Fréttablaðið - 07.10.2004, Page 45

Fréttablaðið - 07.10.2004, Page 45
FIMMTUDAGUR 7.október 2004 ■ FÓLK ■ FÓLK M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 0 0 4 / L JÓ S M Y N D IR : Þ O R K E L L Þ O R K E L S S O N Íslendingar sýndu samtakamátt sinn í verki á laugardaginn. Yfir tvö þúsund sjálfboðaliðar gengu til góðs og alls söfnuðust tæplega 30 milljónir króna. Söfnunarféð verður nýtt óskipt til hjálpar stríðshrjáðum börnum, m.a. í Sierra Leone og Palestínu. Rauði kross Íslands þakkar sjálfboðaliðum óeigingjarnt starf og landsmönnum góðar móttökur og hlýhug. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ Björgólfur Guðmundsson Rannveig Rist Þórey Edda Elísdóttir Magnús Scheving Julianna Rose Mauriello Dorrit Moussaieff Simmi og Jói Baugur Group Íslandsbanki MasterCard/Kreditkort KB banki Olís Samskip Síminn Toyota/P. Samúelsson VISA Ásbjörn Ólafsson Danól Dikta Frank og Jói Freyja sælgætisgerð Fréttablaðið Hnit Handknattleikssamband Íslands Íslandspóstur Íslandsspil Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands Kaffibrennslan Kassagerð Reykjavíkur Knattspyrnusamband Íslands Laugarásbíó Mátturinn og dýrðin McDonalds á Íslandi Morgunblaðið Nói Siríus O. Johnson & Kaaber Rekstrarvörur www.redcross.is ÞÖKKUM STUÐNINGINN Sérstakar þakkir fá eftirtaldir einstaklingar og fyrirtæki, sem styrktu átakið með margvíslegum hætti: Smáralind Sorpa Sómi Spessi Spron Útivist & sport Vífilfell Vísir.is Þorkell Þorkelsson Ölgerðin Egill Skallagrímsson Saksóknarann burt Lögfræðingar Michaels Jackson hafa farið þess á leit við dómstóla í Santa Barbara að saksóknarinn sem hefur sótt mál hans vegna ásakana um kynferðisbrot gegn börnum verði látinn víkja. Lög- fræðingarnir lögðu beiðnina fram á mánudag en gáfu ekki upp ástæðu þess að saksóknarinn ætti að víkja. Robert Sanger, lögfræðingur poppgoðsins, sagði nauðsynlegt að halda málinu leyndu þar sem það gæti komið upp um hluti tengda málinu sem og vitni. Dómarinn í máli Jacksons hefur einnig haldið málinu leyndu og segist ætla að gera það áfram. Málið telst nokkuð óvenjulegt því oftast þegar farið er fram á að saksóknarar víki er það vegna per- sónu- eða viðskiptaárekstra. Að mati sérfræðinga yrði það mjög óvenjulegt ef saksóknarinn yrði látinn víkja þar sem um slíkt er ekki að ræða. Jackson, sem er 46 ára, hefur neitað sök um að hafa misnotað tíu börn. Hann á að mæta fyrir rétt þann 31. janúar á næsta ári. ■ MICHAEL JACKSON Lögfræðingar hans vilja að saksóknarinn verði látinn víkja en gefa ekki upp skýringu á málinu. Eiturlyfjafíkill hótaði Fran Healy, söngvara skosku hljómsveitarinn- ar Travis, með sprautunál þegar sveitin tróð óvænt upp á Sauchi Hall Street í Glasgow á þriðjudag. Stuttu eftir að tónleikarnir hófust kom eiturlyfjafíkill upp að Healy vopnaður nál og bað hann um peninga fyrir næsta skammti. Healy var að vonum brugðið en hélt sínu striki. Þá gekk eitur- lyfjafíkillinn burt. „Það eina sem ég gat hugsað um var að hann myndi stinga mig. Þetta er eitt það klikkaðasta sem ég hef lent í. Ég bjóst alveg eins við því að hann myndi stinga nál- inni upp í afturendann á mér,“ sagði Healy eftir tónleikana. ■ Healy hótað með sprautunál FRAN HEALY Eiturlyfjafíkill hótaði að stinga söngvarann, sem hélt þó sínu striki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.