Fréttablaðið - 07.10.2004, Síða 46

Fréttablaðið - 07.10.2004, Síða 46
7. október 2004 FIMMTUDAGUR Það er ekki alveg vitað af hverju Brian Wilson lagði plötuna SMiLE á hilluna, eftir að hafa unnið að henni undir merkjum The Beach Boys í rúmt ár fyrir 37 árum. Sumir vilja kenna LSD-notkun Wilsons um, aðrir brothættu sam- bandi við fjölskyldu hans, aðrir að hann hafi ekki þolað samkeppnina við Bítlana og enn aðrir því að hinum liðsmönnum The Beach Boys hafi fundist platan of fram- andi fyrir sveitina og efast í fyrsta skiptið um svokallaða „snilligáfu“ Brians. Það að texta- höfundurinn Van Dyke Parks hafi yfirgefið verkefnið, sem átti að verða „Táningasinfónía til Guðs“, hefur svo líklega verið spark í punginn. Pressan frá útgáfufyrir- tækinu hefur svo ekki verið mjög uppbyggjandi heldur, enda Brian löngu fallinn á skilatíma. Hverjar sem ástæðurnar voru, þá fékk Brian Wilson taugaáfall og eyddi mestum hluta áttunda áratugarins í rúminu. Eftir að Pet Sounds sló í gegn árið 1966 var Brian fullur af sjálfs- öryggi. Hann var þá löngu hættur að fara í tónleikaferðir með The Beach Boys. Hann lét hina um að ferðast og kynna lögin á meðan hann hélt áfram að smíða hvern slagarann á fætur öðrum í hljóð- verinu. Hann hafði stórtækar hugmynd- ir um næstu plötu og ætlaði sér að skila sínu meistarastykki. Hann var yfir sig heillaður af Bítlaplöt- unum Revolver og Rubber Soul og var staðráðinn í því að gera betur. Hans hugmynd um hina „full- komnu plötu“ var að hanna eitt- hvað sér-bandarískt. Plötu sem reyndi að fanga kjarna Bandaríkj- anna á 50 mínútum. Til þess að sjá þennan draum rætast réð Wilson til sín dópfélaga sinn, Van Dyke Parks, til þess að semja súrrealíska texta. Í ágúst 1966 var lagt í það að hljóðrita meistarastykkið. Þetta ætlaði Wilson að gera með því að taka upp plötuna í litlum pörtum, í mismunandi hljóðverum, og raða svo bútunum saman í eina heild. Í mörgum bútunum vann Wilson með stærðarinnar hljóm- sveitir, með fjölda blásturs- og slagverksleikara. Sérviska Wil- sons þótti heldur betur undarleg. Hann krafðist þess til dæmis að allir liðsmenn hljómsveitarinnar settu á höfuð sér brunahjálma við upptökur lagsins Fire (sem heitir víst Mrs. O’Leary’s Cow í dag). Bri- an kveikti líka lítið bál í ruslatunnu hljóðversins til að fanga réttu stemninguna. Þegar hann frétti svo af því að vöruhús í nágrenninu hefði brunnið til grunna kenndi hann sjálfum sér um. Wilson átti það líka til að biðja alla sveitina um að hrína eins og svín. Fáir skildu hvað Wilson var að reyna að skapa. Í janúar 1967 var það sem átti að vera fyrsta smáskífulagið af plötunni, Good Vibrations, búið að seljast í tveimur milljónum ein- taka og pressan á Wilson að klára meistarastykkið sitt orðin heilmik- il. Van Dyke Parks var þá byrjaður að huga meira að sínum eigin ferli en að klára SMiLE og öllum að óvörum lagðist Wilson í gífurlegt þunglyndi í febrúar sama ár og hætti allri vinnu að plötunni. Hann var þá orðinn frekar skemmdur eftir stöðuga LSD-notkun frá árinu 1965. Á þessum tíma var þegar búið að prenta 400 þúsund eintök af umslagi plötunnar, sem svo hafa aldrei verið notuð. Segulböndin fóru í geymslu hjá Capitol-plötu- fyrirtækinu. Nokkur laganna birt- ust þó í vatnsþynntum útgáfum hinna strandadrengjanna á plöt- unni Smiley Smile, en sú plata var ljósár frá meistarastykki Wilsons. Í gegnum árin hafa svo brota- brot af plötunni birst hér og þar á safnboxum um The Beach Boys auk þess sem safnarar hafa sett saman „bootleg“-útgáfur með því að raða saman brotum hér og þar, eftir hálfkláruðum leiðbeiningum. Svo í fyrra gerðist hið stórkost- lega. Brian Wilson kláraði plöt- una. Það eigum við að þakka manni sem heitir Darian Sahanaja sem hefur verið hljómborðsleik- ari og bakraddasöngvari í tón- leikasveit Wilsons um árabil. Hann raðaði saman SMiLE á tölvu sína og endurvakti áhuga Wilsons á verkefninu þegar hann spilaði þetta fyrir hann. Á fáránlega skömmum tíma kláruðu Van Dyke Parks og Wilson að setja verkið saman og fóru svo á tónleika- ferðalag til þess að spila meistara- stykkið sem aldrei kom út. Þegar SMiLE var frumflutt í London í fyrra var talað um að fullvaxta menn hefðu brostið í grát. Því næst var ráðist í að endur- hljóðrita alla plötuna. Í síðustu viku kom svo hið týnda meistara- stykki Brians Wilson í búðir, und- ir hans eigin nafni. Gagnrýnend- ur um allan heim virðast sam- mála um að Wilson hafi loksins náð að skapa það meistarastykki sem hann ætlaði sér fyrir 37 árum síðan. Við getum brosað á ný. biggi@frettabladid.is Brian brosir enn á ný SMILE: KEMUR ÚT EFTIR 37 ÁRA HLÉ. VIÐ HLJÓÐNEMANN SMiLE átti að vera meistaraverk Beach Boys. BRIAN WILSON Enginn skildi af hverju hann lagði SMiLE á hilluna og komu fram margvíslegar skýringar. Í febrúar 1967 hætti hann að vinna að plötunni þegar hann varð óstarfhæfur vegna þunglyndis. Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is Í spilaranum hjá ritstjórninni Brian Wilson: SMiLE, Interpol: Antics, R.E.M.: Around the Sun, The Birthday Party: The John Peel Sessions, The Bonzo Dog Band: Vol.1 The Intro, Dusty Springfield: Am I the Same Girl?, Bubbi: Tvíburinn, Hot Chip: Coming on Strong og Portishead: Dummy. söngkabarett - eftir frumsýningu er dansleikur með... ÁRA SÖN GAF MÆ LI50 RAGGI BJARNA Ekki missa af þessu einstaka tækifæri! Vegna fjölda áskoranna verður aukasýning 15. október Glæsilegur þriggja rétta matseðill. Aðgangseyrir á söngskemmtun 2.500 en kr. 5.900 með mat. Miðasalan opin alla virka daga til kl. 18:oo Nánari upplýsingar í síma 533-1100 og á www.broadway.is St af ræ na h ug m yn da sm ið ja n Fimm stelpur Uppistand á Broadway AÐEINS TVÆR SÝNINGAR EFTIR! Næsta sýning föstudaginn 8.október Síðasta sýning fimmtudaginn 21.október Frumsýning 9. október - Laus sæti Brimkló laugardaginn 9. október Rokkarinn Marilyn Manson er al- deilis að stokka upp í sínu lífi þessa dagana. Hann gaf á dögunum út safn sinna vinsælustu laga og sýnir í fyrsta skipti tákn þess að hann ætli sér að sökkva örlítið í leðursófasett- ið sitt. Hann ætlar nefnilega að gifta sig í Berlín á næstunni. Manson, sem heitir réttu nafni Brian Warner, leitar nú að kastala í borginni til þess að halda brúð- kaupsveislu sína og kærustunnar Dita von Teese. Brian er kominn á fjölskyldualdurinn, 35 ára gamall, en kærastan er þremur árum yngri. Von Teese er nektarfyrirsæta auk þess sem hún hannar undir- föt. Hún skrifaði einnig bók, og gaf út, sem fjallaði um þá list- grein að fækka fötum í takt við tónlist. Nokkuð sem Manson kann örugglega að meta. Brúðkaupið á að fara fram í nóvember, þegar söngvarinn verður staddur í borginni fyrir tökur á kvikmynd. Spurningin er bara hvort verður í fallegri sokka- buxum, Manson eða brúður hans? Á nýju safnplötunni, sem ber nafnið Lest We Forget, má finna öll hans vinsælustu lög, eins og Beautiful People, The Dope Show, mOBSCENE, Tainted Love, This Is the New Shit, Sweet Dreams og Personal Jesus. ■ Marilyn Manson upp að altarinu MARILYN MANSON Kannski ekki draumatengdasonurinn, en hann hefur fundið draumadísina.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.