Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 87
59LAUGARDAGUR 4. desember 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ TÓNLIST ■ KVIKMYNDIR
O P I Ð A L L A H E L G I N A
JÓLATILBOÐ
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Hetthi - eikarlína
Sjónvarpsskenkur (br. 240cm)
Verð:
69.000.-
Vegghilla með ljósi
Verð:
29.500.-
Atlanta, vönduð heilsudýna,
rúmgafl og tvö náttborð í queen
stærð.
Einnig fáanlegt í Cal king stærð
Verð áður: 179.000.-
Verð nú:
146.850.-
Silki rúmteppi og sex púðar með fyllingu:
Verð frá: 24.500.-
Atlanta, vönduð heilsudýna,
rúmgafl og tvö náttborð í queen
stærð.
Einnig fáanlegt í Cal king stærð
Verð áður: 189.000.-
Verð nú:
154.350.-
-15%
Borðstofuborð stækkanlegt í
báða enda: 100x160(+46+45)
og sex stólar.
Verð áður: 154.400.-
Verð nú:
131.240.-
Krist Novoselic, fyrrum bassa-
leikari rokksveitarinnar Nirvana,
hefur boðið sjálfan sig upp á
eBay. Hæstbjóðandi á uppboðssíð-
unni fær að launum flugferð í
einkaflugvél kappans. Að henni
lokinni verður farið á fínan veit-
ingastað þar sem Novoselic mun
snæða kvöldverð með sigurvegar-
anum.
Tilefni uppboðsins er að vekja
fólk til umhugsunar um samtökin
People for the American Way.
Stefna þeirra er að auka pólitíska
vitund almennings. ■
Leikarinn Leonardo DiCaprio
hefur viðurkennt að þjást af þrá-
hyggjuvanda sem feli meðal ann-
ars í sér mikla þörf til að stíga á
tyggjóklessur á gangstéttum.
Segist hann þurfa að pína sig
til að stíga ekki á klessurnar í
hvert skipti sem hann fer í
göngutúr. „Stundum get ég sagt
við sjálfan mig: Þetta er fáránleg
hegðun hjá þér. Hættu að stíga á
allar tyggjóklessur sem þú sérð.
Þú þarft þess ekki,“ sagði
DiCaprio. „Þú þarft ekki að labba
tíu metra til baka og stíga á þær.
Ekkert slæmt mun gerast þótt þú
gerir það ekki.“
DiCaprio segist hafa
horfst betur í augu við
vandamál sitt eftir að
hafa leikið í sinni nýj-
ustu kvikmynd, The
Aviator. Þar fer hann
með hlutverk við-
s k i p t a j ö f u r s i n s
Howard Hughes, sem
þjáðist einnig af sjúk-
legri þráhyggju. Endur-
tók hann sömu setning-
arnar og þurfti sífellt að
þvo á sér hendurnar.
Jack Nicholson fór
árið 1997 með hlut-
verk rithöfundarins
Melvin Udall í
myndinni As Good
As It Gets. Sá átti
einnig við svipaða
þráhyggju að etja
og vakti myndin
mikla athygli á
sjúkdómnum. ■
Victoria Beckham hefur nú sæstvið fyrrverandi kryddpíuvinkonu
sína Geri Halliwell og boðið henni í
skírn sona hennar Brooklyns og
Romeos. Söngkonurnar hættu víst
að tala saman eftir að Geri hætti í
Spice Girls í tónleikaferðalagi þeirra
árið 1998. Árið eftir það kvaðst Posh
reiðilega ekki ætla að bjóða Geri í
brúðkaup hennar og Davids Beck-
ham á Írlandi. „Victoria hefur loksins
fyrirgefið Geri. Þær eru nú aftur nán-
ar vinkonur og Posh vill að Geri taki
þátt í skírninni,“ sagði
heimildarmaður. Fyrr-
verandi barnakrydd-
ið, Emma Bunton,
mun einnig koma í
skírnina auk þess
að Mel B mun
fljúga frá Banda-
r í k j u n u m .
Íþróttakryddið
Mel C mætir
ekki þar sem
hún hefur misst
allt samband við
Posh.
Colin Firth er á móti því að fram-leiðendur Bridget Jones geri
mynd númer þrjú. Leikaranum finnst
ekkert nógu merkilegt geta átt sér
stað í lífi Bridgetar
Jones til þess að
ástæða sé að fram-
leiða þriðju mynd-
ina. Firth grunar
einnig að hinir aðal-
leikarar myndarinnar
vilji ekki heldur skrifa
undir samning fyrir
aðra mynd. „Það er
óhugsanlegt að önnur framhalds-
mynd myndi ganga upp. Það er ekki
nema lögð yrði gífurleg áhersla á
ævintýralegt sjónarhorn sögunnar.“
Frænka Juliu Roberts, hin 13 áragamla Emma Roberts, hefur skrif-
að undir samning við fyrirtækið Sony
Music og er nú önnum kafin við að
taka upp sína fyrstu plötu. Emma
sem er dóttir bróður Juliu, Eric Ro-
berts og hefur
víst „frábæra
rödd“ að sögn
s t a r f smanns
Sonys. Emma
er nú þegar
stjarna þáttar-
ins Unfabulous
sem er sýndur
á Nickelodeon
og hefur leikið
í tveimur myndum, Aquamarine og
Daisy Winters.
Britney Spears kemur fram á Bill-board-tónlistarverðlaununum og
er það í fyrsta skipti sem hún kemur
fram síðan hún giftist Kevin
Federline í september. Slúðursögur
hafa gengið um að söngkonan sé
ólétt en talsmaður hennar, Leslie
Sloane Zelnick, þvertekur fyrir það.
„Þetta er algerlega rangt. Ég get sko
sagt ykkur að hún er ekki ólétt. Þið
sjáið hana í næstu viku á Billboard-
verðlaununum,“ sagði hún. Britney
vann MTV-verðlaun fyrir besta tón-
listarmanninn í hópi kvenna í síðasta
mánuði en sá sér ekki
fært að mæta í Róm
og taka við verð-
laununum. Á Bill-
board-verðlauna-
a fhendingunni
mun Stevie
W o n d e r
vera heiðr-
aður fyrir
ævifram-
lag sitt
til tón-
l i s t a r -
he ims-
ins.
NIRVANA Krist Novoselic, til vinstri, ásamt
félögum sínum í rokksveitinni Nirvana.
Býður sig
upp á eBay
LEONARDO
DICAPRIO Leonardo
DiCaprio fer með að-
alhlutverkið í mynd-
inni the Aviator.
Stígur á tyggjóklessur