Fréttablaðið - 21.03.2004, Blaðsíða 25
staklega í ljósi þess að sjálfstæð-
ismenn eru ósáttir við stólaskipt-
in. „Ég gef honum haustmánuði,“
segir Guðmundur. „Vorið 2005
dregur til tíðinda.“
Vegir Davíðs órannsakanlegir
„Ég vísa á bug hrakspám vinar
míns Guðmundar Árna,“ segir
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins, spurður
um ummæli Guðmundar. „Það rík-
ir mikið traust á milli flokksfor-
mannanna. Og hvaða möguleikar
aðrir voru fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn? Auðvitað hefðu þeir viljað
hafa sinn mann áfram í forsætis-
ráðherrastólnum, en þeir þurfa
líka að hafa annan flokk með sér í
samstarfinu.“
Hjálmar segir hugsanlegt að
það kunni að spila inn í niðurstöð-
una úr könnuninni um áframhald-
andi stjórnarsetu Davíðs að fólk
sé búið að gefa sér að hann ætli að
hætta. „En ég held að staða hans
sé samt sterk,“ segir Hjálmar.
„Hann er áfram formaður flokks-
ins.“
Hjálmar segist ekki hafa hug-
mynd um það sjálfur hvað Davíð
hyggist gera þann 15. september.
„Ég held að enginn viti það nema
hann,“ segir Hjálmar. „Þessir veg-
ir eru órannsakanlegir.“
Foringja- og kóngapólitík
„Þetta segir mér að þjóðin sé
búin að fá nóg af Davíð Odds-
syni,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjálslynda-
flokksins. „Maðurinn er umdeild-
ur og fólk er orðið þreytt á hon-
um. Það er kominn tími til að
hleypa yngri mönnum að. Þetta er
orðið voðalega þreytt og slitið.“
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstri-grænna, tekur undir
með Guðmundi Árna að það sé at-
hyglisvert að fylgi við áframhald-
andi stjórnarsetu Davíðs sé undir
mældu fylgi flokksins. Ögmundur
segir þó erfitt að leggja mat á
þessa niðurstöðu. „Ég held að
menn séu að taka afstöðu á alls
konar forsendum. Jafnvel þeir
sem vilja veg hans mikinn og
hugsa hlýlega til hans kunna að
vilja að hann hverfi úr pólitík. Ég
held að erfitt sé að setja þetta inn
í rammann um vinsældir og óvin-
sældir.“
Að öðru leyti segir Ögmundur
að honum sé nokk sama um hvað
Davíð ákveði að gera „Ég skal játa
að ef ég svara frá innstu hjarta-
rótum, þá finnst mér það ekki
skipta sköpum um framvindu Ís-
landssögunnar hvað Davíð ákveð-
ur að gera. Og ég segi þetta ekki
til þess að gera lítið úr honum sem
einstaklingi.“
Ögmundi finnst of mikið talað
um persónur og persónupólitík,
þó svo einhverjir telji sig hafa hag
af „foringja- og kóngapólitík“.
„Ég held að það sé of mikið tal-
að um persónur og persónupólitík
og ég held að við þurfum að færa
okkur aftur yfir í málefnalegri
umræðu,“ segir Ögmundur.
Komin þreyta í
mannskapinn?
Ólafur Harðarson segir niður-
stöður könnunarinnar óneit-
anlega benda til þess að
staða Davíðs sé
ekki eins sterk og
hún hefur oft
verið. „Það
finnst mér at-
hyglisvert í
þessu,“ segir
hann. Ólafur
segir eina
hugsanlega
skýringu á
v e i k a r i
stöðu vera
þá að Davíð sé búinn að sitja lengi
á stóli forsætisráðherra. „Hann er
náttúrulega búinn að vera forsæt-
isráðherra í 13 ár og það er af-
skaplega algengt með stjórnmála-
menn, og líka mjög öfluga og
mikla stjórnmálamenn, að eftir
langan tíma myndast oft einhvers
konar leiði á þeim,“ segir Ólafur.
„Og það getur gerst með Davíð
eins og aðra leiðtoga, líkt og til
dæmis Margaret Thatcher og
Helmut Kohl.“
Einnig kann það að hafa áhrif að
mati Ólafs að Davíð sé þegar búinn
að lýsa því yfir að hann ætli að
hætta. Slíkt getur leitt til þess að
menn missi áhrif sín. Þó telur Ólaf-
ur að það sé ekki endilega raunin
nú með Davíð. „Hann er áfram
langöflugusti stjórnmálamaðurinn
í landinu og óskoraður formaður
Sjálfstæðisflokksins,“ segir Ólafur.
„Það er engin spurning.“
gs@frettabladid.is
25SUNNUDAGUR 21. mars 2004
DAVÍÐ ODDSSON
„Hann er náttúrulega búinn að vera forsætisráðherra
í 13 ár,“ segir Ólafur Þ. Harðarsson prófessor. „Og
það er afskaplega algengt með stjórnmálamenn og
líka mjög öfluga og mikla stjórnmálamenn, að eftir
langan tíma myndast oft einhvers konar leiði á
þeim,“