Fréttablaðið - 30.04.2004, Qupperneq 45
QUEIROZ HRÓSAR BECKHAM
Carlos Queiroz, þjálfari Real
Madrid, hrósaði David Beckham í
hástert í viðtali við spænska fjöl-
miðla í gær. Hann segir Beckham
hafa þroskast mikið síðan hann
flutti til Spánar og að hann sé
mjög ánægður með frammistöðu
hans það sem af er.
AGALI REKINN FRÁ SCHALKE
Viktor Agali, framherji Schalke,
var í gær rekinn frá félaginu
fyrir að skrópa í tíma hjá
sjúkraþjálfara. Agali hefur verið
meiddur upp á síðkastið en eftir
að hann mætti ekki hjá
sjúkraþjálfara liðsins þrjá daga í
röð fengu forráðamenn Schalke
nóg og ráku kappann en samn-
ingur hans rennur út í vor.
■ Fótbolti
33FÖSTUDAGUR 30. apríl 2004
... á næsta sölusta› e›a lotto.is
og flú átt möguleika á a› vinna
heimsreisu
fyrir tvo
Taktu Lottó
í áskrift
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
2
0
0
6
DREGI‹ Í
LOK
APRÍL
KNATTSPYRNA Varnarmaðurinn sterk-
i, Kjartan Antonsson, gerði í gær
tveggja ára samning við 1. deildar-
lið Breiðabliks. Það má með sanni
segja að Kjartan sé kominn heim
því hann er uppalinn Bliki.
Kjartan hefur ekki verið inn í
áætlunum Þorláks Árnasonar, þjálf-
ara Fylkis, og því óskaði Kjartan
eftir því við forráðamenn félagsins
að fá sig lausan frá félaginu. Það
gekk eftir og gekk hann í kjölfarið
frá samningi við Blika seinni part-
inn í gær.
„Ég er verulega ánægður með að
hafa fengið Kjartan í okkar hóp
enda sterkur varnarmaður þar á
ferð,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Breiða-
bliks, við Frétta-
blaðið í gær. „Hóp-
urinn hjá okkur fer
að verða fullmótað-
ur og aðeins spurn-
ing hvað verður
með Tékkana sem
voru til reynslu hjá
okkur um daginn en
það ætti að skýrast
á næstunni.“
Kjartan gekk til liðs við Fylki
fyrir síðasta sumar frá ÍBV og lék
því aðeins eitt tímabil með liðinu.
Hann kom við sögu í ellefu leikjum
Fylkis í fyrra og skoraði ekkert
mark. ■
FÓTBOLTI Arsene Wenger, fram-
kvæmdastjóri nýbakaðra Eng-
landsmeistara Arsenal, er hæstá-
nægður með að hafa landað samn-
ingi við hollenska ungstirnið
Robin van Persie, sem kemur frá
Feyenoord. Hann skrifaði undir
fjögurra ára samning en ekki hef-
ur verið gefið upp hvað Arsenal
þurfti að borga fyrir kappann,
sem er aðeins tvítugur að aldri og
þykir hið mesta efni. „Við höfum
haft áhuga á pilti síðan í desember
enda er hann efni í frábæran leik-
mann. Hann er mjög skapandi og
ég sé hann vel fyrir mér vinstra
megin á miðjunni fyrir aftan aðal-
senterinn okkar. Sýn hans á leik-
inn er frábær og þá er hann mjög
teknískur. Hann er einnig hávax-
inn og notar líkamann vel, er góð-
ur í loftinu og það er eitthvað nýtt
fyrir okkur,“ sagði Arsene Wen-
ger um piltinn. Persie var að von-
um kátur með flutninginn: „Ég er
í sjöunda himni enda er það mikill
heiður að fá að spila í Arsenal-
búningnum. Það eru fullt af frá-
bærum leikmönnum í liðinu og ég
hlakka mjög mikið til að koma til
félagsins í sumar. Vonandi get ég
lagt mitt af mörkum til að Arsenal
haldi áfram á sömu braut og bæti
jafnvel um betur,“ sagði Robin
van Persie, nýjasta viðbót Eng-
landsmeistara Arsenal. ■
ROBIN VAN PERSIE
Fagnar hér einu af mörkum sínum sem
hann hefur skorað fyrir Feyenoord.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, styrkir leikmannahóp félagsins:
Robin van Persie til Arsenal
KJARTAN
ANTONSSON
Genginn í raðir
sinna gömlu fé-
laga í Breiðablik.
Blikar fá liðsstyrk í 1. deildinni:
Kjartan snýr heim
INGIMUNDUR INGIMUNDARSON ÁTTI STÓRLEIK MEÐ ÍR Í GÆRKVÖLD
Stórskyttan mikla sést hér skora eitt af átta mörkum sínum í leiknum en hann var af öðrum ólöstuðum besti maður vallarins.
Heimavöllurinn
gerði gæfumuninn
KA-menn og ÍR-ingar tryggðu sér oddaleik í undanúrslitum
RE/MAX-deildarinnar með sigri í heimaleikjum sínum í gærkvöld.
HANDBOLTI KA-menn og ÍR-ingar
tryggðu sér oddaleik í undan-
úrslitum RE/MAX-deildarinnar í
handknattleik í gærkvöld með því
að leggja andstæðinga sína að
velli á heimavelli.
ÍR-ingar unnu góðan sigur á
Val, 29–25, og þurfa liðin því að
mætast í þriðja sinn á Hlíðarenda
á sunnudaginn. Valsmenn byrjuðu
betur og komust í 7–5. Þá vöknuðu
ÍR-ingar, skoruðu fimm mörk
gegn einu marki Valsmanna og
sneru stöðunni í 10–8 sér í hag.
Ingimundur Ingimundarson fór
mikinn á þessum kafla og skoraði
þrjú af fimm mörkum ÍR-inga
sem leiddu í hálfleik, 13–11.
Jafnræði var með liðunum í
byrjun síðari hálfleik, allt þar til
ÍR-ingar tóku mikla rispu og
breyttu stöðunni úr 17–16 í 24–17
á átta mínútna kafla. Þennan mun
náðu Valsmenn aldrei að vinna
upp og leiknum lauk með sigri ÍR-
inga, 29–25.
Ingimundur Ingimundarson
var að öðrum ólöstuðum besti
maður vallarsins í gærkvöld en
hann skoraði átta mörk í liði ÍR.
Einar Hólmgeirsson skoraði sex
mörk, Bjarni Fritzson, fyrirliði
liðsins skoraði fimm mörk en öll
komu þau á lokakafla leiksins og
Hannes Jón Jónsson skoraði
einnig fimm mörk. Sturla
Ásgeirsson skoraði þrjú mörk og
Fannar Þorbjörnsson tvö og í
markinu átti Ólafur Helgi
Gíslason skínandi leik. Hann
varði 22 skot í leiknum, þar af eitt
vítakast frá Baldvini Þorsteins-
syni.
Baldvin var markahæstur hjá
Val með níu mörk, þar af sex úr
vítaköstum, Heimir Örn Árnason
og Hjalti Þór Pálmason skoruðu
fjögur mörk hvor, Bjarki
Sigurðsson skoraði þrjú mörk en
hann meiddist illa þegar hann
skoraði síðasta markið sitt og
óvíst hvort hann verður með í
þriðja leiknum. Hjalti Gylfason
skoraði tvö mörk og þeir Sigurður
Eggertsson, Brendan Þorvaldsson
og Freyr Brynjarsson skoruðu
eitt mark hver. Pálmar Pétursson
varði tíu skot í marki Vals.
Arnór skoraði 11 mörk
KA-menn nýttu sér einnig
heimavöllinn líkt og ÍR-ingar og
unnu Hauka, 33–29, á Akureyri í
gærkvöld. Þessi lið mætast því á
nýjan leik á Ásvöllum á sunnu-
daginn.
Haukar höfðu frumkvæðið
framan af fyrri hálfleik en KA-
menn náðu að síga fram úr undir
lok hálfleiksins og höfðu tveggja
marka forystu í hálfleik, 15–13.
Þeir skoruðu síðan fimm fyrstu
mörk síðari hálfleiks, náðu sjö
marka forystu, 20–13, og létu þá
forystu aldrei af hendi það sem
eftir lifði leiks.
Arnór Atlason skoraði ellefu
mörk fyrir KA, Jónatan
Magnússon og Einar Logi Frið-
jónsson skoruðu sex mörk hvor,
Andrius Stelmokas skoraði fimm
mörk, Sævar Árnason gerði þrjú
og Bjartur Máni Sigurðsson skor-
aði tvö mörk. Stefán Guðnason
varði sautján skot í marki KA.
Andri Stefan skoraði níu mörk
fyrir Hauka, Halldór Ingólfsson
skoraði sjö mörk, Þorkell Magnús-
son, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Jón
Karl Björnsson og Þórir Ólafsson
skoruðu þrjú mörk hver og Vignir
Svavarsson skoraði tvö mörk.
Birkir Ívar Guðmundsson varði
tíu skot í marki Hauka og Björn
Björnsson varði sex. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N