Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 21
Fjársöfnun fyrir barna- og unglingageðdeild Undanfarin misseri hefur umræða um ónóga þjónustu fyrir börn og unglinga með geðraskanir verið áberandi. Sveitarfélögum ber að veita grunnþjónustu vegna geð- og þroskaraskana innan heilsugæslu, skólasálfræðiþjónustu og félags- þjónustu en ljóst er að víða er þjón- ustu þeirra ábótavant ekki ein- göngu vegna skorts á fjármunum heldur líka vegna vöntunar á fag- legu baklandi. Sjálfstætt starfandi fagfólk á ýmsum sviðum veitir þjónustu sem foreldrar greiða fyrir eða sveitarfélög eða ríkið kaupir í gegnum Tryggingastofnun hvað varðar lækna, hjúkrunar- fræðinga, sjúkra- og iðjuþjálfa. Loks rekur svo ríkið sérhæfðar deildir og stofnanir á þessu sviði. Burðarásinn í geðheilbrigðis- þjónustu fyrir börn og unglinga hvað varðar greiningar og með- ferðarúrræði, rannsóknir, hand- leiðslu og kennslu hefur verið hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, BUGL. Bráðamálum og tilvísun- um á göngudeild BUGL hefur fjölgað verulega undanfarin ár sem og innlögnum á legudeildir. Nú er svo komið að LSH og heil- brigðisráðuneytið hafa sammælst um löngu tímabæra stækkun BUGL. Ýmsar útfærslur hafa verið lagðar fram sem enn eru til skoðun- ar hjá skipulagsyfirvöldum Reykja- víkurborgar. Fyrirliggjandi áætlun heilbrigðisyfirvalda gerir ráð fyrir um 1.400 fm stækkun sem er allt að tvöföldun á núverandi húsnæði. Með stækkuninni verður hægt að bjóða upp á sérhæfða og rýmri að- stöðu til greiningar og meðferðar. Grundvallaratriði er að tryggja börnum og unglingum með geðrask- anir nauðsynlegan stuðning innan fjölskyldu og skóla sérstaklega, en margvísleg meðferð fer fram á BUGL. Má þar nefna viðtöl við barnið/unglinginn, foreldra eða fjöl- skylduna alla, ýmiss konar þjálfun barns/unglings eða foreldra, stund- um í hópum, listmeðferð, atferlis- mótandi meðferð á dag- og legu- deildum auk lyfjameðferðar þegar hún á við. Með áætlaðri nýbyggingu mun aðgengi batna, biðaðstaða göngudeildar verða mannsæmandi og nauðsynlegt rými fást til með- ferðar í göngu-, dag- og legudeild- um. Ýmsir velunnarar BUGL hafa komið að uppbyggingarstarfinu en stærsta framlagið kemur frá kven- félaginu Hringnum eða 50 milljónir króna. Auk þess hefur fjöldi fyrir- tækja, félagasamtaka og einstak- linga lagt sitt af mörkum. Þá hafa stjórnvöld gefið fyrirheit um fjár- mögnun að hluta til. Þó að um 150 milljónir króna séu tryggðar vantar enn a.m.k. jafn háa upphæð til þess að hægt sé að hefjast handa og ljúka framkvæmdum. Kiwanishreyfingin hefur um árabil lagt lóð sín á vogar- skálar geðheilbrigðis, t.d. stóð hreyfingin fyrir því árið 1996 að BUGL fékk íbúð til afnota fyrir for- eldra og fjölskyldur af landsbyggð- inni sem sækja þurfa þjónustu deildarinnar en sú íbúð hefur nýst afbragðsvel. Nú ætlar Kiwanis að bæta enn um betur með landssöfn- uninni „Lykill að lífi“ 7.-10. október. Með kaupum á K-lyklinum í ár get- ur þú lagt þitt af mörkum til vel- ferðar barna- og unglinga á Íslandi. Höfundur er yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar LSH, BUGL. ■ 21FIMMTUDAGUR 7. október 2004 Ranglæti í fortíð og nútíð Í hæstarétti sitja níu dómarar og þar af eru tvær konur. Vefþjóðviljinn tekur ekki undir með Guðmundi [Magnússyni í grein í Fréttablaðinu] að skipa eigi konu vegna þess að karlar voru oftar skipaðir fyrr á árum eða séu fleiri nú í réttinum. Það er ekki sanngjarnt gagnvart um- sækjendum að fortíðin, sem þeir eiga enga aðild að, sé notuð þannig gegn þeim. Fortíðin verður ekki leiðrétt með ranglæti í nútíð. Vefþjóðviljinn á andriki.is Manneldisráð samsæri komm- únista Ákveðinn hluti þeirra sem að ríkisstjórn- inni standa virðist t.d. trúa því að Mann- eldisráð sé í reynd afraksturinn af sam- særi kommúnista um að klekkja á Vífil- felli og sólunda sem mestu skattfé í leiðinni. Ekki þarf annað en að hvísla orðið „neyslustýring“ á tilteknum sam- komum til að fundarmenn byrji að flá tennurnar. Önnur fylking meðal stuðn- ingsmanna stjórnarinnar – en hún fer reyndar ört minnkandi – tekur það gjarnan sem bæði persónulega og póli- tíska árás ef hallað er orði á feitt kjöt. Þar fyrir utan, og í alvöru talað, er ekki laust við að næringarfræðin þurfi að endurheimta trúverðugleika sinn eftir æði sveiflukenndar ráðleggingar undan- farna áratugi. Á köflum hefur bjargvætt- ur dagsins verið bráðdrepandi að morgni. Stefán Heiðarsson á murinn.is Misnotkun á aðstöðu Sá sem gegnir embætti eins og emb- ætti forseta Alþingis er, verður vita- skuld að bera virðingu fyrir sjálfum sér og embættinu sem honum er trúað fyrir. Hann á ekki að misnota aðstöðu sína til að fara í pólitískan bófahasar. Þá verður hann a.m.k. að víkja úr for- setastóli á meðan. Ég er t.d. viss um að sjálfstæðismenn í borgarstjórn myndu ekki una því að ég sem forseti borgar- stjórnar myndi nota forsetastólinn þar til að ráðast að ríkisstjórn sjálfstæðis- manna í einhverju tilteknu máli. Enda myndi ég aldrei gera það. Ætli menn sem gegna slíkum trúnaðarstörfum að fara í pólitískan slag, verður að gera það á þeim vettvangi þar sem slíkt á við, og þar sem hin pólitíska umræða getur farið fram. Árni Þór Sigurðsson á vg.is/postur Taktlaus forseti Alþingis Forseti Alþingis er taktlaus maður. Hvort sem við kennum um skorti á til- finningu fyrir hinni hátíðlegu stund sem setning Alþingis er eða við skell- um skuldinni á frekju og yfirgangssemi þá fór hann yfir strikið í setningarræðu sinni. Það er svo sem erfitt að tjónka við fullorðinn mann og skamma hann fyrir taktleysi sitt en fólk gerir sér sem betur fer grein fyrir hvenær nóg er komið. Þeir alþingismenn sem gengu út á meðan á ræðunni stóð og sýndu með því vanþóknun sína á dómgreind- arleysi forseta Alþingis fengu sig full- sadda af dónaskapnum og beittu þeirri aðferð sem þeir höfðu úr að spila til að siða hæstvirtan forseta. Þetta var smekklega gert. Ekki með látum og veseni heldur táknræn athöfn sem bar virðingu fyrir tilefninu en það er hrein- lega ekki hægt að sitja undir öllu. Elín Birna Skarphéðinsdóttir á poli- tik.is AF NETINU 20% afsláttur www.utilif.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 60 90 10 /2 00 4 Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni 575 5100 Meindl gönguskór Dæmi: Meindl Island Heil tunga og sérlega vandaður frágangur. Frábærlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42). Vatnsvörn og útöndun með Gore-Tex. Úrvals vibram veltisóli með fjöðrun. Mjög góður stuðningur við ökkla. Fáanlegir í herra- og dömustærðum. Sérfræðingar í öllum verslunum okkar leiðbeina um val á gönguskóm. af öllum gerðum í 3 daga Verð 18.390 kr. Verð áður 22.990 kr. ÓLAFUR Ó. GUÐMUNDSSON LÆKNIR UMRÆÐAN LANDSSÖFNUN KIWANIS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.