Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 4. desember 2004
„Illsamræmanlegt lýðræðinu“
Reyndar bætti Helmut Schmidt,
fyrrverandi kanslari og einn af
helstu hugsuðum þýskra jafnað-
armanna, um betur og talaði í
blaðaviðtali um að fjölmenning-
arsamfélagið væri illsamræman-
legt lýðræðinu. Slíkt samfélag,
þar sem ólíkir menningarhópar
lifa hver innan um annan í sátt og
samlyndi, virkaði aðeins í vald-
stjórnarríkjum og nefndi hann
Singapúr sem dæmi um þetta. Að
sögn Schmidts bættist auk þess
við að margir útlendingar sem
þegið hefðu landvist í Þýskalandi,
jafnvel ríkisborgararétt, kærðu
sig alls ekkert um að aðlagast.
Kanslarinn fyrrverandi gekk svo
langt að segja að það hefðu verið
mistök að hleypa „gestaverka-
mönnum“ frá framandi menning-
arsvæðum inn í landið í stórum
stíl á sjöunda áratugnum. Þessi
orð ollu hneykslan sumra; eink-
um voru talsmenn Þýskalands-
Tyrkja móðgaðir. Schmidt sagði
enn fremur að blöndun evrópskr-
ar og „utan-evrópskrar“ menn-
ingar hefði hingað til hvergi tek-
ist vel. Auk þess byggju áköfustu
talsmenn fjölmenningarinnar
sjálfir oft í villuhverfum og
þekktu ekki vandamálin í inn-
flytjendagettóunum.
Gerhard Schröder, núverandi
kanslari, lét heldur ekki sitt eftir
liggja, þótt ekki tæki hans eins
djúpt í árinni og Helmut Schmidt.
„Við í Evrópu verðum að verja
hugmyndir upplýsingarinnar sem
leiðarljós stjórnmálanna,“ sagði
Schröder í ræðu. Múslimar í land-
inu yrðu að „lýsa sig ótvírætt
holla réttarfari og lýðræðislegum
leikreglum okkar.“
Hófsamir frysti öfgamennina úti
Reyndar hafa múslimar í Þýska-
landi að nokkru leyti orðið við
þessari áskorun kanslarans. Eft-
ir morðið á van Gogh og æsing-
inn í kjölfar þess gerðist það í
fyrsta sinn að múslimar í Þýska-
landi fylktu sér að baki mótmæl-
um gegn herskáum íslamistum.
Bjartsýnismenn binda enda
helst vonir við að hófsamir og
aðlögunarviljugir múslimar snúi
baki við öfgamönnunum í sínum
röðum og hindri þar með frekari
útbreiðslu herskás íslamisma,
og bjargi jafnframt laskaðri
ímynd íslamskra innflytjenda í
augum þorra almennings í hin-
um nýju heimalöndum þeirra.
Hvort það dugar til að auka
lífslíkur fjölmenningarsam-
félagsins til lengri tíma litið er
hins vegar önnur saga. ■
Ýmsir sérfræðingar og stefnu-
mótendur, ekki síst vestan Atl-
antsála, fagna því að Evrópumenn
séu að vakna til ákveðnari vitundar
um þörfina á að láta starfsemi rót-
tækra múslima ekki viðgangast í
löndum sínum.
Bandarískir sérfræðingar hafa
á liðnum misserum, fyrir og eftir
lestarsprengjuárásirnar í Madríd í
vor, reynt að vekja athygli á þeirri
vaxandi hættu sem Vestur-Evrópu
stafaði af herskáum íslamisma. Til
dæmis sagði Francis Fukuyama
(sem m.a. er þekktur fyrir bókina
„The End of History and the Last
Man“) á málþingi í Washington DC
nýlega að Evrópubúum stæði mun
meiri ógn af herskáum íslamisma
innan frá en Bandaríkjunum stæði
slík ógn af utan frá. Að mati Fuku-
yama hafa Evrópumenn látið hjá
líða að ræða þessa hættu af alvöru
fram til þessa vegna „lamandi póli-
tískrar rétthugsunar“, eftir því
sem vikuritið Economist hefur eft-
ir honum. Annar bandarískur sér-
fræðingur, Steven Emerson (sem
m.a. hefur skrifað bókina „Americ-
an Jihad - The terrorists living am-
ong us“), sagði í viðtali við þýska
dagblaðið Die Welt að vestræn
þjóðfélög „þyrftu blóð á eigin göt-
um“ til að vakna til vitundar um
hættuna og grípa til viðeigandi ráð-
stafana til að bægja henni frá.
Hann segir leyniþjónustur landa
eins og Bretlands, Frakklands og
Þýskalands vera vel meðvitaðar
um hættuna, en stjórnmálamenn-
ina vilja berja hausnum við stein-
inn; þeir vonist til að geta leitt mál-
ið hjá sér, eða trúi því jafnvel að
hægt sé að leysa vandann með ein-
hvers konar viðræðum við öfga-
mennina. „En við þessa menn er
ekki hægt að semja,“ segir Emer-
son. Staðreyndin sé sú að hér er
um að ræða menn sem trúa á of-
beldi. „Evrópumenn hafa árum
saman haldið að þessir íslömsku
öfgahópar söfnuðu [í Evrópu] að-
eins peningum, kræktu í nýja liðs-
menn en fremdu hryðjuverk sín
annars staðar. Þetta hefnir sín
núna,“ segir Emerson. Spurður
hvort fjölmenningarsamfélagið sé
með þessu liðið undir lok, svarar
Emerson: „Fjölmenningarhyggjan
fólst upprunalega í því að viður-
kenna ólíka menningu sem hluta
hinnar frjálslyndu fjölhyggju. Í
okkar skilningi verða vestræn
gildi að hafa yfirhöndina í fjöl-
menningarlegu samfélagi. (...) Hol-
lendingar, sem eru frægir fyrir
umbyrðarlyndi sitt gagnvart um-
burðarleysinu, fá nú að kenna á því
hvað hin samfélagslega samræða
nær skammt. Fjölmenningar-
hyggjan hefur beðið algert skip-
brot. Ef öll önnur menning telst
jafngild eigin menningu eru engin
viðmið lengur gild.“ ■
Bandarískir sérfræðingar:
Fagna vitundarvakningu
Evrópumanna
HRYÐJUVERK Hryðjuverkaárás var gerð
á lestarstöðina í Madríd í vor.
AYAAN HIRSI
Hollenska þingkonan hyggst
gera nýja kvikmynd þar sem
íslömsk menning er harðlega
gagnrýnd. Hirsi gerir myndina
þrátt fyrir að samstarfsmaður
hennar van Gogh hafi verið
myrtur og hún hafi sjálf
fengið morðhótanir.