Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2004, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 21.03.2004, Qupperneq 21
komið til landsins og meðal annars átt fund með forsætisráðherra sagði Sigurður í pósti til Jóns dag- settum 17. október: „Ég hef sagt það við þig Jón oftar en einu sinni og það síðast í gær að endurfjár- mögnun Norðuljósa verður ekki leyst með neinum leik heldur fund- um eigenda og lánardrottna. Það sem Þórarinn Viðar [lögmaður Evans] er að gera fyrir hvern sem það er svo sem og senda á út á mánudag 20. október er leikur sem ég bið að verði stoppaður nú þegar, nema allt eigi til andskotans að fara“. Áhugaleysi hjá stjórnarformanni Tveimur vikum síðar sendi Sigurður út tölvu- póst á alla stjórnarmenn þar sem hann segir. „Við Jón [Ólafsson] ræddum lítillega saman um endurfjármögnun Norð- urljósa í gær fimmtudag, stöðu þess máls í dag og hvert stefni. Ná- lægð við íslensku kröfuhafana ger- ir það að verkum að ég hef nokkuð aðra sýn á endurfjármögnunarmál Norðurljósa en þeir sem fjær standa þar á meðal stjórnar- formaður félagsins“. Í skýrslu Sigurðar er ítrekað vísað til mikilla fjarvista Jóns Ólafssonar frá landinu en það mun hafa valdið stjórnendum félagsins miklum óþægindum hve lítinn áhuga hann sýndi þeim brýnu við- fangsefnum sem félagið glímdi við á síðustu árum. Norðurljós var mjög skuldsett fyrirtæki en félagið hafði staðið í skilum við lánardrottna sína allt fram að áramótum 2002/2003, en fram að því hafði félagið fleytt sér sér áfram á sölu á hlut í fjarskiptafyrirtækinu Tali. Tíminn að renna út Sigurður segir í samtali við Frétta- blaðið að þegar í janúar í fyrra hafi hann viðhaft viðvörunarorð til stjórnarformannsins um að tími til að ganga frá endurfjár- mögnun væri senn á þrotum. Við- brögð við þessu hafi hins vegar verið af skornum skammti. Í stað þess að eiga fundi með lánar- drottnum og hluthöfum hafi Jón haldið spilunum nærri sér og aðrir hvorki haft upplýsingar né umboð til þess að taka frumkvæði í að koma samningaviðræðum í eðlilegan farveg. Sigurður segist ætíð hafa verið andsnúinn þeirri hugmynd að leita einvörðungu út fyrir land- steinana að fjárfestum enda segir hann ekki hafa orðið var við nokkurn raunverulegan áhuga hjá þeim fjárfestum sem Jón hafi haldið fram að hefðu hug á því að taka þátt í rekstri fyrirtækisins. Stjórnin vanmáttug Stjórn Norðurljósa var í raun vanmáttug gagnvart þeim við- fangsefnum sem við henni blasti og í tölvupóstinum til stjórnarinn- ar 31. október 2003 endar Sigurð- ur á því að segja: „Ágætu stjórn- armenn ég vona að þið gerið ykk- ur grein fyrir því að ábyrgð ykkar er mikil í dag eins og fjárhag Norðurljósa er komið. Seta í stjórn þessa félags sem er með fast að þrjú hundruð stöðugildi starfsmanna og veltir nærri sex milljörðum á ári en skuldar lánar- drottnum öðrum en viðskipta- mönnum 6,9 milljarða er ekki eitt- hvað sem afgreitt verður með þögn á stuttum mánaðarlegum stjórnarfundum heldur aktívu starfi“. Endurfjármögnun og sameining Sigurður segir í sýrslu sinni að sú endurfjármögnun hafi tekist með „samstilltu átaki Jóns Ásgeir Jóhannessonar og Pálma Haralds- sonar annars vegar og starfs- manna Landsbankans og Kaup- þings/Búnaðarbanka hins vegar,“ en töluverð vinna hafi verið eftir í árslok 2003 og ársbyrjun 2004 þótt búið væri að ganga frá sölu Jóns Ólafssonar á hlut sínum í fyrirtækinu. Atburðarásinni sem varð til þess að eigendaskipti urðu og end- urfjármögnun tókst lauk ekki fyrr en í ársbyrjun 2004 þegar Norður- ljós urðu að fjölmiðlasamsteyp- unni sem inniheldur Íslenska útvarpsfélagið, Frétt ehf. og Skífunni /BT. Norðurljós sjálf hafa engan rekstur en tekjur þess koma af arði hlutabréfa þess í dótturfélögunum. thkjart@frettabladid.is 21SUNNUDAGUR 21. mars 2004 JÓN ÓLAFSSON Dvaldist mestmegnis erlendis og veitti öðrum hluthöfum og stjórnendum Norðurljósa hvorki umboð né upplýsingar til þess að takast á við vandamál félagsins. JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Hafði lýst áhuga á að kaupa í Norðurljósum í júlí 2003 og lagt fram hugmyndir um endur- fjármögnun í október. Sigurður G. leitaði því til hans eftir að Jón Ólafsson féllst á að selja.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.