Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
TÓNLEIKAR Í BORGARLEIKHÚS-
INU Dean Ferrell bassaleikari flytur eigin
útsetningar á nokkrum verka Tobiasar
Hume kafteins, bassagömbuleikara og tón-
skálds frá tímum frumbarokksins, klukkan
15.15 á Litla sviði Borgarleikhússins.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
4. desember 2004 – 332. tölublað – 4. árgangur
● seljast eins og heitar lummur
Teiknar grófar
myndasögur
Hugleikur Dagsson:
▲
SÍÐA 74
NAFNLEYND TIL LÍTILS Ákvörðun
Hæstaréttar um að Börkur Birgisson þurfi
ekki að víkja úr réttarsal á meðan vitni
koma fram hefur vakið undrun meðal lög-
fræðinga og dómara. Sjá síðu 2
AUKNAR ÁLÖGUR R-listinn hefur sam-
þykkt að hækka sorphirðugjald um 30 pró-
sent. Heimaþjónusta hækkar um ríflega 40
prósent. Oddviti sjálfstæðismanna segir
hækkanir endurspegla veika fjármálastjórn
meirihlutans. Sjá síðu 4
DEILT UM BÓTAFJÁRHÆÐ Deilur um
upphæð bóta vegna barnsláts á Landspítala
- Háskólasjúkrahúsi eru komnar fyrir héraðs-
dóm. Ríkislögmaður hefur samþykkt bótaá-
byrgð, sem er viðurkenning á því að mistök
hafi átt sér stað. Sjá síðu 6
SKORIÐ UM 200 MILLJÓNIR Bæjar-
stjórinn í Hafnarfirði segir sveitarfélögin ekki
geta rekið þjónustu við íbúa nema rekstrar-
grundvöllur þeirra verði tryggður. Sveitarfé-
lögin bíða niðurstöðu tekjustofnanefndar
sem fundar við ríkið. Sjá síðu 8
Sigga Heimis:
Hannar jólaskraut fyrir Ikea
SÍÐA 42
▲
Mugison:
Með fimm tilnefningar
SÍÐA 60
▲
Kvikmyndir 70
Tónlist 84
Leikhús 84
Myndlist 84
Íþróttir 54
Sjónvarp 72
Páll Óskar Hjálmtýsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Engill heimsækir
James Stewart
● bílar ● jólin koma
Útgerðarmenn veðja
á sameiningu kerfa
Ýmsir útgerðarmenn treysta á að krókaflamarkskerfið verði sameinað stóra kerfinu. Dæmi eru
um að smábátar sanki að sér kvóta í von um tug ef ekki hundruð milljóna króna gróða.
HLÝNAR UM TÍMA Í DAG með
rigningu syðra en slyddu eða snjókomu
norðanlands. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ÚKRAÍNA, AFP Kjósa verður aftur
milli Viktors Janúkovitsj forsæt-
isráðherra og Viktors Júsjenkó,
fyrrverandi forsætisráðherra, um
hvor þeirra verður næsti forseti
Úkraínu. Þetta eru fyrirmæli
hæstaréttar Úkraínu sem ógilti í
gær forsetakosningarnar sem
fóru fram 21. nóvember.
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að mikið hefði verið
um kosningasvindl og varð því við
beiðni stjórnarandstöðunnar um
að þær yrðu ógiltar. Dómurinn fyr-
irskipaði einnig að seinni umferð
forsetakosninganna skyldi endur-
tekin ekki síðar en 26. desember.
Mikil fagnaðarlæti brutust út
meðal stuðningsmanna Júsjenkós
þegar hæstiréttur kvað upp dóm
sinn. Fólkið, sem hafði sumt hvert
verið á götum Kænugarðs í nær
tvær vikur, klöppuðu, föðmuðust
og hrópuðu af gleði.
Yfirkjörstjórn fékk á baukinn í
dómsorðinu. „Gjörðir og ákvarð-
anir yfirkjörstjórnar um úrslitin í
seinni umferð forsetakosninganna
voru ólöglegar,“ sagði í niðurstöðu
hæstaréttar. ■
Yfirkjörstjórn braut lög sagði hæstiréttur Úkraínu:
Kosningarnar ógiltar og kosið á nýFimmtudagar
Me›allestur dagblaða
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
68%
43%
MorgunblaðiðFréttablaðið
Biskupsstofa:
Þingmönn-
um skrifað
MANNRÉTTINDI Biskupsstofa hvetur
alþingismenn til að veita Mannrétt-
indaskrifstofu Íslands rekstrarfé í
fjárlögum. Í bréfi Karls Sigur-
björnssonar biskups segir að rekst-
ur stofunnar tryggi að á
landinu starfi óháður eftirlitsaðili á
sviði mannréttindamála.
Meirihluti fjárlaganefndar Al-
þingis hefur lagt til að hætt verði
að styrkja skrifstofuna, en hún
hefur m.a. gefið skýrslur til al-
þjóðastofnana um starfsemi stjórn-
valda. Biskupsstofa var meðal
stofnaðila Mannréttindaskrif-
stofunnar. - ghg
Opið 10-18 í dag
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
KR
I
25
96
8
1
2/
20
04
Nýtt
kortatímabil
20 dagar til jóla
Opið 10-18 í dag
SJÁVARÚTVEGUR Teikn eru á lofti um
að útgerðarmenn treysti á að
krókaflamarkskerfið verði samein-
að stóra kerfinu á næstu misserum.
Heimildir blaðsins herma að
smábátaútgerðir hafi sankað að sér
kvóta í von um að kerfin verði sam-
einuð. Áþreifanlegt dæmi er bátur
sem fékk úthlutað um 100 tonnum
af þorski á þessu fiskveiðiári. Á
fyrstu þremur mánuðum fiskveiði-
ársins hefur hann veitt minna en
tíu tonn en hins vegar hefur verið
færður á hann kvóti sem nemur 400
tonnum. Báturinn veiddi um 100
tonn af þorski á síðasta fiskveiði-
ári. Kílóið í krókaflamarkskerfinu,
eða litla kerfinu eins og það er kall-
að, kostar um 750 krónur og 400
tonn kosta því um 300 milljónir
króna. Í stóra kerfinu kostar kílóið
hins vegar um 1.250 krónur.
Grétar Mar Jónsson, varaþing-
maður Frjálslynda flokksins og
skipstjóri, segir að verði kerfin
sameinuð eins og margir þrýsti á
um, bjóði það upp á gríðarlegt
kvótabrask. Hann segist sjálfur
hafa heyrt að menn veðji hreinlega
á sameiningu. Þeir séu í raun ekki
að gera neitt ólöglegt heldur bara
nýta sér stórgallað fiskveiðikerfi.
„Ákveðnir menn vilja sameina
þetta, það er ekkert leyndarmál,“
segir Grétar Mar. „Stórar útgerðir
hafa meira að segja verið að kaupa
trillur með kvóta,“ segir hann og
telur líklegt að kílóið af þorski
muni kosta í kringum 1.250 krónur
í sameinuðu kerfi. Samkvæmt því
myndi eigandi bátsins sem greint
var frá hagnast um 200 milljónir
króna á þeim 400 tonnum sem færð
voru á hann.
Grétar Mar segir svakalegt þeg-
ar safnað er kvóta á báta sem lítið
er róið. „Þá eru menn bara í kvóta-
braski.“ sjá síðu 4/- th
FATLAÐIR Í STRÆTÓ Aðgengismál voru ofarlega á baugi á Alþjóðadegi fatlaðra í gær. Í tilefni dagsins brugðu nokkrir sér með strætó frá
Reykjavík til Hafnarfjarðar, þar sem boðið var upp á dagskrá. Á myndinni má sjá hvar Guðmundur Magnússon, formaður starfsnefndar
Sjálfsbjargar um ferlimál, nýtir sér þjónustuna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M