Fréttablaðið - 21.03.2004, Blaðsíða 35
SUNNUDAGUR 21. febrúar 2004
Þeir héldu síðast tónleika hérna18. júní 1971 og þá var uppselt
þannig að þeir sem komust ekki þá
fá nú kjörið tækifæri til að bæta úr
því,“ segir Einar Bárðarson tón-
leikahaldari hjá Concert en sam-
komulag hefur náðst um að breska
rokksveitin Deep Purple haldi tón-
leika á Íslandi í sumar. Tónleikarnir
verða þann 24. júní nk. í Laugar-
dalshöll og mun miðasala hefjast í
byrjun apríl.
Deep Purple er ein af allra-
stærstu þungarokksveitum sögunn-
ar og hefur hún haft mótandi og
djúpstæð áhrif á rokksöguna síð-
ustu 30 ár.
„Miðaverði verður stillt í hóf,“
segir Einar. „Það hefur ekki verið
ákveðið en verður á bilinu 3.000-
4.000 krónur sem telst ódýrt fyrir
tónleika í Laugardalshöll. Þetta er
ekki síst gert til þess að íslenskir
feður geti sinnt þeirri skyldu sinni í
tónlistaruppeldinu að kynna nýja
kynslóð tónlistarunnenda fyrir al-
vöru rokki.“
Stefnt er á að fá aðra stórsveit
frá sama tímabili, Uriah Heep,
með Deep Purple til landsins og
einnig verður reynt að kalla til
gömlu rokkarana úr Start til þess
að hita upp.
Einar segist ekki óttast mikið
framboð af tónleikum í sumar, en
svo virðist sem hver hljómsveitin á
fætur annarri stefni hingað til lands.
Einar segist hins vegar stíla inn á
annan markhóp en flestir aðrir. „Ég
er að stíla á fullorðið fólk sem fer
ekki á hinar sveitirnar hvort eð er og
á þar fyrir utan nógan pening,“ segir
Einar og er hvergi banginn.
Deep Purple hefur verið á fleygi-
ferð um heiminn síðastliðin tvö ár
og hefur leikið við góðan orðstír.
Sveitin gaf einnig út plötuna Ban-
anas í fyrra sem fékk prýðilega
dóma og ef marka má ágæta tón-
leikadóma síðustu misserin mun
Deep Purple ekki valda vonbrigðum
í Höllinni. ■
Á TÓNLEIKUM
Nú geta íslenskir aðdáendur endurnýjað kynni sín af Deep Purple, en hljómsveitin spilaði
hér árið 1971. Nú er upplagt að þeir sem þá fóru dragi nýjar kynslóðir með sér.
Enn bætist í hóp stórhljómsveita sem halda munu hljómleika hér á landinu á næstunni:
Deep Purple spilar í Höllinni
DEEP PURPLE
Hljómsveitin er í dag skipuð þeim Ian Gillan, Roger Glover, Ian Paice, Don Airey og Steve
Morse. Þrír þeir fyrstnefndu eru upprunalegir meðlimir en Airey og Morse slógust í hópinn
fyrir nokkrum árum.