Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 48
7. október 2004 FIMMTUDAGUR ■ TÓNLEIKAR Benjamin Britten ::: Russian Funeral Gustav Mahler ::: Kindertotenlieder Dímitríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 5 í d-moll, op. 47 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einsöngvari ::: Ólafur Kjartan Sigurðarson Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Rauða röðin byrjar með látum Fá tónverk tuttugustu aldar hafa notið jafn mikilla vinsælda og fimmta sinfónía Sjostakovítsj og sagt er að fagnaðarlæti áheyrenda eftir frum- flutninginn hafi næstum staðið jafn lengi yfir og flutningurinn sjálfur. Ólafur Kjartan Sigurðarson skráði nafn sitt í sögubækur sem fyrsti fastráðni óperusöngvarinn á Íslandi og er vel af þeim heiðri kominn. HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 7. OKTÓBER KL. 19.30Rauð áskriftaröð #1 FIMMTUDAGUR 7/10 BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Kl 20:00 Örfáar sýningar RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir SHAKESPEARE Kl 20:00 Örfáar sýningar FÖSTUDAGUR 8/10 HÉRI HÉRASON eftir Coline Serreau kl 20:00 Frumsýning Uppselt GEITIN eftir Edward Albee Kl 20:00 RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir SHAKESPEARE Kl 20:00 Örfáar sýningar LAUGARDAGUR 9/10 MENNINGARDAGSKRÁ FEB Kl 14:30 CHICAGO eftir Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun Kl 20:00 Fáar sýningar eftir RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir Shakespeare Kl 20:00 Örfáar sýningar SUNNUDAGUR 10/10 LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren kl 14:00 HÉRI HÉRASON eftir Coline Serreau kl 20:00 - Gul kort GEITIN eftir Edward Albee Kl 20:00 RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir SHAKESPEARE Kl 20:00 Uppselt - Örfáar sýningar Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík SÍÐASTA SÖLUVIKA - ÁSKRIFTARKORT Á 6 SÝNINGAR - VERTU MEÐ Í VETUR Miðasala á net inu: www.borgar le ikhus. is Miðasala, sími 568 8000 Fim 7. og Fös 8. okt kl. 20 DUENDE - FLAMENCO FUNI & FUSION UPPSELT Lau 9. okt kl. 10 – 12 MÁLÞING UM SPÆNSKA MENNINGU Aðgangur ókeypis, allir velkomnir Lau 9. okt kl. 20 DUENDE - FLAMENCO FUNI & FUSION Gerardo Nuñez og flamenco-hópur hans halda þessa einu aukatónleika í Salnum. NOKKUR SÆTI LAUS Sjóðandi djass á Borginni Ólafur Kjartan Sigurðarson syng- ur með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í kvöld á vikulegum tónleik- um hljómsveitarinnar í Háskóla- bíói. Hann syngur þar Kinder- totenlieder, eða Barnadauðaljóð, eftir Gustav Mahler. „Þetta er verk sem ég er af- skaplega hrifinn af,“ segir Ólafur Kjartan. „Mig hefur langað til að syngja þetta í langan tíma. Þetta er því mjög kærkomið fyrir mig og alveg ómetanlegt í rauninni.“ Barnadauðaljóðin, eða Kinder- totenlieder, eru samin við fimm ljóð eftir Friedrich Rückert. Ljóð- in eru ort stuttu eftir að Rückert missti tvö börn sín úr skarlatssótt, en aftur á móti lék allt í lyndi hjá Mahler þegar hann samdi lög sín við þessi dapurlegu ljóð. Tveimur árum síðar missti Mahler hins vegar dóttur sína úr skarlatssótt, og kenndi sjálfum sér um að hafa storkað örlögunum með því að semja þessi lög. „Eins og gefur að skilja eru þetta stór og mikil ljóð, og drungaleg. Tónlist Mahlers við þau er alveg hreint mögnuð og mjög krefjandi fyrir alla sem að flutningnum koma, hvort sem það er einsöngvarinn, hljómsveitin eða hljómsveitarstjórinn. Upp- lifunin á þessari tónlist getur ver- ið afskaplega sterk og þegar vel tekst til getur þetta verið mjög áhrifamikill flutningur.“ Annars er Ólafur Kjartan þessa dagana á tónleikaferð um England og Wales, þar sem hann syngur hlutverk Rigolettos í sam- nefndri óperu Verdis. Nú síðast söng hann Rigoletto á mánudags- kvöldið og næsta sýning verður á sunnudagskvöld þannig að Ólafur er bara í skreppitúr hingað til lands á milli sýninga. „Svo býð ég spenntur eftir að byrja að æfa Toscu hér heima í janúar. Ég er farinn að ferðast um allt með Toscu undir hendinni og hreinlega get ekki beðið.“ Stjórnandi á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitarinnar í kvöld verð- ur Rumon Gamba, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar. Á efnisskrá tónleikanna eru tvö önnur verk, sem hljómsveitin flytur án Ólafs Kjartans. Annað þeirra er Rúss- nesk jarðarför eftir Benjamin Britten, en hitt er fimmta sinfónía Sjostakovitsj. ■ Skrapp heim til að syngja um barnamissi Á árunum 1961 til 1966 streymdi frá kvartett saxófónleikarans Johns Coltrane hvert lagið á fætur öðru sem enn þann dag í dag fær alla sanna djassáhuga- menn til þess að iða í sætinu. Kvartett Kára Árnasonar trommuleikara ætlar að flytja nokkur af þessum lögum á tón- leikum djassklúbbsins Múlans, sem haldnir verða í gyllta salnum á Hótel Borg í kvöld. „Þessi tónlist er algjörlega jafn spennandi og hún hefur alltaf verið,“ segir Kári, sem hefur fengið til liðs við sig þá Sigurð Flosason á saxófón, Ómar Guð- jónsson á gítar og Agnar Má Magnússon á orgel. Á þessum árum spiluðu með Coltrane þeir McCoy Tyner á píanó, Reggie Workman á bassa og Elvin Jones á trommur. „Jones er bara nýlátinn karlinn. Hann var að verða áttræður og það lá við að hann hefði dáið við settið. Karlinn var svo öflugur.“ Sjálfur dó Coltrane árið 1967, en tónlist hans er fyrir löngu orð- in klassík í djassheiminum. „Það er ennþá verið að kenna þessi lög sem dæmi um það hvernig á að spila svona tónlist.“ En það sem var svo skemmti- legt við þennan kvartett var sam- setningin á lögunum. Þau eru yfir- leitt byggð bara á einum hljómi, sem gengur í gegnum allt lagið. Einhver gæti nú haldið að það hljóti að vera einfalt mál, en það er mjög erfitt að gera svona lagað svo það verði verulega áhuga- vert.“ Tónleikarnir á Múlanum hefj- ast klukkan 21 í kvöld. Aðgangs- eyrir er þúsund krónur. ■ ■ ■ TÓNLEIKAR  19.30 Ólafur Kjartan Sigurðarson syngur einsöng með Sinfóníu- hljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói. Flutt verða verk eftir Britten, Mahler og Sjostakovitsj. Stjórnandi er Rumon Gamba.  20.00 Flamenco-hópur Gerardo Núñezar sýnir hreinræktað fla- menco í Salnum, Kópavogi. Ástríðufullur djúpsöngur, gítarleikur og dans með tilheyrandi klappi.  20.30 Söngkvartettinn Opus heldur tónleika í Duus, Reykjanesbæ. Á efnisskránni eru þekkt lög úr söngleikjum og kvikmyndum. Miðaverð 1200 kr.  20.30 Tékkneski strengjakvartettinn Pi- Kap spilar í Ketilhúsinu á Akureyri.  21.00 Kvartett Kára Árnasonar trommuleikara flytur tónlist eftir John Coltrane á tónleikum Múl- ans á Hótel Borg. Með Kára spila þeir Sigurður Flosason á saxó- fón, Agnar Már Magnússon á Hammond orgvél og Ómar Guð- jónsson á gítar. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 4 5 6 7 8 9 10 Fimmtudagur OKTÓBER ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON Syngur Barnadauðaljóð Mahlers á tónleikum Sin- fóníunnar í kvöld. KÁRI ÁRNASON TROMMULEIKARI Kári spilar ásamt kvartett sínum sjóðandi heita tónlist eftir John Coltrane í Múlanum í kvöld. ■ TÓNLEIKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.