Fréttablaðið - 21.03.2004, Side 28
Áhrif eru eins og bankainnistæða.Því minna sem þú notar, því
meira áttu.“ Þetta sagði Andrew
Young, bandarískur prestur, mann-
réttindafrömuður og stjórnmála-
maður, og má segja að hann hafi hitt
hinn óeiginlega nagla á höfuðið.
Áhrifamesta fólkið er nefnilega
gjarnan það sem sjaldnast þarf að
beita sér beint til að fá sitt fram.
Álitsgjafar blaðsins voru beðnir
að nefna fimm til sex áhrifamestu
störf á Íslandi að þeirra mati, óháð
því hver gegnir því þessa stundina.
En einnig voru viðmælendurnir
beðnir um að skoða sérstaklega
hvort eitthvert starf hefði hugsan-
lega þanist út eða dregist saman að
umfangi og áhrifum í höndum
„áhrifafólksins“, allt eftir atorku,
dugnaði og hæfni hvers og eins eða
skorti þar á.
Einn viðmælendanna tók reyndar
fram að ekki væri hægt að tína til
áhrifamikil störf óháð þeim einstak-
lingum er skipa þau. Fallast má á að
einhver starfanna séu mjög samofin
persónu þess sem gegnir þeim,
stundum svo mjög að nánast má
kalla það samsömun.
Ríkjandi Davíð, Halldór í leynum
Varla kemur á óvart að langflest-
ir nefndu embætti forsætisráðherra
og Davíð Oddsson. Davíð er, enn
sem fyrr, umdeildur og dreifast
skoðanir á honum um allt litrófið.
Hann þykir áhrifamesti maður á Ís-
landi, í krafti eigin persónu, víð-
tækra tengsla og embættis síns, að
ógleymdri formannstöðu Sjálfstæð-
isflokksins.
Áhrif Halldórs Ásgrímssonar
þykja þó fara vaxandi í réttu hlut-
falli við komandi stöðuhækkun hans
og bendir það líka til þess að Davíð
eigi forsætisráðherraembættinu að
þakka að minnsta kosti einhvern
hluta af sínum miklu áhrifum. Allir-
vilja-vera-memm staða Framsókn-
arflokksins, það er sú staðreynd og
forsenda stofnunar hans að hann
vinni ýmist til vinstri eða hægri eft-
ir aðstæðum hverju sinni og eigi því
að öðru jöfnu alltaf að vera við völd,
skiptir eflaust ekki síður máli og því
nærtækt að segja að áhrif Halldórs
stafi sömuleiðis frá formannsstöð-
unni sem hann gegnir. Þannig legg-
ist þrennt á eitt við að gera Halldór
að krónprinsi íslenskra áhrifa: for-
mannsstaðan, forsætisráðherraemb-
ættið í vændum og, síðast en ekki
síst, hans persónulega pólítíska vigt.
Leiðtogar og/eða formenn?
Áhugaverð eru þau ummæli að
leiðtogar stjórnmálaflokka séu ekki
endilega sama persóna og formenn
þeirra, líkt og fram kemur í umsögn
um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
varaformann Samfylkingarinnar,
stærsta stjórnarandstöðuflokksins.
Varaformannsembættið þykir aug-
ljóslega mun áhrifameira í höndum
Ingibjargar Sólrúnar en endranær.
Annar viðmælandi sagði um Öss-
ur Skarphéðinsson, formann flokks-
ins, og var sá eini sem nefndi hann
til sögunnar:
„Ljúfur og létt skemmtilegur
maður sem þvælist að mestu fyrir
framþróun flokksins. Nær sér ekki
á strik af því að hann veit það best
sjálfur að hann er millitengi í mátt-
lausri stöðu flokksins. Vantar öðru
fremur trúverðugleika og festu til
að takast á við erfiði sitt.“
Lítil áhrif í listunum
Áhrif manna í menningar- og
listalífi þykja lítil utan þeirra sviða
þar sem ríkisvaldið kemur beint við
sögu. Það kemur kannski fáum á
óvart. Hjónin Stefán Baldursson
Þjóðleikhússtjóri og Þórunn Sigurð-
ardóttir, listrænn stjórnandi Lista-
hátíðar, nefndu flestir á þessu sviði.
Staða Stefáns þykir þó sumum vera
orðin tvísýn. Hjónin þykja ráða
miklu um það hvaða list ríkið fram-
leiðir, styrkir eða kaupir á hverju
ári.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri fær heldur laka einkunn og
þykja starfskraftar hans vera frekar
helgaðir öðru en beinlínis hagsmun-
um RÚV.
Það getur enginn sótt um starfið
hennar Bjarkar Guðmundsdóttur en
hún þykir gríðarlega áhrifamikil í
krafti eigin persónu. Á þessum lista
er hún því í sérflokki en um leið ef til
dæmi um einstakling sem hefur tek-
ið starf, sem í eðli sínu er ekki
áhrifamikið, en sprengt utan af því
alla fyrirfram gefna ramma.
Afl þess er gera skal...
„Lof mér að stjórna gjaldmiðli
þjóðar og þá er mér sama hver setur
lögin,“ eru fræg ummæli 18. aldar
mannsins Mayers Amschels
Rothschild, gyðingsins sem lagði
grunninn að bankaveldi Rothschild-
ættarinnar, vinsælasta viðfangsefni
samsæriskenningasmiða. Viðmæl-
endur blaðsins taka kannski ekki svo
djúpt í árinni en eru augljóslega
mjög meðvitaðir um áhrif þau og
völd er fylgja peningum. Björgólfur
Guðmundsson og Jón Ásgeir Jóhann-
esson eru báðir leikstjórnendur í ís-
lensku þjóðlífi, ekki bara á sviði við-
skipta og kemur það glöggt fram í
umsögnum um þá hér á opnunni.
Sama á við um Sigurð Einarsson.
Embætti bankaráðsformanns Lands-
bankans er gott dæmi um embætti
sem hefur þanist út í áhrifum vegna
þess sem gegnir því, eins og fram
kemur á opnunni. Af einstökum
athugasemdum má ráða að einhverj-
um þykir jafnvel nóg um umsvif þre-
menninganna og félaga þeirra.
Ritstjórar Morgunblaðsins og
Fréttablaðsins eru langoftast nefndir
af áhrifamiklum fjölmiðlamönnum,
Styrmir Gunnarsson raunar jafnoft
og Björgólfur Guðmundsson og
næstum jafnoft og Davíð Oddsson.
Það er því ljóst að viðmælendur
blaðsins að minnsta kosti hafa ein-
hverja hugmynd um hvað Jim Morri-
son, söngvari Doors, var að fara
þegar hann sagði að sá sem stjórnaði
fjölmiðlunum, stjórnaði hugum fólks.
Finnur Þór Vilhjálmsson.
28 21. mars 2004 SUNNUDAGUR
Fréttablaðið hafði samband við hóp fólks og bað það að tilnefna áhrifamestu störf á Íslandi og um leið áhrifamesta fólkið, en líka að leggja
mat á hvernig sá eða sú sem starfinu gegnir hefur staðið sig.
Fimmtán áhrifame
ÚTVARPSSTJÓRI
Markús Örn Antonsson
„Embætti útvarps-
stjóra ætti að öllu
jöfnu að vera það
áhrifamesta í hér-
lendum fjölmiðlum.
Ríkisútvarpið er
langstærsti fjölmiðill
landsins og hefur
gríðarleg áhrif á
miðlun upplýsinga og afþreyingu lands-
manna. Markús hefur verið jafn ræfilsleg-
ur í þessu starfi eins og hann var sem
borgarstjóri. Auðmjúkur þjónn íhaldsins
sem hamast dag og nótt við að reyna að
einkavæða stofnunina.“
„Persónugervingur bláskjásins, að mörgu
leyti vinalegur maður sem veit sem er að
hann er tryggari en nokkur annar lands-
maður í starfi sínu - brynvarinn af velunn-
urum í flokknum. Þarf þar af leiðandi lítið
að gera og fyllir vel inn í þá starfslýsingu.“
„Sjónvarpið gæti fóstrað íslenska stutt-
mynda-, heimildarmynda- og sjónvarps-
myndavorið. Í stað þess að sýna af sér
einbeittan vilja til að gegna þessu hlut-
verki hefur hann hneigst til að verja
ríkjandi stöðu.“
FORSTJÓRI BAUGS GROUP
Jón Ásgeir Jóhannesson
„Hlýtur að teljast
einn valdamesti
maður landsins í
krafti auðs síns.
Angar hans teygja
sig víða. Víðar en við
höldum? Það er
erfitt að meta núna
hver áhrif veldi hans
hefur til lengri tíma litið.“
„Baugsmenn eru komnir til að vera í valda-
brölti sínu. Kunna þá list að svífast einskis
og skemmta sér við að skara eld að eigin
köku. Í sjálfu sér nauðsynlegt mótvægi við
ofurvald forsætisráðherra í landi sem gæti
hæglega selt ömmu sína til útflutnings.“
„Kóngurinn í verslunarekstri á Íslandi, sem
er löngu orðið of lítið fyrir hann, hefur verið
mjög farsæll í viðskiptum erlendis sérstak-
lega í Bretlandi.“
ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRI
Stefán Baldursson
„Hefur lagt mikið
til málanna á sín-
um ferli í Þjóð-
leikhúsinu. Hefur
hins vegar verið
að endurtaka sig
síðustu ár, virðist
vera staðnaður og
því kannski ekki
seinna vænna að hann skuli vera að
hætta.“
„Ræður ásamt eiginkonu sinni og
stjórnanda Listahátíðar mestum parti
af því hvernig list landsmanna er rað-
að á veisluborðið. Stjórnsamur maður
sem hefur aukið völd sín í listageiran-
um svo mjög að margir gleyma texta
sínum.“
„Virðist fastur í einhverjum kreddum
og klisjum. Hefur einhvern einkenni-
legan stjórnunarstíl sem sumir eiga
erfitt með að sætta sig við. Hefur misst
mikið hæfileikafólk frá sér, til dæmis
Stefán Jónsson, einn mesta leikara- og
leikstjóratalent seinni ára, sem flutti
sig yfir í Borgarleikhúsið.“
FORSETI ÍSLANDS
Ólafur Ragnar Grímsson
„Hefur virkjað
stöðu sína svo vel
að margir eru við
það að drukkna í
uppistöðulóninu.
Hleypir af og til úr
sér svo menn fá
yfir sig gusuna.
Mikilvirkur sölu-
maður íslenskra hagsmuna og kann að
koma sér í mjúkinn hjá þeim sem
skipta máli á alþjóðavettvangi.“
„Forseti Íslands og hæstaréttardómarar
njóta mestrar virðingar innan stjórn-
sýslunnar og hún hefur minnkað
óverulega seinustu ár, nema að því
leyti að virðing fyrir yfirvöldum virðist
almennt fara minnkandi í samfélaginu
og samstaða um gildi er lítil, til dæmis
um að forseti og hæstaréttardómarar
skuli ekki gagnrýndir af offorsi og þeim
sýnd virðing. Þetta tengist uppgangi
þessarar stefnu sem stundum er kölluð
ranglega frjálshyggja og Heimdellingar
á ýmsum aldri boða ákaflega.“
FORSÆTISRÁÐHERRA
Davíð Oddsson
„Davíð hefur
haldið þannig á
sínum störfum að
hann hefur aukið
mjög völd sín og
áhrif. Um leið hef-
ur staða hans
veikst undanfarið
vegna fylgistaps flokks hans og þess
að hann boðaði brotthvarf sitt úr
embætti með árs fyrirvara.“
„Hefur tröllatak á þessu embætti sem
hefur bólgnað út að áhrifum í hans
stjórnartíð. Davíð hefur nánast komið
sér upp upplýstu einræði í sinni
stjórnartíð, deilir og drottnar og ýmist
hlæja hirðfíflin allt í kring eða and-
stæðingarnar emja í gapastokknum.“
„Hefur haft óbilandi tilfinningu fyrir
valdi, enda gegnt embættinu lengur
en nokkur annar. Þrátt fyrir góðan
húmor hefur hann hins vegar ekki
nógu mikinn húmor fyrir sjálfum sér
til að forðast veikleika langrar valda-
setu: svolítið pirraða þreytu og yfir-
læti.“
„Hefur á löngum ferli byggt upp valda-
kerfi í kringum sig sem gerir hann
valdamesta mann landsins. Ekki í
krafti peninga, heldur stjórnmála-
áhrifa. Það verður klárlega breyting á
embættinu þegar hann hverfur úr því,
hvenær sem það verður.“
„Persóna Davíðs skín svo skært að
hún blindar bæði fylgismenn hans og
andstæðinga. Hann er valdamesti
maður á þessari eyju en ára hans nær
ekki út fyrir landsteinana, hann er ekki
málamaður eða heimsborgari þannig
að rödd hans nær skammt út fyrir
landsteinana. Hefur verið fylgjandi
fremur en leiðandi.“
„Hefur gegnt störfum lengi, sem segir þá
sögu að hann hlýtur að vera hæfur til þess.
Hefur mikinn myndugleika, en ákveðin
merki eru á lofti um að hann hafi alls ekki
sama áhuga á starfinu og áður.“
VARAFORMAÐUR
SAMFYLKINGARINNAR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
„Að vera formaður
flokks er ekki það
sama og að vera
leiðtogi hans.
Varaformaður
Samfylkingarinnar
er eflaust áhrifa-
meiri en formað-
urinn um þessar
mundir.
„Staða Ingibjargar Sólrúnar hefur hins
vegar ekki styrkst tiltakanlega þrátt fyrir
kosningasigur Samfylkingarinnar því að
stjórnarandstaðan vinnur ekki sem
heild. Staða Össurar hefur veikst þrátt
fyrir kosningaúrslit því að Ingibjörg
boðaði strax að hún mundi velta hon-
um úr sessi.“
„Hefur sýnt að það er hægt að sjá
tækifærin í ósigrum, notað stund milli
stríða til að endurnýja sjálfa sig svo nú
er endurkomu hennar í íslensk stjórn-
mál beðið með óþreyju.“
FORMAÐUR BANKARÁÐS
LANDSBANKA ÍSLANDS
Björgólfur Guðmundsson
„Var ekki merkilegt
djobb, en er það
eftir að Björgólfur
Guðmundsson tók
yfir. Hann ætlar að
endurreisa miðbæ-
inn, en það á eftir
að koma í ljós hvort
hann er niðurrifsafl
eða endurreisnarmaður í viðskiptalífinu.
Skilur einhver hvað hrærist í sál Björgólfs?“
„Björgólfur er sterkur og sjarmerandi karakt-
er, en starfshættir hans bera þess vitni að
hann hefur verið of lengi í fjandsamlegu
umhverfi: svolítið eins og kafbátaforingi
sem hefur siglt bát sínum upp á yfirborðið
og skimar í kringum sig, en er til í að fara
niður aftur og styðjast við sjónpípuna ef
honum finnst að sér sótt.“
„Björgólfur Guðmundsson er af allt annarri
kynslóð en Jón Ásgeir en samt í hring-
iðunni. Endurreistur og öflugur í krafti
peninganna.“
Ármann Jakobsson
íslenskufræðingur.
Tinna Gunnlaugsdóttir,
forseti Bandalags íslenskra listamanna.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
skáld og fjölmiðlamaður.
Halldór Guðmundsson,
útgefandi og rithöfundur.
Andri Snær Magnason rithöfundur.
Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður og
varaþingmaður Framsóknarflokksins.
Sigríður Árnadóttir,
fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
Jafet Ólafsson,
framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar.
Egill Helgason blaðamaður.
Sigurður Arnarson,
sendiráðsprestur í London.
Álitsgjafarnir