar konur á öllum aldri Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.