Tíminn - 01.07.1973, Qupperneq 40

Tíminn - 01.07.1973, Qupperneq 40
MERKIÐ, SEM GLEÐUR Htttumst i haupfélaginu fyrir góöan mat $ KJÖTIDNAÐARSTÖO SAMBANDSINS Urgur eystra vegna Þjórsárbrúar við Sandafell —ódýrasta leiðin segirLandsvirkjun og Vegagerð HHJ-Rvik. Eins og kunnugt er af fréttum i Timanum er nú hafin vinna við nýja brú yfir Þjórsá við Efri-Klofaey undir Sandafelli. Vegagerðin annast brúarsmiðina fyrir Landsvirkjun, sem greiöir allan kostnað. Mikill urgur er i héraðsbúum vegna þessarar brúarsmiöar og telja menn eystra að nær hefði verið að gera Landvegi eitthvað betri og leggja veg upp frá Galta- læk og brúa Þjórsá við Þjórsár- holt i stað þess að setja brú á ána inni i óbyggðum. Ráðamenn Landsvirkjunar segja, að i sjálfu sér skipti það Landsvirkjun engu, þótt brúin yröi reist neðar, en hins vegar geti hún ekki greitt þann auka- kostnað, sem af þvi leiddi. Brú við Þjórsárholt er ekki á Vegaáætlun Aiþingis og þess vegna getur Vegagerð rikisins ekki heldur tekið þennan mun á sig, þvi að þessi áætlun sker Vegagerðinni stakkinn. Timinn hafði tal af nokkrum þeirra, sem hlut eiga að málinu, og leitaði álits þeirra og umsagn- ar um þetta vandamál. Getur haft áhrif á búsetu — Okkur finnst hér, að hyggi- legra hefði verið að bæta veginn upp Holt og Land og gera veg frá Galtalæk inn á stiflugarðinn, sagði Guðni hreppstjóri Kristins- son á Skarði i Landsveit. Siðast- liðinn vetur gekk undirskrifta- skjal á milli manna hér i sýslunni, þar sem skorað var á ráðamenn um vegamál að sinna þessu, en við höfum ekkert frá þeim heyrt. Fjöldi manna héðan úr sveitunum vinnur að framkvæmdum á Landmanna- og Holtamannaaf- rétti og þessi stóri krókur, sem menn verða að taka á sig niður alla Arnessýslu, getur haft heil- mikið að segja um búsetu þeirra. Landvegur er lika mikið notaður i sambandi við þessar fram- kvæmdir og spillist oft af þeim sökum, þvi að hann er alls ekki nógu sterkur. Við teljum, að það hefði orðið mun ódýrara fyrir Landsvirkjun og ríkið að fara að okkar ráðum um þetta. Smurt á þetta eins og pönnuköku Sigurjón Pálsson á Galtalæk sagði, að hver einasti maður, sem til hefði náðst hefði skrifað undir listann, enda kæmi brú langt inn i óbyggð byggðinni að harla litlu gagni. — Hver einasti maður, sem til náðist, skrifaði undir listann, sagði Sigurjón Pálsson á Galta- læk. Það er óhjákvæmilegt að endurbyggja Landveginn, þvi að öll vor er honum djöflað út, en aldrei lagað eða borið ofan i — ég kalla það ekki ofaniburð, þótt smurt sé á þetta eins og þegar sykri er smurt á pönnuköku. Svo þarf veg frá Galtalæk inn undir Búrfell, þvi annars verða menn héðan að fara langt niður i Arnes- sýslu til þess að komast heim til sin. Brúin þarna uppi við Sanda- fell er náttúrlega enginn tengilið- ur á milli sýslna. Þar að auki held ég að vandfundið sé verra brúar- stæði — brúin er reist þar, sem á- in fellur fram úr gljúfrinu og fer að breiða úr sér. 1 þessu efni þarf að sameina þarfir almennrar um- ferðar og bráðabirgðaþörf orku- veitnanna -- annað er bruðl meö almannafé. Þá er tveggja kosta völ: annað hvort að nota gömlu brúna hjá Þjórsártúni áfram og lagfæra Landveginn eða að reisa brú við Þjórsárholt og tengja hana vegum að austan og vestan. Brúarstæði er gott á þessum stað — áin þetta 50-70 m breið.að ég held og ekki nema nokkrir kiló- metrar að þjóðvegum i báðar átt- ir. Mesta ráðleysa — Upphleyptur vegur frá Galta læk inn að stiflunni er jafnvel mikilvægari en brú, sagði Guð- steinn Þorsteinsson i Köldukinn. Mér finnst þetta allt saman mesta ráðleysa — Þjórsárdalurinn er afleitur að vetrarlagi vegna snjóa. Auk þess er þetta svo bratt. Svo er lika mikil ismyndun i ánni og ómögulegt að segja hvað hún gerir, þegar hún bólgnar upp. Væri gerð brú við Þjórsárholt, þyrfti bara að leggja nokkurra kilometra veg frá ánni undir Skarðsfjall og austur á Landveg hjá Múla. Hinum megin er lika stutt á aðalveg. Við skiljum bændur vel Næst snerum við okkur að þeirn Landsvirkjunarmönnum. Eirikui Briem kvað brú við Þjórsárholt hafa orðið miklu dýrari en Sandafellsbrúin yrði, en visaði að öðru leyti til Vegagerðarinnar. Páll Flygenring yfirverk- fræðingur sagöi Búrfellsbrúna ekki ætlaða til þungaflutninga. A Framhald á bls. 39. Athugasemdir og skýringar Þessa áætlun, sem hér fylg- ir, geröi Vegagerð rikisins núna I vor svo að ekki ætti að skakka miklu um kostnaðar- tölur. Ennfremur er þaö viö grein- argerðina að athuga, að hefði leiö 1 eða 2 verið valin, hefði heildarkostnaður i rauninni hækkað sem svarar kostnaði viö brú fyrir létta umferð uppi við Sandafell sem talin er nauðsynleg, eða um 30 millj- ónir, að þvi er Vegageröin áætlar. Þegar litið er á kortið, ber að athuga, að breið heildregin Hna táknar fullgerðan veg, rofin lina eða brotin táknar veg, sem talinn er ófullnægj- andi, en tvær mjóar órofnar samhliða linur merkja, að þar cr vegar vant. Kortið veit ekki rétt við átt- um, en það sér auðvitað hver maður um lcið og litið er á kortið. Vegasamband við Sigölduvirkjun frá vegamótum Suðurlandsv. og Hrunamannav. 1. Leiöin upp Skeið og Þjórsárdal að Sandafelli þaryfir Þjórsá á Sprengisandsveg. A-B-C. 2. Leiöin upp Skcið aö Þjórsárholti, þar yfir Þjórsá að Skarði, upp Land og á nýja veginn við Búrfell. A-B-E-C 3. Leiðin eftir Suöurlandsvegi yfir Þjórsá hjá Þjórsártúni, upp Landveg og á nýja veginn hjá Búrfelli. A-D-E-C. Lengd km 1. Upp Skeið og Þjórsárdal aö Sanda- felli og þar yfir Þjórsá. 2. Upp Skeið aö Þjórsárholti og þar yfir Þjórsá og síðan upp Land 75 3. Eftir Suöurlands- vegi aö I.andvegi uppLandveg. 79 Vegagerðar- kostn. m. kr. 8 55 50 Brúageröar- kostn. m. kr. 30 55 10 Samt. kostn. m. kr. 38 110 60 mM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.