Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 07.10.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 99 kr/stk BIC M10 penni Verð 43 kr/stk SKOÐIÐ HEIMASÍÐU MÚLALUNDAR. ÞAR ER MEÐAL ANNARS AÐ FINNA TILBOÐ Á ÓDÝRUM GEISLADISKUM STABILO BOSS Verð 95 kr/stk Teygjumöppur af öllum gerðumGeisladiskar 800 MB 10 stk. Hver diskur í þunnu hulstri. Verð 995 kr/pakkningin Geisladiskar 100 stk Verð 4.930 kr/pakkningin Geisladiskar 50 stk Verð 2.963 kr pakkningin PILOT SUPER GRIP VERÐ 95 KR bréfabindi SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sælir eru einfaldir Það er skrítið þetta líf. Alla tíðhef ég verið mjög fróðleiksfús maður. Ég hef alltaf reynt að kynna mér hluti mjög vel og er mjög fróð- ur um einkennilegustu mál. Ég veit eitthvað smá um næstum því allt. En eftir því sem ég eldist er að renna upp fyrir mér skringilegt ljós: Vitneskja er ekki góð! Eftir því sem ég veit meira því verr virðist mér líða. ÞEGAR Adam og Eva átu af skiln- ingstrénu var þeim umsvifalaust sparkað út úr Eden. Eins er með mig. Ég veit orðið meira en mér er hollt. Ég hef meðfædda þekkingu á mun góðs og ills en er um leið mjög illa fær um lifa í samræmi við hana og á það oft til að gera frekar það sem rangt er en hitt. Það er nefni- lega ekkert gott að vita hluti. Öll vitneskja kemur manni fyrr eða síð- ar í eitthvert klandur. Þetta er ekki kenning heldur er þessi fullyrðing byggð á biturri reynslu minni. Ég vildi að ég gæti þagað meira. EFTIR því sem ég fylgist meira með því sem er að gerast í heimin- um því daprari verð ég. Ef ég horfi á einn einasta fréttatíma verð ég þunglyndur. Ég fæ það á tilfinning- una að allir í heiminum séu geðveik- ir. En ég get ekkert gert. Ég stjórna því ekkert hvað einhverjir menn útí heimi gera. Ég á fullt í fangi með að hafa stjórn á sjálfum mér og meira að segja það gengur ekki alltaf al- veg nógu vel. EINS er með peninga. Því meira sem ég á af þeim því mikilvægari verða þeir fyrir mig og eftir því sem peningar verða mikilvægari í lífi mínu, þess meira vantar mig af þeim og þess þunglyndari verð ég. Best er að eiga aldrei krónu. (Þar hef ég reyndar verið blessunarlega heppinn í lífinu). ÉG mun í framtíðinni stefna að al- gjörri fávisku. Ég ætla að forðast að kynna mér nokkurn skapaðan hlut. Ég ætla að forðast alla vitneskju héðan í frá. Ég ætla ekki að fylgjast með því sem er að gerast í heimin- um eða hafa skoðun á því. Ég ætla í staðinn að reyna að vera sífellt meira og meira glaður. Ég stefni að því að brosa meira. Málið er nefni- lega ekki að vita mikið heldur er galdurinn að sætta sig við að vita lítið og hætta öllum rembingi. Þegar ég verð búinn að sætta mig við það þá verð ég loksins fullkomlega ham- ingjusamur. ■ JÓNS GNARR BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.