Fréttablaðið - 30.04.2004, Side 6
6 30. apríl 2004 FÖSTUDAGUR
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 74.16 0.86%
Sterlingspund 130.61 -0.46%
Dönsk króna 11.78 0.23%
Evra 87.65 0.23%
Gengisvísitala krónu 123,96 0,54%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 434
Velta 5.019 milljónir
ICEX-15 2.728 -0,86%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 505.128
Össur hf. 345.229
Landsbanki Íslands hf. 272.214
Mesta hækkun
Össur hf. 6,54%
Opin Kerfi Group hf. 1,93%
Kögun hf. 1,04%
Mesta lækkun
Burðarás hf. -2,83%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. -2,58%
Straumur fjárfestingarbanki hf. -1,57%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.339,0 -0,0%
Nasdaq * 1.972,8 -0,8%
FTSE 4.519,5 -0,1%
DAX 4.008,9 -1,4%
NK50 1.499,5 0,0%
S&P * 1.119,5 -0,3%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hvað heitir fulltrúi Íslands semkjörinn var dómari við Mannrétt-
indadómstól Evrópu?
2Hvaða breska háskóla afhenti DavíðOddsson forsætisráðherra kennslu-
styrk á dögunum og hve hár var styrkur-
inn?
3Frá deginum í dag hækkar hámarks-hraði víða á dönskum hraðbrautum.
Hver verður hámarkshraðinn?
Svörin eru á bls. 43
Vísir hf. kaupir hlut Byggðastofnunar í fiskvinnslunni Fjölni:
Öllu starfsfólki
sagt upp
FISKVINNSLA Öllu starfsfólki fisk-
vinnslunnar Fjölnis hf. á Þingeyri,
alls 35 manns, hefur verið sagt upp
störfum og vinnsla liggur niðri hjá
fyrirtækinu. Fjölnir er að stærstum
hluta í eigu Vísis hf. í Grindavík.
Í gær var jafnframt tilkynnt að
Byggðastofnun hefði tekið kaup-
tilboði Vísis hf. í 100 milljóna króna
hlutafé stofnunarinnar í Fjölni.
Söluverð hlutafjárins hefur ekki
fengist upp gefið.
Á vef Bæjarins besta er það haft
eftir Aðalsteini Þorsteinssyni, for-
stjóra Byggðastofnunar, að það hafi
alltaf verið markmið stofnunarinn-
ar að selja hlutaféð. „Vísismenn
óskuðu eftir viðræðum um kaup og
í framhaldinu kom tilboð sem við
tókum,“ segir Aðalsteinn.
Fiskvinnslan Fjölnir hf. var
stofnuð árið 1999. Hlutafé fyrir-
tækisins var í upphafi 400 milljónir
og voru stærstu hluthafarnir Vísir,
Burðarás og Byggðastofnun. Fyrir-
tækinu var úthlutað um 400 tonna
byggðakvóti til fimm ára og hafa
skip Vísis séð um að veiða þennan
kvóta. Að sögn Péturs Pálssonar,
stjórnarformanns Fjölnis, er ráð-
stöfunarkvótinn nú uppurinn og því
liggur öll vinnsla niðri.
Albert Sigurjónsson, rekstrar-
stjóri Fjölnis, segir í samtali við
Bæjarins besta að ómögulegt sé að
spá um það hversu lengi vinnslu-
stöðvunin varir. ■
Meira en 100 manns
tepptir á Landspítala
Yfir hundrað sjúklingar eru nú tepptir á hinum ýmsu deildum Landspítala -
háskólasjúkrahúss. Meðferð þeirra á spítalanum er lokið en þeir bíða nú
meðferðar- og vistarúrræða utan hans. Slík bið tekur yfirleitt marga mánuði.
HEILBRIGÐISMÁL Meira en hundrað
sjúklingar eru nú tepptir á Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi þar
sem önnur úrræði eru ekki fyrir
hendi. Meðferð þeirra er lokið en
þeir bíða eftir úrræðum utan
spítalans.
Þetta kemur meðal annars fram
í greinargerð sem fulltrúar Banda-
lags háskólamanna og Landspítala
kynntu Jóni Kristjánssyni heil-
brigðisráðherra í gær. Greinar-
gerðin er unnin á grunni úttektar
KPMG-ráðgjafar, sem BHM fékk
fyrirtækið til að gera vegna hag-
ræðingaraðgerða á LSH. Um er að
ræða sameiginleg áhersluatriði
BHM og LSH í
málefnum spítal-
ans, sem verða
kynnt stjórn-
völdum og á op-
inberum vett-
vangi.
Í greinar-
gerðinni er fjall-
að um mannúð-
leg og hagkvæm
vistunarúrræði
vegna útskrift-
arvanda á LSH
sem þýði að sjúklingar sem lokið
hafa meðferð á spítalanum og bíða
eftir meðferðarúrræðum annars
staðar í heilbrigðiskerfinu, svo
sem vist á hjúkrunarheimili, þurfi
í flestum tilfellum að bíða mánuð-
um saman.
Í greinargerðinni segir, að
meira en 100 sjúklingar bíði nú
eftir slíkri vist á deildum spítal-
ans. Spítalinn geti því ekki sinnt
sínu hlutverki sem skyldi, til dæm-
is ekki kallað inn sjúklinga af
biðlistum í þau rúm sem teppt séu
vegna útskriftarvandans.
„Sjúklingarnir sem bíða fá ekki
þá þjónustu sem er markvissust
fyrir þá á meðan þeir bíða, það er
þeir bíða í umhverfi hátækni-
sjúkrahússins en þurfa oft á tíðum
á heimilislegu umhverfi hjúkrun-
arheimila að halda,“ segir í grein-
argerðinni.
Þá er vakin athygli á að nauð-
synlegt sé að finna leiðir til þess að
hægja á þeim útgjaldavexti sem
hefur verið til margra ára á lyfja-
kostnaði Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss. Málið snúi annars
vegar að stjórnvöldum og þeirri
reglugerðaumgjörð sem snýr að
innflutningi og skráningu lyfja á
Íslandi og hins vegar að notkun
lyfjanna á spítalanum.
Loks er fjallað um fasteignir
LSH og umsýslu þeirra. Þar er
undirstrikað að stjórnvöld komi til
móts við LSH í hagkvæmri og
gagnsærri lausn fasteignamála.
Jafnframt, að við ákvörðun um
fjárveitingar verði tekið sýnilegt
tillit til þess verulega kostnaðar
sem er af fjárbindingu við stofn-
kostnað og útgjöld við viðhald,
rekstur og umsýslu fasteigna LSH.
jss@frettabladid.is
Tveggja ára fangelsi:
Nauðgaði
tveimur
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
karlmann til tveggja ára fangelsis-
vistar fyrir að hafa haft samræði við
tvær stúlkur þegar ástand þeirra var
þannig að þær gátu ekki spornað við
sökum ölvunar og svefndrunga.
Manninum var jafnframt gert að
greiða hvorri stúlkunni um sig hálfa
milljón í miskabætur, auk dráttar-
vaxta. Hæstiréttur staðfesti þar með
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ákærði viðurkenndi að hafa haft sam-
ræði við stúlkurnar á heimili sínu, en
fullyrti að það hefði verið með þeirra
samþykki. Hann var sakfelldur á
grundvelli vitnisburðar stúlknanna,
læknis- og sálfræðivottorða. ■
PRESTASTEFNA
Prestar á Prestastefnu Íslands 2004 taka
undir þá fullyrðingu kirkjuráðs
að kirkjan eigi Þingvelli.
Ályktun prestastefnu:
Þjóðkirkjan
á Þingvelli
PRESTASTEFNA Prestastefna Íslands
2004 mótmælir því að Þingvellir
séu taldir með ríkisjörðum þar
sem kirkjan fari með eignarhald á
Þingvöllum samkvæmt þing-
lýstum eignarheimildum.
Í ályktun frá prestastefnunni
er tekið undir samþykkt kirkju-
ráðs þar sem tillögum um stækk-
un þjóðgarðsins á Þingvöllum og
friðlýsingu hans er fagnað en því
jafnframt lýst yfir að frumvarpið
feli ekki í sér breytingu á réttar-
stöðu Þingvalla sem prestsseturs.
Prestastefnan lýsir yfir fullum
stuðningi við kirkjuráð við að
gæta hagsmuna kirkjunnar á
Þingvöllum og hvetur ríkisvaldið
til að koma að ný að viðræðum við
kirkjuna svo að samkomulag náist
sem fyrst. ■
BIFHJÓLI STOLIÐ ÚR BÍLSKÚR
Brotist var inn í bílskúr í vestur-
bæ Kópavogs aðfaranótt fimmtu-
dags og stolið þaðan bifhjóli. Lög-
reglunni í Kópavogi var tilkynnt
um innbrotið um klukkan fjögur
um nóttina. Hjólið fannst undir
morgun þar sem nokkrir ungir
menn voru að reyna að koma því
í gang. Enginn hefur verið hand-
tekinn vegna málsins.
INNBROT Í GRUNNSKÓLA Brotist
var inn í Árbæjarskóla aðfara-
nótt fimmtudags og stolið þaðan
tölvu. Þjófarnir brutu tvær rúður
til að komast inn í bygginguna.
Innbrotið var tilkynnt til lögreglu
þegar kennsla hófst í gærmorg-
un. Ekki er vitað hverjir voru að
verki.
Egill
segir komið
að leiðarlokum
fyrir Davíð
– hefur þú séð DV í dag?
Á ÞINGEYRI
Vinnsla liggur niðri hjá fiskvinnslunni
Fjölni á Þingeyri og hefur öllu starfsfólki
fyrirtækisins verið sagt upp störfum.
„Sjúkling-
arnir sem
bíða fá ekki
þá þjónustu
sem er mark-
vissust fyrir
þá á meðan
þeir bíða.
MÁLEFNI LANDSPÍTALANS
Magnús Pétursson, forstjóri LSH, Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna
og upplýsinga, Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, og Gísli Tryggvason, framkvæmda-
stjóri BHM, gengu á fund Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra í gærmorgun og kynntu
honum sameiginlegar hugmyndir sínar um málefni Landspítala - háskólasjúkrahúss.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA