Fréttablaðið - 04.12.2004, Qupperneq 39
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 272 stk.
Keypt & selt 49 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 14 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 35 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 35 stk.
Atvinna 15 stk.
Tilkynningar 7 stk.
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 4.
desemb., 339. dagur ársins 2004.
Reykjavík 10.54 13.18 15.42
Akureyri 11.04 13.03 15.01
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Páll Óskar Hjálmtýsson er ekki í vafa
þegar hann er spurður um hvaða bíó-
mynd verði að horfa á um jólin.
„Það er ein sem er algjört möst – It´s a
Wonderful Life eftir Frank Capra, frá 1946.
Þessa mynd ættu allir að eiga og horfa á
minnst einu sinni á ári og jólin eru góður
tími til þess, því myndin gerist einmitt um
jólaleytið. Hún er um mann sem er í sjálfs-
morðshugleiðingum. Þá fær hann heimsókn
frá engli, sem er kominn til jarðar til að
vinna sér inn fyrir vængjunum.
Upphafsatriðið er geggjað; tvær stjörn-
ur skína á himni, svo hrapar önnur þeirra
til jarðar og roskinn maður í jakkafötum
birtist. Og já, þeir sem hafa séð Himininn
yfir Berlín eru þegar búnir að fatta hvaðan
Wim Wenders stal sínum englum!
Engillinn fer með George Bailey, leikinn
af Jimmy Stewart, í ferð um lífið og sýnir
honum hvernig heimurinn og fólkið í kring-
um hann hefði orðið ef hans hefði aldrei
notið við - og hann sér að hann hefur ekki
lifað til einskis,“ segir Páll Óskar.
„Við eigum líka að fara svona ferð á
hverju ári. Það sem er svo frábært við
þessa mynd er að hún fær mann til að fara
í svipaða ferð og Bailey, velta fyrir sér líf-
inu og hvað við höfum gert vel og hverju
við höfum klúðrað. Það er rosalega hollt.“
Páll Óskar segir Capra hafa verið snill-
ing í að gera mannlegar myndir. „Þær eru
alls ekki væmnar en ná bara einhverju
hreðjataki á manni, kannski var það þess
vegna að margar myndanna hans floppuðu,
og það gerði It’s a Wonderful Life líka þeg-
ar hún var sýnd í bíó, svo illa að kvikmynda-
verið fór næstum á hausinn. Nokkrum árum
síðar varð sjónvarpsbyltingin og einhverri
stöðinni datt í hug að sýna þessa mynd um
jólin. Þar með fékk hún algera endurreisn
og í dag finnst Bandaríkjamönnum barasta
engin jól nema þeir hafi séð þessa mynd. Og
mér ekki heldur,“ segir Páll Óskar, sem er
kominn í jólaskap enda á þeysireið um land-
ið með Moniku Abendroth. Þau Monika ætla
að halda jólatónleika um land allt á aðvent-
unni, meðal annars í Háteigskirkju á sunnu-
daginn kl. 20.30. ■
Engill heimsækir James Stewart
bilar@frettabladid.is
Volkswagen Touareg fékk
fimm Euro NCAP-stjörnur í ör-
yggisprófunum á dögunum.
Touareg fékk hæstu mögulegu
einkunn í öryggisprófunum
Euro NCAP; fimm stjörn-
ur alls fyrir árekstr-
arvarnir að
framan,
á hlið
og við
veltu.
Euro
NCAP
mat einnig öryggi barna í
bílnum sem gott og gaf því
fjórar stjörnur. Euro NCAP-sam-
tökin voru stofnuð um miðjan
tíunda áratug síðustu aldar. Að
þeim standa meðal annars Evr-
ópuráðið, Alþjóðlega bifreiða-
sambandið (FIA), Félag þýskra
bifreiðaeigenda (ADAC), þýska
flutninga-, bygginga- og hús-
næðismálaráðuneytið og fleiri
evrópsk flutningamálaráðu-
neyti.
Fyrirtækið ND á Ís-
landi hlaut heið-
ursviðurkenning-
una Umferðar-
ljósið á nýaf-
stöðnu umferðar-
þingi. Umferðarljós-
ið hljóta þeir aðilar sem unnið
hafa framúrskarandi starf í
þágu umferðaröryggis á Íslandi
hverju sinni. ND á Íslandi fékk
viðurkenninguna fyrir hinn svo-
kallaða Saga-búnað, upplýs-
ingakerfi um aksturslag öku-
manna. Frumgerð búnaðarins
hefur verið í þjónustubílum
FÍB-aðstoðar undanfarin tvö ár.
Íslandspóstur setti búnaðinn í
alla bíla sína og skilaði það um
helmings fækkun tjóna á fyrsta
ári og meira en fimmtíu pró-
sentum minni tjónakostnað.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða
hefur sent umhverfisnefnd Ísa-
fjarðarbæjar til um-
sagnar og af-
greiðslu umsókn
um starfrækslu
bílapartasölu
við Stekkjargötu
21 í Hnífsdal
eins og kemur
fram á vefsíðu Bæjarins
besta á Ísafirði, bb.is. Til
þess að af starfrækslu parta-
sölunnar verði þarf umhverfis-
nefnd að samþykkja breytta
nýtingu lóðarinnar og fyrir-
komulag innan hennar. Um-
hverfisnefnd hefur fundað um
málin en afgreiðslu málsins
hefur verið frestað.
Björgunarsveitin Strákar á
Siglufirði hefur endurnýjað bíla-
kost sinn og keypt tvo verulega
breytta Defender-jeppa frá
Land Rover. Áður átti björgun-
arsveitin breyttan Land
Cruiser-jeppa en
mun auðveldara er
að koma sjúkra-
börum fyrir
í Defend-
er. Hann
tekur ein-
nig fleira
fólk, samtals níu manns að bíl-
stjóranum meðtöldum. Nýju
jepparnir eru báðir með 38
tommu breytingum og loftlæs-
ingum á drifbúnaði auk annars
búnaðar sem er nauðsynlegur
við björgunar- og leitarstörf. Til
dæmis má nefna GPS-stað-
setningartæki, CB-talstöðvar og
langdrægar VHF-talstöðvar.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
JÓLIN KOMA HEILSA MATUR BÍLAR NEYTENDUR O.FL.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég þarf víst að
fara í bað. Bíddu
bara í símanum
þangað til ég kem
aftur upp úr.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Jólasveinar og gamlir siðir
Jólasýning Árbæjarsafns opnuð
Á sunnudaginn hefst jólasýn-
ing Árbæjarsafns og verður
hún frá kl. 13-17, einnig
sunnudaginn 12. desember.
Gestum gefst kostur á að
rölta á milli húsa
og fylgjast
með undirbún-
ingi jólanna
eins og hann
var í gamla
daga. Hrekkj-
óttir jólasveinar
gægjast á glugga og kíkja í
potta og börn og fullorðnir fá
að föndra, syngja jólalög og
ferðast um á hestvagni. Í
hverju húsi er skemmtileg
dagskrá og getur fólk tekið
þátt með föndri og fleira auk
þess sem því býðst að smak-
ka nýsoðið hangikjöt.
Kl. 14 verður messa í safn-
kirkjunni og kl. 15 hefst jóla-
trésskemmtun.
Börn úr Ártúns-
skóla syngja
nokkur jólalög
og síðan verður
dansað í kring-
um jólatréð.
Jólasveinar, þessir
gömlu íslensku, verða á
vappi um safnsvæðið frá kl.
14.00 til 16.30. Aðgangseyrir
er kr. 500 fyrir fullorðna en
ókeypis er fyrir börn, ellilíf-
eyrisþega og öryrkja. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Audi Sportback
BLS. 2
][
Páll Óskar með veggspjald úr eftirlætisjólamyndinni.
Rúllugardínur. Sparið og komið með
gömlu rúllugardínukeflin og fáið nýj-
an dúk á keflin. Gluggakappar sf.
Reyðarkvísl 12, Ártúnsholti, s. 567
1086.