Tíminn - 20.09.1973, Síða 15
Fimmtudagur 20. september 1973
TÍMINN
15
Guðjón Teitsson:
Aðstaða strand-
ferðaskipa við
Reykjavíkurhöfn
SVO sem margir þekkja hefur
lengi þótt nauðsynlegt að bæta
aðstöðu strandferðaskipa rikisins
I og við Reykjavikurhöfn, þar
sem starfsemin er að mestu i
óhentugu leiguhúsnæði, sundur-
slitnum bárujárnsskemmum
óhentugum viðskiptamönnum og
starfsmönnum. Vantar t.d. baga-
lega frostfria geymslu fyrir alls
konar vörurávetrum, hætt er við
vatnskemmdum, ef rennur eða
niðurföll stiflast af krapi, erfitt er
að verjast rottugangi, aðstöðu
starfsmanna er mjög áfátt, um-
ferðaöngþveiti er oft mjög mikið
til áhættu fyrir menn, varning og
ökutæki, og tafir miklar á at-
hafnasvæði útgerðarinnar, vegna
þess að ökutæki viðskiptamanna
koma mjög inn á ökuleiðir upp- og
útskipunar vegna útgerðarinnar
sjálfrar, til tjóns fyrir aðila, auk
tafa í að-og fráakstri utan hins
beina afhafnasvæðis út-
gerðarinnar,og loks er óheppilega
langt milli skrifstofu útgerðar-
innarog vöruafgreiðslna, sem oft
veldur aðilum bagalegri töf og
óþægindum, einkum þar sem oft-
ast er torvelt að fá bílastæði á
hafnarsvæðinu á venjulegum
vinnutima.
Samkvæmt viðræðum af hálfu
Guðjón Teitsson.
Skipaútgerðar rikisins við
hafnarstjórn Reykjavikur kom til
greina að staðsetja framtiðarat-
hafnasvæði útgerðarinnar i og við
gömlu höfnina, eða hina nýju
Sundahöfn, en hafnarstjórn
hallaðist þá fremur að gömlu
höfninni, vegna þess að hin nýja
er nothæf fyrir skip með meiri
djúpristu og þvi hæpið að taka þar
frá'að staðaldri viðlegurými fyrir
litil skip sem strandferðaskipin. í
öðru lagi taldi hafnarstjórn, að
með tilliti til verulegs farþega-
flutnings með strandferðaskipun-
um, væri það svo enn, og myndi
sennilega vera fyrst um sinn, að
gamla miðhöfnin lægi nokkru bet-
ur við samgöngum en Sundahöfn.
Leiddu frekari viðræður um
þetta mál til þess, að hafnarstjórn
Reykjavikur bauð að gera nýja
uppfyllingu með viðlegubakka
fyrir skip vestan Grófarbryggju i
gömlu höfninni, og var talið, að
Skipaútgerðin gæti fengið að
reisa þarna á hinni nýju
uppfyllingu myndarlegt vöruhús,
þar sem skrifstofur útgerðar-
innar væru þó einnig, til þæginda
fyrir viðskiptamenn og
starfsmenn.
Þróuðust viðræður um þetta á
þann hátt, að á siðast liðnu ári
varákveðið að hef ja undirbúning
þess, að gera framtiðarbækistöð
fyrir Skipaútgerðina á nefndum
stað, og verður varla aftur snúið
með þá ákvörðun hér eftir.
Dimmur skuggi
En samkvæmt margfaldri
reynslu hvilir þó sérstaklega einn
skuggi yfir áðurgreindri
ákvörðun, og þar er um að ræða
umferðarþunga ökutækja og
skort bifreiðastæða við gömlu
höfnina. Er þetta atriði ekki
einungis áhyggjuefni þeirra, sem
eiga að hafa forsjá strandferða-
skipa, heldur forráðamanna allra
annarra skipa, sem höfnina nota,
og annarra þeirra manna, sem
erindi eiga inn á hafnarsvæðið.
Fyrir löngu var ýmsum orðið
ljóst, að eitthvað verulega raun-
hæft yrði að gera til þess að
greiða umferð ökutækja meðfram
gömlu höfninni, og var i þessu
sambandi ákveðið að leggja há-
braut yfir Geirsgötu frá Kalkofn-
svegi vestur á Mýrargötu,en með
tengiálmu til suðurs (við Suður-
götui til þess að taka við megin-
umferð gegnum miðbæinn
norðanverðan milli austur- og
vesturbæjar. Sést þegar visir að
hinni fyrirhuguðu hábraut, sem
norðurhluti þaks hinnar nýju toll-
stöðvar, en mikil deyfð er rikj-
andi varðandi allar frekari fram-
kvæmdir við hábrautina, og virð-
ist varla nokkur hafa trú á, að hún
verði gerð til gagns i næstu fram-
tið, sökum skorts fjár og forystu,
m.a. i þvi að fá aðila til að kaupa
eða leigja nothæft húsrými undir
hábrautina, — jafnframt þvi að
leysa vanda vegna brevttrarað-
stöðu eldri húsa.
Útlitið er þvi ekki gott í um-
ræddu efni. Mikill fjöldi manna,
sem vinnur I grennd við höfnina,
eða á erindi til skipaféiaganna
eða annarra aðila við höfnina,
eyðir daglega miklum og dýr-
mætum tima i ökuhringsól, skim-
andi i allar áttir eftir bilastæðum
og tefjandi alla umferð, sem
myndi þó ærin án þessa. Er hér
oft um að ræða hreint umferðar-
öngþveiti, beint og óbeint skað-
legt fjölda aðila, ekki sizt þeim,
sem taka að sér eða kosta vöru-
flutning gegnum höfnina. Hefur
umferðin á nefndu svæði
auðvitað stóraukizt við tilkomu
hinnar nýju tollstöðvar með
miklu skrifstofuhúsnæði og
miklum fjölda viðskiptamanna,
en þótt sjá eigi starfsmönnum og
viðskiptámönnum tolistöðvarinn-
ar fyrir bifreiðastæðum-á þaki
þeirrar byggingar, þá má ætla að
þar verði oft þröng, og tafir
a.m.k. I að- og frákeyrslu, og
þarna er mikill fólksstraumur
yfir göturnar til slysahættu og
allsherjar umferðartafa. Er þvi
ljóst, að tilkoma toll-
byggingarinnar og þvi næst lokun
Austurstrætis fyrir almennum
akstri eykur enn verulega
umferðarálagið um Tryggvagötu
og aðliggjandi götur. Alag, sem
var þó áður langt úr hófi fram.
Heftum ekki hjart-
sláttinn
Þegar litið er á allt framan-
greint, vekur það furðu, að til
greina skyldi koma að reisa nýtt
skrifstofustórhýsi fyrir hundruð
milljón króna við aðalumferðar-
æð (og þar með þunga-umferðar-
æð) að austanverðu við gömlu
höfnina, á leið milli hinna tveggja
hafnarhverfa, enda verður ekki
séð, að Seðlabankanum beri
nauðsyn til að hafa bækistöð rétt
við hina áður allt of aðkrepptu
gömlu höfn.
Höfnin i Reykjavik hefur oft og
með góðum rétti verið nefnd
„lljarta höfuðborgarinnar.” og
þessu mega ráðamenn ekki
gleyma i dagsins önn, þótt at-
vinnulif verði fjölbreyttara en
fyrrum.
Hjarta borgarinnar þarf að slá i
samræmi við tilgang sinn, en
kransæðaþrenging er nú mjög til
fyrirstöðu, og sá sjúkdómur mun
verða þvi alvarlegri sem meiri og
fjölsóttari skrifstofubyggingum
er hrúgað að höfninni, og umferð
ökutækja beinlinis beint til
hennar i vaxandi mæli, án
nokkurra framkvæmda til úrbóta
i umferðarvandamálinu.
VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS
SKULDABRÉF C
tisfja aa a mm*
Skuldabréfin kosta 1000 kr. nú. Enginn veit, hve háu
verðgildi þau ná. Eftir 10 ár verða þau endurgreidd
með verðbótum, sem fara eftir hækkun
framfærsluvísitölu.
Bréfin gilda sem happdrættismiði. Dregið er árlega
20. desember um 273 vinninga að upphæð 7 milljónir,
þ. á m. tveir vinningar á eina milljón hvor.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Allt fé sem inn kemur fer til að Ijúka
hringvegi um landið. Sala
skuldabréfa og framkvæmdir á
Skeiðarársandi hafa gengið það vel,
að lokatakmarkið nálgast.
Hringvegiírinn verður myndarlegasta
afmælisgjöf, sem landsmenn geta
veitt sér þjóðhátíðarárið 1974.
Sölustaðir: Bankar, bankaútibú
og sparisjóðir um land allt.
Sala stendur yfir 20. sept. — 20. des.