Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2004, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 10.04.2004, Qupperneq 38
Þýskur bókmenntamaður,Michael Marr, hefur komið afkomendum Vladimírs Nabo- kov úr jafnvægi með fullyrðing- um um að rithöfundurinn hafi fengið sögupersónuna Lolitu að láni frá þýskum höfundi. Heinz von Eschwege skrifaði nóvellu sína Lolitu árið 1916. Hann not- aði dulnefnið Von Lichberg og varð blaðamaður á valdaárum Hitlers. Í sögu hans er Lolita unglingsstúlka sem á í ástar- sambandi við mann sem er leigj- andi á heimili hennar. Lolita deyr og maðurinn er í sárum. Bók Nabokovs kom út árið 1955 og varð gríðarlega umdeild. Menn eru ekki enn sammála um hvort Lolita sé táningstálkvendi sem leggur líf miðaldra manns í rúst eða saklaust fórnarlamb brenglaðs manns sem er að full- nægja fýsnum sínum. Í Frankfurter Allgemeine Zeitung segir Marr að merkileg- ur samhljómur sé milli sögu- þráðar, sjónarhorns sögunnar og nafna persóna. Hann bendir einnig á að upphafslýsingin á stúlkunni sé mjög lík í báðum sögunum. Sögumaður horfir í augu stúlkunnar og sér að hún er ekki það barn sem aldur hennar gefur til kynna. Sonur Nabokovs hefur brugð- ist illa við yfirlýsingum um meintan ritstuld föður síns. Hann bendir á að sagan frá 1916 gerist á Spáni þar sem Lolita sé algengt nafn en bók föður síns gerist í Bandaríkjunum. Hann bætir því við að þýska sagan sé smásaga skrifuð af blaðamanni og að hún virðist vera rusl. ■ 30 10. apríl 2004 LAUGARDAGUR Frances HodgsonBurnett og Anna Sewell eru höfundar barnabókanna Litla lá- varðarins, Leynigarðs- ins, Litlu prinssessun- ar og Fagra Blakks. Bækurnar njóta enn gríðarlegra vinsælda um heim allan og hafa nokkrum sinnum verið kvikmyndaðar. Nýlega komu út ævisögur þess- ara tveggja höfunda og megi marka dóma þá er mun meiri fengur að ævisögu Sewell, þótt höfundurinn hafi ekki haft úr jafn miklu efni að moða og ævisagna- höfundur Burnett. Gagnrýnislaus ævi- saga Gretchen Gerzina er höfundur ævisögunnar um Burnett. Ævisagan þykir mjög ítarleg og höf- undur nýtir sér óspart bréf, dagbækur og sam- tímaheimildir. Það þykir hins vegar ókostur hversu gagnrýnislaus Gerzina er á Burnett, sem henni finnst greinlega dásamleg manneskja. „Hún skrifar eins og vofa viðfangsefnis- ins sé að lesa yfir öxl henn- ar,“ segir gagnrýnandi The Guardian. Hann kvartar einnig undan því að bókin sé ekki nægilega vel og skemmtilega skrifuð. Burnett skrifaði 52 bæk- ur (aðallega fyrir fullorðna) og 13 leikrit. Gerzina gerir í bók sinni enga tilraun til að flokka þessi verk og leggja bókmenntalegt mat á þau. Það er þó ljóst að þrjár bækur munu halda nafni Burnett í lofti um ókomin ár: Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy), L e y n i g a r ð u r i n n (The Secret Gard- en) og Litla prins- essan (The Little Princess). Leynigarðinn skrifaði hún eftir að hafa misst eldri son sinn, Lionel. Hann var fjórtán ára þegar hann lést. Yngri sonur hennar, Vivian, sem þótti einstak- lega kurteis og fallegur drengur, varð fyrirmyndin að Litla lávarð- inum. Bókin var fyrsta barnabók Burnett og segir frá amerískum dreng sem verður erfingi mikils auðs á Bretlandi. Hodgson Burnett var engin fyrirmyndarmóðir. Hún yfirgaf börn sín oft í langan tíma í senn og sinnti þeim með höppum og glöpp- um. Einkalíf hennar var storma- samt, hún var tvígift og skildi við báða eiginmenn sína. Eftir dauða sonar síns gerðist hún mikill mannvinur og tók veik börn iðu- lega inn á heimili sitt. Hún sökkti sér einnig ofan í spíritisma og dul- hyggju. Hún lést árið 1924. Verk sprottið af þjáningu Höfundur ævisögu Önnu Sewell er Adrienne E. Gavin, sem þykir leysa verkið afar vel. Ekki eru til margar heimildir um Önnu en Gavin nýtir þær sem til eru til fullnustu. Barnabókin Fagri Blakk- ur eftir Önnu er fyrir löngu orðin klassísk en þar er sagan sögð út frá sjónarhóli hests sem þarf að ganga í gegnum raunir áður en hann finn- ur húsbændur sem reynast honum vel. Þetta var fyrsta og eina bók Önnu, sem skrifaði hana þegar hún var 57 ára gömul. Hún byrjaði á bókinni þegar læknar sögðu henni að hún ætti 18 mánuði ólifaða. Hún lifði í sex ár enn, en það var einmitt tíminn sem tók hana að skrifa bók- ina. Hún lést fjórum mánuðum eft- ir útkomu hennar. Stjörnugagnrýn- andi Sunday Times, John Carey, er mjög hrifinn af ævisögunni og seg- ir að höfundinum takist að fylla lesandann af forvitni á þessu eina verki sem Anna skrifaði, og eftir lesturinn þyki honum enn meira til Fagra Blakks koma en áður. Segja má að sköpun Fagra Blakks hafi, eins og Leynigarður- inn, sprottið upp úr þjáningu. Anna Sewell var 14 ára gömul þegar hún sneri sig illa á ökkla. Það sem virtist vera smáóhapp varð að dularfullum veikindum í fæti sem þjökuðu hana alla ævi. Ekkert vann varanlegan bug á sársaukanum í fætinum. Útreiðar voru eina leið Önnu til frelsis og hún fékk ákafa ást á hestum, sem hún talaði við eins og vini sína. Foreldrar Önnu voru kvekar- ar. Mary móðir hennar var kenn- ari sem kenndi börnum sínum sterkar siðareglur og sagði þeim að grimmd væri óafsakanleg. Mary sinnti líknarstarfi af mik- illi elju, heimsótti meðal annars fangelsi, og Anna fylgdi henni stundum í þeim ferðum. Mary skrifaði barnabækur sem Anna las yfir fyrir útkomu og hún varð með árunum fyrsta flokks gagn- rýnandi. Þegar Fagri Blakkur kom út keyptu bóksalar í London einung- is hundrað eintök af bókinni en á næstu fimmtán árum seldist hún í einni milljón eintaka og er í dag komin vel yfir 40 milljóna eintaka sölu. Á tímum aðskilnaðarstefn- unnar í Suður-Afríku settu stjórn- völd hana á bannlista, kannski vegna þess að meginefni bókar- innar fjallar um umburðarlyndi og þar er hvers konar grimmd rækilega fordæmd. kolla@frettabladid.is ■ Bækur Metsölulisti Bókabúða Máls og menningar, Eymundssonar og Pennans ALLAR BÆKUR 1. Da Vinci lykillinn Dan Brown 2. Skyndibitar fyrir sál- ina Barbara Berger 3. Uppeldisbókin Sus- an Mortweet / Edward R. Christophersen 4. Ensk-íslensk skóla- orðabók Mál og menning 5. Sálmabók Ýmsir höfundar 6. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 7. Íslensk orðabók I-II Edda útgáfa 8. Passíusálmar Hallgrímur Pétursson 9. Svo fögur bein Alice Seabold 10. Lífshættir fugla David Attenborough SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR 1. Sálmabók Ýmsir höfundar 2. Passíusálmar Hallgrímur Pétursson 3. Alkemistinn Paulo Coelho 4. Ljóðasafn Tómas- ar Guðmundssonar Tómas Guðmundsson 5. Perlur í skáldskap Laxness Halldór Laxness 6. Þjóðskáldin - stórbók Ýmsir höfundar 7. Steinn Steinarr - Ljóðasafn Steinn Steinarr 8. Glæpur og refsing Fjodor Dostojevski 9. Þórbergur Þórðarson - stórbók Þór- bergur Þórðarson 10. Hobbitinn J.R.R. Tolkien SKÁLDVERK - KILJUR 1. Da Vinci lykillinn Dan Brown 2. Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson 3. Svo fögur bein Alice Seabold 4. Villibirta Liza Marklund 5. Röddin Arnaldur Indriðason 6. Dauðarósir Arn- aldur Indriðason 7. Mýrin Arnaldur Indriðason 8. Hvíta kanínan Árni Þórarinsson 9. Annað tækifæri James Patterson 10. Paradís Liza Marklund Listinn er gerður út frá sölu dagana 30.03. - 04.04. 2004 í Bókabúðum Máls og menningar, Eymundssyni og Penn- anum. BÓK VIKUNNAR The Phantom of The Opera eftir Gaston Leroux. Saga Leroux um óperudrauginn ógurlega hefur orðið að vinsælum kvikmyndum og söngleik. Upp- runalega sagan er bráðskemmti- leg aflestrar, hröð og spennandi og ætti engan að svíkja. Höfundurinn Leroux var blaðamaður, lögfræð- ingur, rithöfundur og leiklistar- gagnrýnandi. Hann var einnig sannur ævintýramaður sem hafði hann sið að skjóta með byssu sinni upp í loft í hvert sinn sem hann lauk við bók. NABOKOV Merkileg líkindi eru með Lolitu og þýskri sögu sem kom út fjórum áratugum áður. Stal Nabokov Lolitu? LITLI LÁVARÐURINN Ein frægasta bók Frances Hodgson Burnett fjallar um sannkallað- an fyrirmyndardreng. ■ Segja má að sköpun Fagra Blakks hafi, eins og Leynigarð- urinn, sprottið upp úr þjáningu. FAGRI BLAKKUR Eina bókin sem Anne Sewell skrifaði um ævina telst til klassískra barnabóka. Nýlega komu út ævisögur tveggja kvenna sem skrifuðu ódauðlegar barnabækur, Fagra blakk og Litla lávarðinn. Konurnar bak við barnabækurnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.