Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 41

Morgunblaðið - 19.12.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 41 Stóra svið SALKA VALKA Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 WOYZECK Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 21 KALLI Á ÞAKINU Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Nýja svið/Litla svið ÞRJÁR SYSTUR e. TSJEKHOV Nemendaleikhúsið, aðeins í desember Þr 27/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 MANNTAFL Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 Síðustu sýningar ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 29/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING BELGÍSKA KONGÓ SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í JANÚAR Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 MIÐAV. 2.500- GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15 Viktor Arnar Ingólfsson Afturelding Blóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu Á MORGUN Stefán Máni Túristi MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL FIM. 29. DES kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS FÖS.20. JAN kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAU.21. JAN kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS Gleðileg jól Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup Mið. 28.des. kl. 20 UPPSELT Fim. 29.des. kl. 20 UPPSELT Fös. 30.des. kl. 20 Örfá sæti Lau. 7.jan. kl. 19 AUKASÝN. - Í sölu núna Fös. 13.jan. kl. 20 AUKASÝNING Lau. 14.jan. kl. 19 AUKASÝNING AUKASÝNINGAR: 20/1, 21/1, 27/1, 28/1 Gjafakort í leikhúsið - góð jólagjöf! Miðasalan opin virka daga frá 13-17 og allan sólarhringinn á netinu. Brúð- kaupið heldur áfram ÁSLAUG Jónsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir myndskreytingar sín- ar, en hún myndskreytti m.a. Bláa hnöttinn á sínum tíma. Í fyrra hlaut hún ásamt meðhöfundum Dimmal- imm-barnabókaverðlaunin fyrir myndskreytingar sínar við bókina Nei! sagði litla skrímslið og þau verðlaun hlaut hún aftur í ár en nú hefur hún bæði skrifað texta og myndskreytt bókina Gott kvöld. Þar segir af litlum dreng sem þarf að vera aleinn heima dálitla stund. Hann passar Bangsa, sem er ótta- lega hræddur við allt mögulegt. Kvöldstundin reynist gestkvæm því allir þeir sem Bangsi óttast koma í heimsókn og í skemmtilegum og einföldum orðaleik myndgerir Ás- laug íslensk orð yfir ýmisleg leið- indi. Hræðslupúkinn mætir auðvitað og Öskurapinn og Ólátabelgurinn. Ekki má gleyma Óþekktarorminum, Leiðindaskjóðunni og Hrekkjasvín- inu og svo má áfram telja. Ekki að undra að drengurinn sé þreyttur þegar foreldrarnir koma heim, því hann hefur haft ráð undir rifi hverju til að eiga við allt þetta ófrýnilega lið. Gott kvöld á Dimmalimm- verðlaunin svo sannarlega skilið. Hér koma margir þættir saman til að skapa frábærlega skemmtilega og hlýja bók. Texti Áslaugar er ein- faldur og markviss. Orðaleikir hennar varpa ljósi á hversu mikið og skemmtilegt líf býr í íslenskri tungu, algerlega án þess að reynt sé að kenna neinum neitt, hér er hrein sköpunargleði á ferð og ríkur húm- or. Myndskreytingar eru listilega unnar og áhrifamiklar og texti og mynd skapa heild á hverri síðu. Uppeldisgildi bókarinnar er tölu- vert bæði fyrir börn og fullorðna. Hvernig á að bregðast við þegar Leiðindaskjóðan og Fýlupúkinn mæta á svæðið? Þá er best að fara í skemmtilegan leik. Letihaugurinn þarf að fá verk að vinna, Vælukjó- ann þarf bara að hressa aðeins við, t.d. með því að syngja með honum. Jákvæð viðbrögð við öllum þessum hversdagspúkum sem herja á allar fjölskyldur eru auðvitað bestu og án efa árangursríkustu viðbrögðin, ekki síst er hér jákvætt hversu vel- komnir allir eru. Hér er ekkert hættu nú, eða nú er komið nóg. Nei, litli drengurinn veit betur og gerir allt að góðum leik. Gott kvöld er frumleg og fyndin bók, myndir og texti vinna frábær- lega saman, pottþétt lestrarstund fyrir svona þriggja ára og upp úr. Áslaug Jónsdóttir er ein okkar bestu myndskreyta og nú slær hún einnig í gegn sem höfundur. Velkominn, Vælukjói! BÆKUR Börn Texti og myndir eftir Áslaugu Jónsdóttur 26 bls. Mál og menning 2005 Gott kvöld Ragna Sigurðardóttir TUTTUGUSTU og sjöundu jóla- tónleikar Kórs Langholtskirkju – með þremur boðuðum endurtekn- ingum næstu daga – runnu upp á föstudag fyrir fullu húsi, þrátt fyrir hálfókristilega tímasetningu laust fyrir miðnætti. Önnur eins upp- söfnuð reynsla hlaut vitanlega að skila sér í formi kænlega sam- ansettrar dagskrár og aðsókn- arvænna einsöngvara, til viðbótar við löngu góðkunna kóra staðarins. Enda var bæði kirkjulegri og verald- legri hlið jólatónbókmenntanna vel sinnt. Hinni síðartöldu eftir hlé, er bauð öllum upp á fríar piparkökur og heitt súkkulaði í safnaðarheim- ilinu. Hvorki fleiri né færri en 27 lög voru á boðstólum og myndi vitanlega æra óstöðugan að reifa þau öll með tölu. En áður en kemur að fyrsta há- punktinum, fjórum frábærum út- setningum Anders Öhrwalls er hóf- ust á Ding dong og enduðu á frægu lagi Grubers „Stille Nacht“, mætti kannski skjóta inn að yfirsópr- anröddin í tveim af fyrstu fjórum lögum kvöldsins var of sterk og truflaði fyrir vikið einsöng Eivarar Pálsdóttur og dúett hennar og Garð- ars Thórs. Það lagaðist þó að mun þegar síðar var til slíks gripið. Hins vegar lýtti svolítið tvö annars fallega sungin einsöngsframlög Garðars í Öhrwall hvað hann átti stundum til að hanga ögn neðan í tóni, og ágerð- ist seinna með Ave Maria Caccinis í útsetningu kórstjórans. Það eina sem út á Jól Jórunnar Viðar mátti setja var hvað angurblítt lagið er farið að heyrast mikið á þessum árstíma. Jafnvel beztu vísur geta stundum verið of oft kveðnar, en sennilega réð hér valinu að um- beiðnu flauturnar tvær voru fyrir í hljóðfæraáhöfn. Þær voru að jafnaði fagurlega blásnar, þó að virtust stemma illa við orgelið þegar það kom fyrst inn. Gradualekórstúlkurnar fóru eftir hlé á fiman sprett í fimm léttdjöss- uðum amerískum jólalögum með undirleik píanós, bassa og tromma Kjartans Valdimarssonar, Jóns Sig- urðssonar og Péturs Grétarssonar; frísklegast í Jólabjöllum hins með ólíkindum slitþolna Leroys And- erson. Berlin-ballaðan Hvít jól var einnig ljúf áheyrnar, þó að ég hafi aldrei alveg getað sætt mig við textafrösun hins ástsæla vísnasmiðs Stefáns Jónssonar á því lagi. Kór Langholtskirkju tók síðan yfir með djasstríóinu í fjórum hægum en auð- teknum vetrarsólstöðudillum, þ.á m. Hin fyrstu jól Ingibjargar Þorbergs (úts. Magnúsar Ingimarssonar), og reis einna hæst í Jólin alls staðar, sí- grænum valsi langhylzka bassistans, ásamt notalegum einsöng Garðars þó að tóntegundin lægi fulllágt. Færeyski lævirkinn Eivør Páls- dóttir hreppti kastljós síðasta hlut- ans svo um munaði með háflúraða Kingosálminum Eitt barn er føtt í Betlehem, er hún söng af sönnu vir- túósu listfengi. Lag hennar Jólanótt var og dásnoturt, en missti marks í lokin sakir óþarfra og því tilgerð- arlegra hátíðniskrautnótna er verk- uðu pínlega klappkreistandi, jafnvel þótt flestir áheyrendur rykju upp úr stólum af hrifningu eins og til var ætlazt. Skrautfiðraðar jóladillur TÓNLIST Langholtskirkja Ýmsir jólasöngvar. Kór Langholtskirkju, Gradualekórinn, Eivør Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir auk átta hljóðfæraleikara. Stjórnandi: Jón Stefánsson. Föstudaginn 16. desem- ber kl. 23. Jólatónleikar Ríkarður Ö. Pálsson GRADUALE Nobili heldur jóla- tónleika við kertaljós í Langholts- kirkju, á morgun, þriðjudags- kvöldið 20. desember kl. 21. Á efnisskránni eru tvö verk fyrir kvennakór og hörpu, hið fyrra, „Dancing Day“ eftir John Rutter (f. 1945) var frumflutt i dómkirkjunni í Coventry 26. jan- úar 1974. Verkið er byggt á sex jólasöngvum við latneska og enska texta, m.a. hið þekkta lag „Coventry Carol“. Það hefst með forleik fyrir hörpuna og eftir þrjú fyrstu lögin kemur millispil. Seinna verkið er „Ceremony of Carols“ eftir Benjamin Britten (1913-1976), en hann samdi þetta undursamlega jólaverk eftir þriggja ára happasæla dvöl í Bandaríkjunum. Hann tók sér far heim um miðjan mars árið 1942 með sænsku flutningaskipi. Ferð- in tók nærri mánuð og lenti hann í allmiklu volki. Í ferðinni hóf hann að semja þetta verk fyrir þríradda kór og hörpu. Það er rammað inní hinn forna greg- orska söng „Hodie Christus natus est“. Britten notar síðan níu ensk miðaldaljóð sem lýsa með ýmsum hætti komu jólanna, fæðingu frelsarans, Maríu sem syngur son sinn í svefn og fleiri atburðum tengdum jólunum. Millispil sem leikið er á hörpu brýtur verkið upp þannig að kaflarnir eru ell- efu. Elísabet Wage leikur á hörpu og sex kórfélagar, Guðríður Þóra Gísladóttir, Lára Bryndís Egg- ertsdóttir, María Vigdís Kjart- ansdóttir, Rannveig Björg Þór- arinsdóttir og Þórunn Vala Valdimarsdóttir syngja einsöng. Stjórnandi Graduale Nobili er Jón Stefánsson. Jólalög í Langholtskirkju Morgunblaðið/Sverrir Graduale Nobili heldur jólatónleika við kertaljós í Langholtskirkju, undir stjórn Jóns Stefánssonar annað kvöld. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.