Fréttablaðið - 10.04.2004, Side 2
2 10. apríl 2004 FÖSTUDAGUR
„Engin dónaleg skilaboð. Bara þau
skilaboð að hafa gaman af þessu.“
Hlynur Bæringsson hefur slegið í gegn í úrvals-
deildinni í körfubolta í vetur og leitt lið sitt alla
leið í úrslitarimmuna gegn Keflavík. Einhverjir
óprúttnir stuðningsmenn andstæðinganna hafa
sent ósmekkleg skilaboð á Hlyn á síðustu dögum
en hann lætur það ekki á sig fá. Fjórði leikur lið-
anna er í dag klukkan fjögur.
Spurningdagsins
Hlynur, verður þú með skilaboð til
Keflvíkinganna í dag?
Íbúatala í Árnessýslu
þrefaldast um páska
Margir nýta páskahelgina til ferðalaga og var þung umferð úr
höfuðborginni í allar áttir í gær og fyrradag. Skíðafæri var ágætt
fyrir norðan og vestan. Um hundrað bátar voru á sjó í gær.
PÁSKAHELGIN Greiðfært hefur ver-
ið um allt land það sem af er
páskahátíðinni, nema hvað há-
lendið er lokað vegna aurbleytu.
Víða hefur verið mikil umferð og
orlofshús á landinu eru sneisafull
af fólki. Mikill fjöldi jeppa- og
snjósleðafólks var á Langjökli í
gær og naut veðurblíðunnar.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var umferð þung í gær og
fyrradag en engin óhöpp urðu.
„Íbúatalan þrefaldast eða fjór-
faldast í Árnessýslu á þessum
tíma og meira að segja innanbæj-
ar á Selfossi var erfitt að komast
leiðar sinnar. Fólk er mest á leið-
inni í sumarbústaði, í Grímsnes-
ið, Þjórsárdalinn, Flúðir, í upp-
sveitirnar og svo jafnvel enn
austar. Þetta er auðvitað fyrsta
ferðahelgi ársins og veðrið gott
þannig að það er eðlilegt að fólk
leggi land undir fót,“ sagði varð-
stjórinn á Selfossi og bætti við að
grilllyktina legði yfir sveitirnar.
Á Akureyri hafði fjölgað um-
talsvert í bænum í gær og að
sögn lögreglu hafði allt gengið
slysalaust. Opið var í Hlíðarfjalli
og ungir og aldnir renndu sér á
skíðum í ágætu færi. Ýmislegt
fleira stóð gestum á Akureyri til
boða, sundlaugar og veitingastað-
ir voru opin og páskastemning
góð.
Margir voru á skíðum á Siglu-
firði að sögn lögreglunnar og var
færið gott.
Á Ísafirði var einnig margt í
hlíðunum og að sögn lögreglu þar
hafði fólk einnig verið duglegt að
skemmta sér í byrjun páskahátíð-
arinnar en allt hafði farið vel
fram og lögregla ekki þurft að
hafa nein afskipti af gleðinni.
Í Reykjavík var einnig rólegt
hjá lögreglunni og fangageymsl-
ur tómar að morgni föstudagsins
langa.
Hjá Tilkynningaskyldunni
fengust þær upplýsingar að um
eitt hundrað skip væru á veiðum.
Magnús Guðmundsson, skipstjóri
á Snorra Sturlusyni VE 28, segir
áhöfnina búast við mikilli stór-
steik á páskadag en um borð í
Snorra eru 27 menn og er áætlað
að skipið verði úti til 19. apríl.
Hann segir mokveiði vera á mið-
unum suðvestan af Reykjanesi og
góða stemningu um borð en
ásamt stórsteikinni á morgun fá
áhafnarmeðlimirnir páskaegg.
edda@frettabladid.is
thkjart@frettabladid.is
Rússnesk geimvísindi:
Mannað far til Mars
MOSKVA, AP Hópur rússneskra geim-
vísindamanna ætlar sér að senda
mannað far til Mars á árunum 2011
til 2013. Segja mennirnir að verkið
kosti einungis þrjá til fimm millj-
arða Bandaríkjadala en fjármögn-
unaraðilinn er lítið rússneskt fyrir-
tæki sem kveðst ekki njóta neinna
opinberra styrkja frá Rússlandi.
Vísindamenn frá rússnesku geim-
vísindastofnuninni hafa enga trú á
þessum fyrirætlunum og segja þær
alveg út í hött.
Ferðalagið á að taka þrjú ár og er
miðað við að sex geimfarar verði
sendir til Mars. Hingað til hafa að-
eins mannlaus geimför verið send
til rauðu plánetunnar og ferðin, ef
til hennar kemur, verður því sú
fyrsta sinnar tegundar.
Mönnuð ferð til Mars hefur ver-
ið á dagskrá NASA, bandarísku
geimvísindastofnunarinnar, í lang-
an tíma. Engin viðmiðunardagsetn-
ing hefur enn verið gefin út, en sér-
fræðingar NASA segja að ferðin
verði ekki farin fyrr en eftir ein-
hverja áratugi. ■
FLUTTU HINAR SLÖSUÐU
Björgunarsveitir fluttu hinar slösuðu í
Húsafell en þaðan fóru þær með sjúkrabíl
til Borgarness.
Óhapp á jökli:
Meiddust
á sleða
ÓHAPP Tvær konur voru fluttar á
sjúkrahús eftir vélsleðaóhapp á
Langjökli í gær. Björgunarsveitir
sóttu konurnar á jökulinn og voru
þær sendar í sjúkrabíl frá Húsa-
felli til Borgarness þar sem vakt-
hafandi læknir skoðaði þær. Var
önnur þeirra send á sjúkrahúsið á
Akranesi að skoðun lokinni en hin
fékk að fara heim. Að sögn vakt-
hafandi læknis í Borgarnesi var
hvorug kvennanna alvarlega
meidd eftir óhappið. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu í Borg-
arnesi virðist sem snjósleði
kvennanna hafi farið ofan í hjól-
för bíls og við það hafi þeim
hlekkst á. ■
Selfoss:
Tóku mann
með eiturlyf
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
stöðvaði bíl á Suðurlandsvegi
skammt vestan Selfoss um klukk-
an hálftvö aðfaranótt skírdags.
Við nánari athugun þótti lögreglu-
þjónunum ástæða til að gera leit í
bílnum.
Við leitina kom í ljós að ökumað-
ur hafði meðferðis um sextíu
grömm af óblönduðu efni, sem talið
er vera amfetamín, og tæki til
blöndunar. Söluverðmæti efnisins
er ríflega hálf milljón króna og er
talið að það hafi verið ætlað til
dreifingar á Selfossi og nágrenni. ■
INNBROT Í HAFNARFIRÐI Innbrot
var framið í hús í Hafnarfirði að-
faranótt föstudagsins langa. Hús-
ráðendur vöknuðu við hávaða og
hringdu í lögreglu, sem hafði
hendur í hári þjófanna skammt
frá heimili fólksins. Þjófarnir
höfðu náð að hafa á brott með sér
fartölvu, síma og ýmislegt smá-
legt, en málið telst upplýst. Mikill
erill hefur verið hjá lögreglunni í
Hafnarfirði það sem af er páska-
hátíðinni, mikið um innbrot í bíla
og margir gist fangageymslur.
HRAÐAKSTUR Á VOPNAFIRÐI Lög-
reglan á Vopnafirði tók níu
manns fyrir of hraðan akstur á
Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á
skírdag.
BÍLVELTA Í MÝRDAL Bílvelta varð
við Pétursey í Mýrdal á skírdag.
Þrír spænskir ferðamenn voru í
bílnum en þeir sluppu ómeiddir.
Bílinn þurfti að fjarlægja með
kranabíl. Mikil umferð var um
Mýrdalinn á miðvikudag, skírdag
og í gær. Lögreglan í Vík þurfti
að hafa afskipti af tíu manns sem
óku á ólöglegum hraða og nokkrir
mældust á 135 km hraða.
ALSÍR, AP Sigurvegari kosninganna
í Alsír er sitjandi forseti landsins,
Abdelaziz Bouteflika, en hann
hlaut 83 prósent greiddra at-
kvæða. Mikil umræða hefur verið
upp á síðkastið í Alsír um fram-
kvæmd kosninganna og hafa and-
stæðingar Bouteflika margoft
sakað hann um að ætla að hag-
ræða úrslitum þeirra sér í hag. Að
minnsta kosti einn frambjóðandi,
fyrrum forsætisráðherra lands-
ins, hefur farið með úrslit kosn-
inganna fyrir dómstóla.
Þegar Bouteflika vann kosn-
ingarnar fyrir fimm árum drógu
sex andstæðingar hans framboð
sín til baka kvöldið fyrir kosn-
ingar með ásökunum um að kosn-
ingarnar væru eitt stórt svindl.
Forsetinn vísar þessum ásök-
unum á bug og segir ekkert vera
athugavert við kosningarnar.
Hann bendir á að allir frambjóð-
endur hafi fengið leyfi til þess að
vera með eftirlitsmenn á kjör-
stöðum auk þess sem 120 erlend-
ir einstaklingar komu til Alsír til
að fylgjast með því að kosning-
arnar færu fram á lýðræðislegan
hátt. ■
RÚSSNESKIR FORKÓLFAR
Í GEIMFERÐUM
Georgy Uspensky á frétta-
mannafundi þar sem kynntar
voru fyrirætlanir um mannað
geimfar til Mars.
Bankaránið í Noregi:
Framsals
krafist
NOREGUR Yfirvöld í Noregi hafa
krafist framsals þriggja manna
sem handteknir voru í Gautaborg
grunaðir um aðild að vopnuðu
ráni í peningageymslum Norsk
Kontantservice þann 5. apríl.
Mennirnir, sem allir eru sænskir
ríkisborgarar af albönskum upp-
runa, mótmæla framsali og segj-
ast enga vitneskju hafa um ránið.
Óvíst er hvenær framsalsbeiðnin
verður afgreidd.
Lögreglunni í Stafangri hafa
borist 1.250 vísbendingar í tengsl-
um við rannsókn málsins og nú
þegar hafa yfir 300 manns verið
yfirheyrðir. ■
Forseti Alsír endurkjörinn:
Andstæðingar sannfærðir
um kosningasvindl
STUÐNINGSMAÐUR FORSETANS
Stuðningsmenn forsetans þustu
fagnandi út á götur Algeirsborgar um
leið og kjörstöðum var lokað til að
fagna endurkjöri forsetans.
JEPPAÞING Á JÖKLI
Veðrið lék við jeppa- og vélsleðamenn við Þursa-
borgir á Langjökli í gær enda var veður þar með
besta móti og fjallafólk sér fram á óblíða veðurspá
víðast um landið á næstu dögum.
■ Lögreglufréttir
Eldsvoði:
Eldur við
Funahöfða
BRUNI Lögregla og slökkvilið voru
kölluð út skömmu fyrir klukkan
þrjú í gær eftir að tilkynnt hafði
verið um eld í íbúðarhúsi við Funa-
höfða í Reykjavík. Mikinn reyk
lagði frá einu herberginu og urðu
aðrir íbúar í húsinu þess áskynja og
hringdu í neyðarnúmer.
Í húsinu, sem er í miðju verk-
smiðjuhverfi á Ártúnshöfða, eru
herbergi leigð út. Kom eldur upp í
einu þeirra og virðist eldurinn hafa
átt upptök sín í fatahrúgu.
Í fyrstu var talið að leigjandi
íbúðarinnar hefði verið inni á her-
bergi þegar eldurinn kom upp en
svo var ekki. Lögregla rannsakar
eldsupptök. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M