Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 44
32 1. maí 2004 LAUGARDAGUR
Rokk og ról - hring
ROBERT PLANT
Robert Plant, söngvari Led
Zeppelin, þótti mikið augnayndi
á sínum tíma og hafði að auki
kröftuga sviðsframkomu.
JIM MORRISON
Látna goðsögnin Jim Morrison
úr The Doors var síðhærð og á
sínum síðustu árum með hnaus-
þykkt skegg, enda hippatímabil-
ið í fullum blóma. Sviðsfram-
koma kappans þótti mögnuð.
JIMMY PAGE
Jimmy Page, gítarleikari Led
Zeppelin, er einn sá færasti sem
uppi hefur verið. Sítt dökkt hár
og flottur á sviði með gítarinn á
flugi; allt sem þarf til að heilla
lýðinn.
AXL ROSE
Axl Rose, söngvari Guns N’
Roses, villtur, trylltur og ber að
ofan.
PÁLL RÓSINKRANZ
Páll Rósinkranz, söngvari Jet
Black Joe, söng lög sem hefðu
getað verið samin á hippatíma-
bilinu. Hann var líka með sítt
hár eins og rokkara er siður og
djammaði og djúsaði stíft eins
og forveri sinn.
GUNNAR BJARNI
Gunnar Bjarni Ragnarsson,
gítarleikari Jet Black Joe, hefur
vafalítið sótt bæði gítarfimi sína
og útlit að hluta til úr smiðju
Jimmy Page. Kannski hefur
Slash, fyrrum gítarleikari Guns
N’ Roses, einnig verið áhrifa-
valdur. Síða dökka hárið og
mögnuð yfirvegunin, allt hefur
þetta sitt að segja í sköpun hinn-
ar sígildu töffaraímyndar.
FO
R
TÍ
Ð
IN
ROKKHETJUR UPP ÚR 1970 ROKKHETJUR KRINGUM 1990
Tískan gengur í hringi, svo mikið er
víst. Rokktískan gerir það líka en er
þó alltaf til staðar í einhverri mynd.
Íslenskar rokkstjörnur sogast inn í þessa
hringrás eins og aðrir og leita í erlendar
hetjur. Hildur Hafsteinsdóttir, hönnuður
og stílisti, segir að hringrás tískunnar sé
alltaf að styttast.
A ð sögn Hildar eru um þaðbil 15 ár síðan rokktískanvar síðast ráðandi hér á
landi. Má segja að hún hafi byrj-
að með tilkomu rokksveita á borð
við Guns N’ Roses, The Cult,
Metallica og líkra sveita seinni
hluta níunda áratugarins þegar
tískan fór á undrastuttum tíma
frá herðapúðum og sítt að aftan
útliti Duran Duran yfir í sítt hár,
gallabuxur, leður, mótorhjóla-
klossa og kúrekastígvél. „Núna
er þetta aftur orðið dálítið „hit“.
Hluti af rokktískunni kemur
alltaf reglulega, eins og mótor-
hjólastígvélin og keðjurnar. Það
eru líka enn einhverjar rokkleif-
ar frá þessu Desperately Seeking
Susan-tímabili. Það er dálítið
sambland af einhverju pönki með
gaddaólum og Vivienne West-
wood. Hún hefur alltaf verið svo-
lítið rokkuð,“ segir Hildur. Að-
spurð um muninn á almennri
tísku og rokktískunni segir Hild-
ur að ekki líði jafn langur tími á
milli tímabilanna í almennu tísk-
unni. Rokktískan sé meira þannig
að eitthvað af henni sé alltaf í
tísku. „AC/DC fer ekkert úr tísku.
Það er alltaf töff að vera í AC/DC
bol,“ segir Hildur. „Það er styttra
síðan eitístímabilið var. Það kom
af fullum krafti í fyrra og það var
miklu meira áberandi. Mér finnst
rokktískan ekki skella eins hart á
manni eins og önnur tímabil. Hún
er meira svona lífsstíll; annað
hvort ertu rokkari eða ekki.“ Að
sögn Hildar minnir rokktískan í
dag töluvert á það sem fékkst í
…með 105 verslanir, veitingastaði og kaffihús