Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 26
■ Maður að mínu skapi
26 1. maí 2004 LAUGARDAGUR
…með allt á einum stað
Jaxl af gamla
skólanum
Steingrímur J. Sigfússon ermaður að mínu skapi,“ segir
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, fyrr-
verandi umsjónarmaður Atsins og
verðandi talmeinafræðanemi.
„Steingrímur er mikill dugnað-
arforkur og gefst ekki upp þótt á
móti blási,“ segir Sigrún, sem hef-
ur þó aldrei hitt þingmanninn.
„Svo nær hann því að vera
skemmtilegur án þess að vera
með fíflalæti. Þeir eru sumir sem
eru komnir ansi langt út fyrir
rammann í því.“
Sigrún segist ekki alltaf vera
sömu skoðunar og Steingrímur í
pólitíkinni. „Þó hann sé maður að
mínu skapi hefur það í raun ekk-
ert með stjórnmálaskoðanir að
gera. Ég er stundum sammála
honum en við erum ekki eitt í póli-
tíkinni. Hann er þessi jaxl af
gamla skólanum sem er ekki að
reyna að vera eitthvað númer.
Gísli Einarsson ritstjóri og afi
minn falla í sama flokk,“ segir
Sigrún Ósk. ■
Jarðeðlisfræðingur veldur
titringi:
Spáir jarð-
skjálfta í Kali-
forníu
Orð jarðeðlisfræðingsins Vla-dimir Keilis-Borok um að
helmings líkur séu á hörðum jarð-
skjálfta í Kaliforníu innan fimm
mánaða hafa valdið nokkrum titr-
ingi meðal íbúa ríkisins. Keilis-
Borok spáði fyrir um jarðskjálfta
sem síðastliðinn desember varð
tveimur að bana í San Simeon og
sagði einnig fyrir um harðari
skjálfta sem varð í Norður-Japan í
september síðastliðnum. Keilis-
Borok, sem er 82 ára, segir líkur á
að jarðskjálfti í Kaliforníu verði
fyrir 5. september á þessu ári og
spáir að hann verði um 6,4 stig.
NBC-sjónvarpsstöðin sýnir um
þessa helgi sjónvarpsmynd sem
lýsir afleiðingum jarðskjálfta, en
þar er vesturströnd Bandaríkj-
anna rústir einar eftir hamfarirn-
ar. Aðstoðarmenn Arnolds
Schwarzeneggers, ríkisstjóra
Kaliforníu, fengu að sjá myndina
fyrir frumsýningu, en þeir höfðu
áhyggjur af viðbrögðum almenn-
ings við myndinni. Sala á alls kyns
vörum sem þörf er fyrir eftir
náttúruhamfarir hefur aukist
mjög eftir fréttir af spá Keilis-
Boroks. ■
Það verður mikið húllumhæ í dag,á degi verkalýðsins, í listamið-
stöðinni Klink og Bank. Vanefni,
samsýning fimmtán listamanna,
verður opnuð í Græna sal miðstöðv-
arinnar og Tilraunaeldhúsið í
Berlín, Kitchen Motors, fagnar
fimm ára afmæli sínu. Sýningin er
opnuð klukkan þrjú en tónleikar Til-
raunaeldhússins hefjast tveimur
tímum seinna.
Vanefni
Hugtakið vanefni er runnið und-
an rótum Dieters Roth og veru hans
á Íslandi á sjötta áratugnum. Það er
ein skilgreing á þeirri myndalistar-
hefð sem einkennt hefur listasögu
Íslands í hátt í 50 ár.
„Samkvæmt skilgreiningu
Roths, á þeim tíma, getur allt verið
myndlist. Það er andinn sem skiptir
máli – hann getur verið gull en efn-
ið getur verið skítur,“ segir Unnar
Örn Auðarsson Jónasson, einn af að-
standendum sýningarinnar. Í kjöl-
far Roths fetuðu ýmsir íslenskir
myndlistarmenn í fótspor hans, þar
á meðal hin svokallaða Súm-kynslóð
sem gaf hinni viðteknu venju í
myndlist langt nef. Aðrar skilgrein-
ingar á sköpunarferlinu og hlut-
verki myndlistarinnar komu fram
og myndlistin hætti að standa fyrir
hið háleita; nánast guðlega, og oftar
en ekki íslenska náttúru.
Þriðja kynslóðin
„Á þeim tíma snerist myndlistin
fyrst og fremst um að ögra. Nú er
komin þriðja kynslóðin af myndlist-
armönnum sem er að vinna með
þessi efni og þá er eitthvað annað
farið að skipta máli,“ útskýrir Unn-
ar Örn. „Myndlistarmennirnir
verða undir áhrifum frá sögunni
eins og gerist alltaf. Sagan endur-
tekur sig en það gerist eitthvað á
leiðinni og það fer eitthvað af stað.“
Myndlistarfólk hefur haldið
áfram að vinna með efni sem þóttu
ögrandi á árum áður en í myndlist
þykir nú ekki tiltökumál að sjá skít
á gólfi eða vörðu hlaðna úr fransk-
brauði eins og forðum daga þegar
Súm-hópurinn hóf innreið sína.
„Við erum kannski að reyna að
komast að því af hverju það er enn
verið að vinna með þessi efni. Þetta
er orðið einhvers konar svið innan
myndlistarinnar og núna erum við
að reyna að endurskoða það,“ segir
Unnar.
Nýtt eða gamalt
Meðfram sýningunni verður gef-
inn út bæklingur þar sem utanað-
komandi fólk er fengið til að lýsa
hugtakinu vanefni. „Við erum að
reyna að finna út hvort við séum að
gera eitthvað nýtt eða hvort við
séum að nýta okkur hugtakið á ein-
hvern annan hátt. Þess vegna feng-
um við fólkið til að endursegja þetta
hugtak á einhvern
hátt. Það á síðan eftir
að koma í ljós hvort
við erum að gera eitt-
hvað nýtt,“ segir
Unnar Örn. „Það er
spurning hvort það er
endalaust hægt að
gera eitthvað nýtt
eða hvort við erum
bara að blanda gömlu
saman? Erum við
kannski með ein-
hverjar aðrar hug-
myndir en voru í
gangi fyrir fimmtíu
árum? Það er ekki
bara hugmyndin um
að ögra eða vera ljóðrænn heldur
eitthvað annað líka.“
Tabú verða alltaf til
„Það fer eftir því hvernig sagan
er. Ögrunin er fyndið fyrirbæri,“
segir Unnar Örn spurður að því
hvort ögrunin hafi toppað sig í
myndlist. Hann rifjar upp þegar
graffitilistamaðurinn Goldie kom
hingað til lands og spreyjaði mynd
af Vigdísi Finnbogadóttur á
skemmtistað og allt varð vitlaust í
kjölfarið „Þá mátti ekki segja neitt
um Vigdísi. En það
eru alltaf einhver
tabú og alltaf hægt að
ögra með þeim. En
það er spurning hvort
það sé endilega til-
gangurinn með verk-
inu. Myndlistin sem
við erum að gera er
ekki bara gerð til að
ögra, við erum ekki
að reyna að ögra
neinum nema okkur
sjálfum.“
Nýlega var ákveð-
ið að Listahátið 2005
verði helguð Dieter
Roth og forvitnilegt
verður að sjá hvernig hinn bylting-
arkenndi listamaður mun sóma sér í
sölum æðstu listastofnana landsins.
Opnun sýningarinnar í Klink og
Bank verður sem fyrr segir klukk-
an þrjú í dag og er aðgangur ókeyp-
is. Gestum og gangandi verður boð-
ið upp á kaffi og með því. Sýningin
verður opin til 23. maí, miðvikudaga
til sunnudaga frá klukkan tvö til
fjögur, eða eftir samkomulagi. Inn-
angengt er á sýninguna frá Brautar-
holti 1.
kristjan@frettabladid.is
SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR
Hún segir Steingrím J. vera jaxl af gamla
skólanum.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Formaður Vinstri grænna er maður að
skapi Sigrúnar.
Samsýning fimmtán myndlistarmanna hefst í Klink og Bank í dag. Sýningin, sem ber yfirskriftina Vanefni,
skírskotar til Dieters Roth sem túlkar allt sem myndlist.
Andinn er gull – efnið skítur
BIBBI CURVER
Birgir Örn Thoroddsen, eða Bibbi Curver, er meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni.
VANEFNI
Föngulegur hópur listamanna stendur að sýningunni í Klink og bank. Þar verður sýnt af
vanefnum á degi verkalýðsins.
MYNDLISTARMENNIRNIR
Á VANEFNUM
Björk Guðnadóttir
Birgir Örn Thoroddsen
Bryndís Ragnarsdóttir
Helga Óskarsdóttir
Huginn Þór Arason
Ingibjörg Magnadóttir
Ingirafn Steinarsson
Karlotta Blöndal
Páll Banine
Pétur Már Gunnarsson
Ragnar Jónasson
Ragnar Kjartansson
Rebekka Silvía Ragnarsdóttir
Svavar Pétur Eysteinsson
Unnar Örn Auðarson Jónasson
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
STAFLAR
Hér áður var staflað upp brauði á Skólavörðuholti. Í Klink og banka gefur að líta stafla af þvottatöskum.