Fréttablaðið - 10.04.2004, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 10. apríl 2004
„FYRSTA FLOKKS AFÞREYING.“
„GÁTUSAGA MEÐ GULLINSNIÐI.“
„FRÁBÆRLEGA SPENNANDI
SAGA ... BÓK SEM MAÐUR
LES Í EINUM RYKK.“
VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON, HÖFUNDUR FLATEYJARGÁTUNNAR
BIRTA
MORGUNBLAÐIÐ
VERÐ: 1.590 KR.
WWW.BJARTUR.IS/DAVINCI
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Ég læt yfirleitt ekki sjá mig ímatvörubúðum vegna þess að
það er ekki nógu kúl. En stundum
neyðist maður til að kaupa inn
drasl fyrir heimilið. Ég geng þá
um verslunina með sama svip og
aðrir: ég er hérna eingöngu vegna
þess að ég neyðist til þess, ekki
vegna þess að ég læt stjórnast af
óseðjandi maga. Þetta er harð-
neskjulegur svipur sem má sjá í
öllum betri matvöruverslunum.
Um daginn rakst ég á mann í
svona búð sem í vantaði hæfi-
leikann til þess að hugsa í hljóði.
Fyrst hélt ég að hann væri að
tala við mig og brosti til hans
(það voru mistök og ég missti
kúlið um stund), svo hélt ég að
hann væri með kínverskri konu
en það reyndist ekki vera og loks
sá ég að hann var ekki að tala við
neinn heldur hugsa upphátt.
Óhugnanlegt.
Og það sem verra var, hann var
ánægður með allt. Hérna eru app-
elsínurnar, þær eru ákaflega
girnilegar (hann notaði orð eins og
ákaflega), það var lítið um ávexti
þegar ég var ungur, þetta er mikið
framfaraskref í matvörufram-
boði, ég þarf líka að muna að
kaupa eyrnapinna, ú já, það er svo
gott að hreinsa úr eyrunum eftir
sturtu, þetta eru framfarir, aldrei
notaði ég eyrnapinna þegar ég var
ungur, þá gekk fólk bara um með
blaut eyru. Ég fór ekki að hreinsa
almennilega úr eyrunum fyrr en
ég kynntist Tinnu [ég geri ráð fyr-
ir að það sé konan hans], hún
kynnti mig fyrir eyrnapinnum, ég
elska hana Tinnu, ég er mjög feg-
inn að hafa náð mér í hana, þetta
er gott líf og ég er hamingjusam-
ur. Ísland er frábært.
Ég gekk á eftir honum í gegn-
um búðina, lét lítið fyrir mér fara
en stakk hann svo af við af-
greiðslukassann, ég hafði heyrt
nóg. Þetta var alveg viðbjóðslegt,
hreint og beint grátlegt.
Ég hringdi í Gallup og spurði
þá hreint út: eru svona menn
teknir með þegar þið gerið kann-
anir á því hvernig fólki líður í
þessu landi, eru þetta kannski
fáir einstaklingar sem hífa svo
upp meðaltalið að við lifum í
þeirri blekkingu að allir hérna
séu ánægðir? En þeir svöruðu
mér að svo væri ekki. Menn sem
hugsa upphátt eru klikkaðir og
fá ekki að vera með í könnunum,
sér í lagi væntingavísitölunni.
Ég hugsaði í hljóði: hjúkk, við
erum þá ekki óhamingjusamari
þjóð en þetta. Það er kúl. ■
...hræðilega jákvæðar hugsanir
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
■ pælir í lífinu og tilverunni.
Það fyndna við
Róbert Róbertsson, hinn þaul-reyndi blaðamaður Séð &
heyrt, vill helst taka því rólega í
faðmi fjölskyldunnar á laugar-
dagskvöldum enda bestu stundirn-
ar að hans mati. „Við hjónin erum
nýbúin að fjárfesta í breiðtjalds-
sjónvarpi og DVD-spilara og það
verður að segjast eins og er að við
erum orðin enn heimakærari fyrir
vikið. Ef við skreppum eitthvað út
þá verður oft fyrir valinu að fara í
bíó og sjá þá helst einhverja góða
spennumynd eða gamanmynd. Nú
nýverið sáum við myndina „Along
Came Polly“ með Ben Stiller og
Jennifer Aniston og var hún mjög
fín.“ Róbert segist ekki fara oft á
skemmtistaðina eða kaffihúsin nú-
orðið en viðurkennir að með
hækkandi sól fjölgi þeim ferðum.
„Helst legg ég þá leið mína á Tor-
valdsen eða NASA og svo Kaffi-
brennsluna ef kvöldið er rólegt. Þá
er alltaf klassískt að fara út að
borða – maður fær seint leið á því.
Sjávarkjallarinn er uppáhaldsveit-
ingastaðurinn enda sjávarfangið
þar með eindæmum gott. Síðan er
búið að vera á döfinni nokkuð lengi
hjá okkur hjónum að fara í leikhús
og sjá eitthvað af þeim fjölmörgu
spennandi sýningum sem eru í
gangi núna. Því miður gerir maður
allt of lítið af því en hins vegar er
hugmyndin að sameina veitinga-
húsaferð og leikhúsferð mjög fljót-
lega.“ Að lokum nefnir Róbert
heimsóknir vina og ættingja „enda
er alltaf gott að vera í góðra vina
hópi, það bregst aldrei“. ■
Það var margtum manninn
í eftirpartíi
Sugababes-
tónleikanna
á Mojito í Aust-
urstræti og
minnti gleð-
s k a p u r i n n
mest á álíka
viðburði úti
í hinum
stóra heimi
og því bar
mest á fáklæddum stúlkum og
vel greiddum sveinum. Lítið fór
fyrir stórstjörnunum sjálfum en
þekkt nöfn
úr íslensku
skemmtana-
lífi voru í
h v e r j u
horni. Andr-
ea Jónsdótt-
ir á Rás 2,
var á staðn-
um, Addi
Fannar, oft-
ast kenndur
við Skíta-
móral, dans-
arinn Yesmine Olsson og tónlist-
arkonan Rósa Guðmundsdóttir,
sem var aldrei kölluð annað en
Rósa í Spotlight fyrir nokkrum
misserum. Tískulöggan Svavar
Örn Svavarsson sigldi einnig í
gegnum mannhafið og Frosta í
Mínus brá fyrir. Þá var athafna-
skáldið Fjölnir Þorgeirsson í
toppformi og kvikmyndaleik-
stjórinn Júlíus Kemp ræddi við
t ó n l e i k a h a l d a r a n n
Ísleif Þórhallsson
fyrir utan VIP-salinn
sem var vaktaður af
tveimur fílefldum
vörðum sem gættu
þess að hver sem er
kæmist ekki í vín-
berin og
k a m p a v í n i ð
sem þar var á
borðum.
Söngkonan Leoncie gerði góðaferð úr Sandgerði til Reykjavík-
ur á miðvikudagskvöld þegar hún
tróð upp fyrir fullu húsi á Nelly’s
Cafe við Þingholtsstræti. Leoncie
er sjálfsagt með umdeildari Íslend-
ingum og því brá Halldór E., sem
fékk söngkonuna til að kíkja í bæ-
inn, á það ráð að taka dyraverði úr
anddyri staðarins og láta þá gegna
hlutverki lífvarða við sviðið. Allt
fór þetta þó vel fram og Leoncie
þurfti ekki á lífvörðunum að halda
en kunni hins vegar vel að meta
stórstjörnumeðferðina sem hún
fékk. Áhorfendur fögnuðu henni
ákaflega og alls var hún klöppuð
sjö sinnum upp og þurfti að taka
hið margrómaða Kópavogslag sitt,
Ást á pöbbnum, í þrígang.
Leoncie var, þrátt fyrir vinsæld-irnar, ekki með mikið tilstand og
var ekki með her aðstoðarmanna í
för eins og gengur og gerist hjá
stórstjörnum. Hún mætti einungis
með eiginmanni sínum Viktor Al-
bertssyni, sem er hennar hægri
hönd og umboðsmaður. Þau hjónin
hafa verið að pakka niður undan-
farnar vikur þar sem Ískryddið
hyggst flytja af landi brott, ekki
síst þar sem hún telur sig ítrekað
vera fórnarlamb kynþáttafordóma
á Íslandi. Hún ræddi um ýmis mál
vítt og breitt á milli laga á miðviku-
daginn en hélt ró sinni þó einhverj-
ar glósur fengju að fjúka. Aðdáend-
ur hennar binda því vonir við að
hlýjar móttökurnar sem Leoncie
fékk á Nelly’s verði til þess að hún
endurskoði hug sinn. Hvar svo sem
Leoncie endar er þó næsta víst að
hún muni gera eitt tónlistarmynd-
band á Íslandi þar sem hún telur
Nelly’s, eða gamla Borgvirkið,
ákjósanlegan upptökustað fyrir
myndband við Ást á barnum. Leit
að fólki í hlutverk barflugna stend-
ur yfir.
Laugardagskvöld
RÓBERT RÓBERTSSON
■ Reynir að slappa af með
fjölskyldunni.
Rólegur í faðmi fjölskyldunnar
Fréttiraf fólki
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt: 1 mjög góð, 6 upphaf, 7 sex, 8
hljóm, 9 á fugli, 10 fuglategund, 12 kveik-
ur, 14 bygging, 15 líta, 16 spil, 17 hestur,
18 vætu.
Lóðrétt: 1 vel að sér, 2 borgin eilífa, 3
veisla, 4 rit, 5 bók, 9 hlotnast, 11 viljuga,
13 vindur, 14 stór, 17 skóli.
Lausn:
Lárétt: 1frábær, 6rót,7vi,8óm,9fit,
10gæs,12rak,14hús,15gá,16ás,
17mar, 18raka.
Lóðrétt: 1fróð,2róm,3át,4ævisaga,5
rit,9fær, 11fúsa,13kári,14hár, 17ma.
Fréttiraf fólki