Fréttablaðið - 07.10.2004, Side 28

Fréttablaðið - 07.10.2004, Side 28
Taktu flugið flugfelag.is | 570 3075 | hopadeild@flugfelag.is Komdu hópnum þínum á óvart! Við gerum hópnum þínum frábær ferðatilboð til allra áfangastaða okkar innanlands og til Færeyja. hopadeild@flugfelag.is (Lágmarksfj. er 10 manns.) FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, sími 511 1515 netfang: outgoing@gjtravel.is heimasíða: www.gjtravel.is SKÍÐAFERÐ TIL SVISS UM PÁSKANA Enn býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar páskaferð til hins frábæra skíðastaðar Crans Montana í Sviss. Flogið verður um Kaupmannahöfn til Genfar þann 18. mars og heim aftur sömu leið þann 27. mars. Í Crans Montana verður gist á Grand Hotel du Parc, sem er fjögurra stjörnu hótel, og farþegum okkar vel kunnugt fyrir góða þjónustu, stað- setningu og almenn gæði. Crans Montana er úrvals skíðasvæði og mjög snjóöruggt, lyftugeta mikil og lyftur allar mjög nýlegar. Verð á mann frá 119.700,- krónum Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli Genfar og Crans Montana við komu og brottför, gisting í 9 nætur í tveggjamanna herbergi, morgunverður og íslensk fararstjórn (Lágmarksfjöldi er 20 manns) Fararstjóri er William Þór Dison Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Færð þú MasterCard Ferðaávísun? Að vinna að sjálfboðastörfum er gott tækifæri til þess að læra tungumál og kynnast framandi menningu. Dvölin hefst á málanámi og undirbúningi fyrir störf hjá hjálparstofnunum, þjóðgörðum og við samfélagsþjónustu. Guatemala, Costa Rica, Su›ur Afríka og Perú „Skemmtilegasta ferðalag sem ég hef farið í var til Túnis,“ segir María Reyndal leikstjóri ákveðin en hún fór þangað í apríl 1996. „Ég var í leiklistarskóla í London og við hjónin urðum að komast í smáfrí. Við fengum ódýra ferð til Túnis og hoppuðum þang- að án þess að hafa skipulagt nokkuð. Við fórum á túristastað aðeins fyrir utan höfuðborgina, svona sólbaðsstað en af því að þetta var í apríl var ekki mikið af fólki. Það sem var sennilega merkilegast fyrir okkur að upplifa var menningarsamfélagið sem var svo ólíkt okkar að við göptum oft á dag. Það er t.d mjög algengt að sjá karlmenn haldast í hend- ur úti á götu og jafnvel kyssast en konur sjást varla nema á sunnudögum klukkan þrjú þegar þær fara í gönguferðir með tilvonandi eiginmönnum sínum. Annars var það alltaf sama sagan hvert sem við fór- um, til dæmis á veitingastöðunum, ég og fimmtíu karlmenn og hvergi konu að sjá,“ segir María og viðurkennir að það hafi verið svolítið skrýtið. En ferðin var að öllu leyti frábær. „Við gerðum svo margt skemmtilegt, skoðuðum fornleifar, leigðum okkur vespu og fórum upp í fjöll að drekka ótrúlega gott kaffi og fórum út á bát. Það má eiginlega segja að þetta frí hafi verið allt með öllu. Þetta var ekki stressferð og ekki vinnuferð, frí og slökun en samt upplifðum við svo margt að við komum endurnærð, breytt og betri til baka.“ María kemst ekki mikið í frí þessa dagana því hún er svo mikið að leikstýra. Geitin í leikstjórn hennar var frumsýnd í Borgarleikhúsinu um síð- ustu helgi og þegar þetta viðtal birtist verður hún á Akureyri að leggja síðustu hönd á fyrstu frumsýn- ingu vetrarins hjá Leikfélagi Akureyrar á einþátt- ungunum Ausu eftir Lee Hall og Stólunum eftir Ionescu. brynhildurb@frettabladid.is Í Öxnadalnum – þar sem háir hól- ar hálfan dalinn fylla – er lítið og snoturt veitingahús sem heitir Halastjarnan. Húsfreyja er Guð- veig Anna Eyglóardóttir er hóf reksturinn snemmsumars og hef- ur veitingasöluna nú opna á föstu- dags- og laugardagskvöldum, auk þess sem hún tekur á móti litlum hópum sem panta með smá fyrir- vara. Salurinn tekur 16-20 manns í sæti og auk þess er vistleg setustofa í viðbyggingu. Inn- anstokksmunir eru blanda af antík og austurlenskum stíl og þá kveðst Guð- veig Anna hafa keypt sjálf þótt hún leigi húsnæð- ið. Í Halastjörn- unni býður hún upp á fjögurra til fimm rétta máls- verð sem getur verið ólíkur frá degi til dags. „Við látum fólk ekki vera með valkvíða yfir einhverj- um matseðli heldur ákveðum sjálf hvað borið er fram hverju sinni og það hefur gefist vel. Við köllum þetta fyrirkomulag „kenjar kokks- ins“,“ segir hún. S t a ð u r i n n heitir Háls og er næsti bær við Hraun þar sem Jónas Hall- grímsson fæddist. Anna segir anda listaskáldsins svífa yfir vötnum og í umræðu sé að setja upp fræðaset- ur á Hrauni í minningu þess. „Öxnadalurinn er allur að lifna við,“ segir hún brosandi og kveðst ánægð með hve duglegir Norð- lendingar hafi verið að heimsækja hana. „Enda er bara 20 mínútna akstur hingað frá Akureyri,“ bend- ir hún á. Þótt Guðveig Anna sé aðeins 28 ára hefur hún starfað sem aðstoð- arhótelstjóri á Búðum í fimm ár. Hún kveðst fyrir löngu hafa hugs- að sér að opna svona sælkerastað og láta hann heita Halastjörnuna. Vissi bara ekki hvar á landinu það yrði. Nú hefur draumurinn ræst – í Öxnadalnum ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N María Reyndal leikstjóri fer ekki mikið í skyndiferðalög á næstunni. María Reyndal leikstjóri hoppaði út í heim: Skyndiferð til Túnis Halastjarnan í Öxnadal: Býður upp á kenjar kokksins Þegar pakkað er fyrir ferðalög, hve löng sem þau eru, þá gleymast litlir nauðsynjahlutir yfirleitt. Ekki gleyma tannbursta, tannkremi, rakvél eða málningunni. Það er alveg nauðsynlegt. Halastjarnan er í huggulegum bæ á jörðinni Hálsi. Þar býr Guð- veig Anna með ketti, hund og nokkur hross. Kannski bætast hænur í húsdýrahópinn næsta sumar. Guðveig Anna tekur sjálf á móti sínum gestum en hefur yfirleitt kokka bak- sviðs til að elda. Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is MÁNUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.