Fréttablaðið - 10.04.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
21
4
04
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Gleðilega páska
250,-
SYNTES diskur 26 sm
Motto skál 12 sm STRIL skál 35 sm SVALKA rauðvínsglös 35 cl 6 stk SKÄMT vasi 21 sm
65,- 125,- stk 550,- 490,-
Opið til kl. 18:00 í dag
Opnum aftur eftir páska þriðjudaginn 13 apríl kl. 10:00
Í Smáralindinni er verið að kross-festa mann og fólk kaupir sér
miða í afgreiðslunni til þess að horfa
á hann. Í Lúxus kl. 2.30, 5.20, 8,
10.40. Bannað innan 16. Passíusálm-
arnir lesnir í útvarpinu. Það má gera
þá að sjónvarpsefni með því klippa
myndefni Gibsons við sálmana:
,,Sollnar undir sárt við hrærðu, þær
sviðu og blæddu upp á ný...“
TÍMARNIR ERU BIBLÍULEGIR.
Umsátur um fæðingarkirkju Krists.
Gamall maður í hjólastól sprengdur í
loft upp. Hann leit út fyrir að vera
1000 ára gamall. Fréttirnar eru enda-
lausar píslarsögur frá Palestínu, sitj-
um í lúxussölum og horfum á sund-
urtætt kaffihús eða strætisvagna.
Þrír Palestínumenn drepnir í hefnd-
arárás, 5, 6 og 10 ára. Heimurinn
dælir inn peningum til að viðhalda
heiftinni. Ísrael með hátækniþyrlur
frá Bandaríkjunum og samúð úr
Biblíubeltinu í baráttunni gegn
,,terrorists“. Palestínumenn með
sprengjubelti frá nágrannaríkjum.
Allir þykjast hafa heilagan rétt til að
hata og hefna.
VELTI FYRIR MÉR um daginn að
kannski væri engin skynsamleg
pólítísk lausn á þessu máli, aðeins
öfgafull og trúarleg. Vesturlandabú-
ar eru flestir kristnir en fæstir mjög
öfgafullir en kannski þurfa þeir að
ákveða í þessu tilfelli að verða öfga-
kristnir. Þeir segja að Palestína,
Jerúsalem, Betlehem, Golgata,
Getsemane sé heilög jörð og munu
ekki líða að á þessa jörð falli svo
mikið sem einn einasti blóðdropi.
Allt beittara en kjöthnífur sé ógnun
við helgi staðarins. Bush verði kynnt
orð Jesú Krists: ,,Elskið óvini yðar,
gjörið þeim gott, sem hata yður:
blessið þá sem bölva yður, og biðjið
fyrir þeim, er sýna yður ójöfnuð.“
Síðan finna menn sambærilegar til-
vitnanir í Kóraninn og Gamla Testa-
mentið og gera að lögum fyrir svæð-
ið. Það má byrja á öfgafullu og af-
gerandi boðorði frá tímum Móse:
,,Þú skalt ekki mann deyða“. Það
verður hærra sett en auga fyrir
auga.
ÞÁ LOKSINS FLYKKTIST fólk úr
Biblíubeltinu í pílagrímaferðir til að
skoða Biblíuslóðir. Gistir og borðar,
skoðar fæðingarkirkjuna, kaupir sér
minjagripi, gengur upp á Golgata og
biður bænir, fer kannski að orðum
Krists og gefur fátækum allar eigur
sínar. Þá eru þeir loksins komnir í
eina kös, öfgakristnir, öfgamúslimar
og öfgagyðingar og lifa saman í friði
eins og þeir gera nú þegar í New
York og allir hinir streyma í kjölfar-
ið til að skoða litbrigði mannlífsins.
Kannski er þetta einfalt og heimsku-
legt en friður er í eðli sínu einfaldur
og heimskulegur.
Í Smáralindinni
er verið að
krossfesta mann