Fréttablaðið - 30.04.2004, Síða 49
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI PANIC ROOM
BYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING
FRUMSÝND Í DAG
GÆÐAVARA – BETRA VERÐ!
JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
SMS
um nýjustu plöturnar
The Shins - Chutes too Narrow
„Eftir fjórar umferðir gat ég ekki logið
að sjálfum mér lengur. Ég var byrjaður
að syngja með og hefði verið líklegur til
þess að valhoppa á leið minni úr
strætó í vinnuna, með þessa tónlist í
eyrunum. Rás 2 ætti að vera með
þessa plötu á repeat, svona til þess að
koma ykkur í sama blómlega sumar-
skap og ég er í. Þið eigið það skilið,
elskurnar mínar, sama hvernig þið hafið
verið að haga ykkur.“ BÖS
Auf der Maur - Auf der Maur
„Fyrsta sólóplata Auf der Maur er
gæðastykki. Sorglegt að stelpan hefur
ekki byrjað fyrr að gera sínar eigin
plötur, hún er greinilega fædd í rokk-
stjörnuhlutverkið. Algjör gæðagripur,
sem grípur strax, en vex samt við
hverja hlustun.“ BÖS
Blonde Redhead - Misery is a
Butterfly
„Eftir að hafa beðið svona lengi hefði
maður kannski vonast eftir stærra
þróunarstökki en hér er áherslan frekar
lögð á að gera fallega og vel upp-
byggða breiðskífu. Það tekst með
sóma. Útkoman er enn önnur frábær
plata frá þessari yndislegu hljómsveit.
Þessi sveit er algjörlega sér á báti og
þessi plata endar eflaust á listum yfir
bestu plötur ársins.“ BÖS
John Frusciante: Shadows
Collide With People
„Þetta er tónlist frá hjartanu, frá manni
sem hefur séð tímana tvenna og er
greinilega þakklátur fyrir það eitt að vera
enn á meðal vor. Ekkert meistarastykki
en það væri hægt að gera margt vitlaus-
ara en að hleypa þessari inn í tilveru
ykkar. Sérstaklega ef þið fílið einlægt
kassagítarskotið rokk með slettu af
tilraunaeldamennsku.“ BÖS
Cypress Hill - Till Death Do
Us Part
„Nýja Cypress Hill platan rennur vel í
gegn. Kemur manni í ágætis skap og
stenst væntingar sem til hennar eru
gerðar, sem voru kannski ekkert svo ýkja
miklar. Þannig ná gömlu freðhausarnir að
endurnýja sig með því að bæta smá
reggae-áhrifum inn í hiphoppið. Oldest
trick in the book? Jamm, kannski... en
hverjum er ekki skítsama svo lengi sem
tónlistin verður ekki leiðinleg.“ BÖS
THE CURE
But Christmas falls late now,
flatter and colder,
and never as bright as when we used to fall.
All this in an instant,
before i can kiss you,
a woman now standing were once there was
only a girl.
Robert Smith, söngvari The Cure, hittir æskuástina
að nýju eftir áralangan aðskilnað í laginu Last
Dance af meistaraverkinu Disintigration frá 1989.
Popptextinn