Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 1. maí 2004
Banki allra landsmanna
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
24
43
6
0
4/
20
04
N‡tt happdrættisár byrjar í maí
Missir
flú af
milljónum
í hverri viku
Kauptu mi›
a núna!
Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir!
að taka hið íslenska þjóðareðli
með í reikninginn en viðkvæðið
er að fólk eigi sína trú fyrir sig
og þurfi ekki endilega að sækja
kirkju. Ég held að það sé vax-
andi tilhneiging í þjóðlífinu,
Guði sé lof, að huga meira að
andlegum verðmætum en áður.
Og kirkjan sinnir nánast hverj-
um einasta einstaklingi eitthvað
á hverju ári. Við getum ekki
mælt allt í kirkjusókn.“
Hannes Örn segist afskap-
lega ánægður með þjóðkirkjuna
og starfsfólk hennar, sem er í
óðaönn að hlúa að henni og
byggja hana upp.
Kirkjan verður að stinga á
kýlum
Fram kemur í könnuninni að
mikill meirihluti aðspurðra læt-
ur sig ræðu prestsins frekar
eða mjög miklu máli varða. Um
það segir Hannes Örn: „Kirkjan
leggur áherslu á orðið, predik-
unina. Hún verður að vanda sig
þar og tala inn í samtíð sína af
þunga og ábyrgð. Hún má hins
vegar ekki gleyma orðinu, boð-
un friðar og fagnaðarerndisins.
En við verðum að stinga á kýl-
um. Auðvitað er kirkjan hápóli-
tísk í þjóðfélagsumræðu sinni
en það má ekki gleyma höfuðtil-
gangi predikunarinnar sem er
Kristur.“
Um tónlistina í kirkjunni
segir Hannes Örn að sem betur
fer sé komin miklu meiri fjöl-
breytni í kirkjutónlistina. „Mér
sjálfum þykir vænt um hefðirn-
ar og auðvitað byggir kirkjan á
mörgum og ríkum hefðum. Við
verðum samt alltaf að reyna að
lifa í samtímanum og nota það
sem gott er í tónlist og öðrum
listum sem þjóna þeim tilgangi
að lofa Guð.“
bjorn@frettabladid.is
HANNES ÖRN BLANDON
„Ég held að það sé vaxandi tilhneiging í
þjóðlífinu, Guði sé lof, að huga meira að
andlegum verðmætum en áður.“