Fréttablaðið - 10.04.2004, Blaðsíða 41
41LAUGARDAGUR 10. apríl 2004
Vísindamenn við háskólann íHertfordskíri í Bretlandi
hafa nú lagst út í viðamikla
rannsókn á því hvort heppni geti
verið meðfædd. Vísindamenn-
irnir ætla að bera saman per-
sónueinkenni og fæðingardag
fólks og athuga hvort tengsl séu
þar á milli.
Rannsóknir sem gerðar hafa
verið benda til þess að heppið
fólk sé bjartsýnt og tilbúið að
taka áhættu.
„Við munum safna saman
persónueinkennum, upplýsing-
um um lífsferil og fæðingardög-
um og rannsaka hvort fólkið sé
almennt bjartsýnt og óbugandi
þegar vandræði steðja að,“ seg-
ir sálfræðiprófessorinn Richard
Wiseman, sem fer fyrir rann-
sókninni. „Við munum athuga
hvort einhver tengsl séu þarna á
milli, það er að segja hvort
heppni sé í raun og veru með-
fædd.“
Samkvæmt Wiseman eru
ákveðnar vísbendingar til um að
fæðingardagur gefi fyrirheit
um bjarta framtíð. Hann tekur
þó fram að sum börn séu frekar
hvött til dáða en önnur og það
geti vissulega haft áhrif. ■
MAÐUR MEÐ SMOKK
Sumir sagnfræðingar vilja meina að garnir
úr dýrum hafi verið notaðir í sama tilgangi
og smokkar. Fólk notar þó smokka í
misjöfnum tilgangi.
Ný rannsókn á
getnaðarvörnum:
Smokkar
úr lérefti
Fyrstu smokkarnir voru gerðirúr lérefti og þeim dýpt í salt-
vatn til að drepa sæði. Þetta er
niðurstaða úr rannsókn sagnfræð-
inga sem hafa skoðað málið um
nokkurt skeið.
Rannsókn á sögu smokksins
var kynnt á sýningu í Berlín fyrir
skömmu og var liður í átaki um
öruggt kynlíf. Samkvæmt rann-
sakendum voru léreftssmokkarn-
ir í saltvatninu mikið notaðir á
sextándu öld en ekki fylgdi sög-
unni hvort þeir hafi reynst eins
öruggir og þeir sem notaðir eru í
dag.
Fyrstu smokkarnir úr gúmmíi
komu til sögunnar árið 1855 en þá
voru þeir saumaðir saman á lang-
veginn. Það var ekki fyrr en 75
árum síðar að fyrstu latex smokk-
arnir, án sauma, voru kynntir til
sögunnar undir slagorðinu „ekk-
ert að óttast“. ■
SÚKKULAÐI
Súkkulaði og ást hafa lengi þótt fara
saman, en nú þykir sýnt að súkkulaði og
barneignir passi líka vel saman.
Ný rannsókn:
Gott að borða
súkkulaði á
meðgöngu
Niðurstöður nýrrar könnunarvoru birtar nýlega en þær
snúa að súkkulaðiáti og barneign-
um. Vísindamenn sem stóðu fyrir
könnuninni fullyrða að konur
sem bryðja súkkulaði á hverjum
degi meðan þær eru barnshaf-
andi eignist hamingjusamari
börn en þær sem fúlsi við súkku-
laði. Vísindamenn segja ákveðin
efni í súkkulaði vekja vellíðan
hjá fóstrinu og það leiði til þess
að eftir fæðingu hlæi börn og
brosi meir en ella. Könnunin var
gerð í Helsinki þar sem 300 kon-
ur og börn þeirra voru rannsök-
uð. Barnshafandi konur ættu því
að geta hámað í sig páskaegg
þessa dagana með góðri sam-
visku. ■
Vísindamenn leggjast í nýja rannsókn:
Er heppni meðfædd?
ANDRÉS ÖND
Öndin knáa er ekki fædd undir heilla-
stjörnu, ólíkt frænda sínum Hábeini.