Fréttablaðið - 07.10.2004, Page 26

Fréttablaðið - 07.10.2004, Page 26
Farðu út í garð eða næsta göngustíg og tíndu flott lauf og greinar sem þú finnur. Keyptu þér ramma með engu gleri. Festu laufið eða greinina á vegg og hengdu rammann síðan upp. Þá er bakgrunnur rammans bara litur veggjarins og laufin fá að njóta sín. Öryggis- hurðir B Í L S K Ú R S OG IÐNAÐAR H U RÐ I R Smíðað eftir máli Hurðir til á lager Eldvarnar- hurðir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 LISTASMIÐJAN KERMIK OG GLERGALLERÝ Kothúsum, Garði , s: 422-7935 Opið alla daga: Mánudaga- föstudaga 10-18 Laugardaga og sunnudaga 13-18 Námskeið að hefjast í glerbræðslu og keramikmálun. Einnig fyrir hópa Hnífapör frá Boda Nova Falleg hönnun DUKA vandaðar heimilis og gjafavörur „Við kærastinn minn fluttum til Berlínar haustið 1996 og tókum með okkur búslóðina. Það fór ekki betur en svo að allt var skemmt, meðal annars forláta antíksófi sem við áttum,“ segir Sesselja Kristjánsdóttir óperusöngkona um sögu fjöl- skyldusófans. „Við fengum bætur úr tryggingun- um en vorum sófalaus og fórum því að leita að staðgengilssófa. Einn daginn rakst ég á bólstrara á markaði í Berlín sem seldi húsgögn sem voru bólstruð með nautsleðri. Ég spurði hvort hann ætti sófa og hann bauð mér í heimsókn á vinnustofuna sína. Við fórum þangað og þá var hann þar með alls konar handónýtar sófagrindur. Við völdum okkur eina og ætluðum svo bara að láta hann bólstra hana með efni því okkur fannst að leðrið hlyti að vera of dýrt. Hann sagði okkur þá að sér þætti mjög leiðinlegt að bólstra með efni og spurði hvað við hefðum efni á því að borga mikið fyrir sófa. Við nefndum tryggingaupphæðina fyrir gamla sófann og hann lét okkur fá grindina sem við völdum, bólstraða með fínasta nautsleðri.“ Og þetta reyndust mikil kjarakaup. „Sófinn er frábær, hann er svo breiður að það geta tveir legið í honum og horft á sjónvarpið og það er hægt að þurrka úr honum með tusku. Hann er barnvænn og sulluvænn og því hinn besti fjölskyldusófi.“ Sesselja syngur í óperunni Sweeney Todd en verður leyndardómsfull á svip þegar hún er spurð út í hlutverkið sem hún syngur í óperunni um rak- arann blóðþyrsta: „Hlutverkið gengur undir nafninu betlikellingin og það borgar sig ekki að segja neitt of mikið frá henni og örlögum hennar því það skemmir fyrir áhorfendum. Hún vekur forvitni, það er það eina sem ég vil segja.“ Aðspurð um hvort hún hafi nokk- uð fengið skrýtnar hugmyndir við að æfa þessa blóðugu óperu segir hún :„Ég held að sófinn minn sé ekki úr höfuðleðrum. Bútarnir eru of stórir til að geta verið mannshúð.“ brynhildurb@frettabladid.is Hjörtur Nielsen bregst við stellstressi: Tilboðsverð ef pantað er í tíma „Við lendum svo oft í því að fólk kemur rétt fyrir jól og vill kaupa heilt stell. Þá er það stell sem það valdi sér stundum búið og þá verður fólk oft fyrir vonbrigðum. Einnig kemur oft fyrir að fólk neyðist til að kaupa eitthvað ann- að stell sem því líkar ekki eins vel við og þess vegna viljum við ýta við fólki að ganga frá þessum kaupum snemma,“ segir Margrét Rögnvaldsdóttir, eigandi verslun- arinnar Hjartar Nielsen ásamt Hlín Kristinsdóttur. Til að sporna við þessu stressi býður verslunin upp á gott tilboð þessa dagana. Fólk getur pantað stell að eigin vali fyrir 10. október og þá er pottþétt að það berist fyrir jól. Ekki skemmir fyrir að tuttugu prósenta afsláttur er af öllum stellum í versluninni ef þessi pöntunarþjónusta er nýtt. Verslunin Rosenthal sameinað- ist Hirti Nielsen í apríl á þessu ári og af þeim sökum er verslunin með um þrjátíu stell á lager. Einnig er hægt að panta ótal mörg stell úr vörulista verslunarinnar. Vert er að taka fram að öll stell úr versluninni mega fara í upp- þvottavél. „Það er mjög algengt í Evrópu að panta þurfi stell með góðum fyrirvara og er það gert til að lækka verð bæði kaupandans og verslunarinnar. Við stefnum að því að bjóða upp á þessa þjónustu allt árið um kring en lágmarks- pöntun til að nýta sér þessa þjón- ustu er sex manna stell og þrír fylgihlutir,“ segir Guðný en þess má geta að Hjörtur Nielsen er elsta starfandi sérverslun með postulínsgjafavörur á Íslandi. lilja@frettabladid.is Sesselja í fjölskyldusófanum góða. Sesselja Kristjánsdóttir: Sófinn er líklega ekki úr höfuðleðrum Margrét Rögnvaldsdóttir og Hlín Krist- insdóttir eru eigendur verslunarinnar Hjartar Nielsen í Smáralind. Glæsileg stell úr versluninni. Öll stellin mega fara í uppþvottavél.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.