Tíminn - 01.07.1973, Blaðsíða 29
Sunnudagur 1. júli 1073
TÍMINN
2?
Þriðja hjónaband banda-
ríska blaðamannsins Wyn
Sargent stóð í fimm vikur
og þar með öðlaðist hún
heimsfrægð. Hún giftist
höfðingja eins steinaldar-
þjóðflokksins í frum-
skógum Nýju Gíneu. Sjdlf
segist hún hafa gert það
til að koma á friði milli
stríðandi kynþóttanna
Sem höföingi má Obaharok eiga eins margar konur og hann sjálfur óskar. Wyn Sargent varö sú sjöunda
i rööinni. Hér er hamingjusamur eiginmaður meö hluta af fjölskyldunni.
fólk skuli hafa misskilið mig. Ef
ég hefði átt nokkra mánuði til við-
bótar með Obaharok hefði ég get-
að komið á varanlegum friði milli
kynflokkanna”, sagði hún.
Indónesisk yfirvöld voru ekki
sérlega hrifin af tiltektum Wyn
Sargent, og fimm vikum eftir
brúðkaupið var henni visað úr
landi.
„Wyn Sargent gróf undan við-
leitni yfirvalda til að koma á sið-
menningu meðal innfæddra”,
stóð i opinberri yfirlýsingu um á-
stæðuna fyrir brottvisun hennar.
Utan dagskrár var greint frá öðr-
um ástæðum. „Hún hljóp nakin
um og var aðeins að afla sér efnis
f skýrslu um kynlif. Loks var
höfðingjanum einnig nóg boðið.
Hann kastaði henni á dyr þvi hún
vildi ekki fullnægja kynferðisleg-
um skyldum hjónabandsins”.
Heima i Kaliforniu visaði hún
þessu á bug, og jafnframt þvi að
hún lét i það skina hvað hún væri
ungleg, tók hún fram að ekki hefði
verið um kynferðislegt samband
að ræða milli hennar og þriðja
manns hennar.
„Kynlif er ekki svo mikilvægt i
hjónabandi Papua. Karlmennirn-
ir lita á konur sinar sem stöðu-
tákn. Þær vinna nefnilega öll
störfin og maður, sem á margar
konur er þvi voldugur og áhrifa-
mikill”.
Hún neitaði þvi einnig að Oba-
harok hefði kastað henni á dyr.
Eiginmaður gefur konu sinni svin
sem tákn um skilnað. „Ég hef
enn ekki fengið aftur neitt af þeim
ellefu svinum, sem ég gaf honum
þegar við gengum i hjónaband.
Þess vegna erum við enn gift.
Nauðgun og dráp
Fólk Obaharoks tók sér nærri
að skiljast við hana, að þvi er
Wyn Sargent segir sjálf. — Það
grét og hún hefur siðar frétt að
Obaharok hafi fyrirskipað þjóð-
arsorg eftir burtför hennar. En
meðal Papua merkir það að allar
konur eigi að höggva einn lið af
fingri og mennirnir að sniða bita
úr eyra sér.
Wyn Sargent óttast ekki aðeins
að innfæddir hafi limlest sig. Hún
er einnig hrædd um að indónes-
iska lögreglan hafi stofnað til
fjöldamorða á þeim. Hún hefur
heyrt sagt að lögreglumenn hafi
nauðgað konum og drepið fjölda
karla.
,,Ég hef sjálf séð ör og sár, sem
þeir hafa hlotið i fyrri átökum við
lögreglu. Ef til vill er Obaharok
ekki einu sinni á lifi lengur”,
sagði hún.
Enginn veit, hvers vegna Wyn
Sargent giftist steinaldarhöfð-
ingjanum, en ef það var i frægð-
arskyni og'til að tryggja bók sinni
lesendur hefur henni tekizt það
sem hún ætlaði sér.
ÞýttSJ.
Vönduð og ódýr
Nivadá
svissnesk
gæða-úr
Magnús
Baldvinsson
Laugavegi 12
Sími 22804-
Við velium minÍBÍ
það borgar sig
mintal . ofnar h/f.
< Síðumúla 27 . Reykjavík
Simar 3-55-55 og 3-42-00
Við opnum
nýjum húsakynnum á
tánudaginn að
BIFREIÐASTILLINGIN
(áður Síðumúla 23)
Bragi Stefánsson
Ertu að byggja?
Viltu breyta?
Þarftu að bæta?
r
I
jlaver
Grensásvegi
iimm
■ i n i ■■
Gólfdúkur
Hollenzk og amerísk gæðavara
Fagmenn á staðnum.