Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 1
Á ferðalagi til Afríku:
Linsunni beint að Madagaskar
SÍÐA 48 OG 49
▲
Íslensk útgáfa:
Sungið fyrir börnin
SÍÐA 50
▲
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
STEMMUR KVEÐNAR Kvæðamenn
Iðunnar munu kveða nokkrar stemmur í
tilefni sýningar um Silfurplötur Iðunnar í
Þjóðmenningarhúsinu í dag klukkan
14.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
11. desember 2004 – 338. tölublað – 4. árgangur
● eins og nammiland
Opna búð á
Nörrebro
Hólmgeirssystur:
▲
SÍÐA 74
TVEIR STJÓRNARLIÐAR SÁTU HJÁ
Hörð átök urðu um frumvörp menntamála-
ráðherra um hækkun skráningargjalda í
ríkisháskóla. Stjórnarandstæðingar segja
gjöldin skólagjaldavæðingu og óhæfuverk
gegn menntakerfinu. Sjá síðu 2
MORGUNBLAÐIÐ Í HÁDEGISMÓA
Skrifstofur og ritstjórn Morgunblaðsins flytj-
ast upp að Rauðavatni og verða við hlið
nýrrar prentsmiðju blaðsins. Fasteignin við
Kringluna var seld á 2,1 milljarð. Fram-
kvæmdastjóri Árvakurs segir söluna treysta
samkeppnisstöðu blaðsins. Sjá síðu 4
TJÓNIÐ NEMUR EINNI MILLJÓN
Tjónið sem varð í fjárhúsunum við bæinn
Víðihlíð við Mývatn á fimmtudaginn nemur
líklega allt að einni milljón króna. Bóndinn
telur að tryggingarnar bæti ekki nema lítinn
hluta tjónsins. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 70
Tónlist 84
Leikhús 84
Myndlist 84
Íþróttir 54
Sjónvarp 72
Kristina Anderson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Lúsían táknar
hið góða
● bílar ● jólin koma
Skoðanakönnun um borgarstjórn:
Framsókn fengi
tæpast mann kjörinn
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkurinn
fengi aðeins 4,4% atkvæða og eng-
an mann kjörinn ef flokkarnir
sem eiga sæti á Alþingi myndu
bjóða fram hver í sínu lagi. Þetta
er niðurstaða fylgiskönnunar sem
borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð-
isflokksins lét gera. Frjálslyndi
flokkurinn fengi örlítið meira
fylgi en Framsókn eða 5,1% og
einn mann kjörinn en munurinn er
innan skekkjumarka.
Sjálfstæðismenn væru langt
frá því að ná meirihluta, fengju
aðeins tæp 41% og 6 borgarfull-
trúa. Mikið fylgi Vinstri grænna
vekur athygli en þeir fengju um
18% atkvæða og þrjá menn. Sam-
fylkingin fengi hins vegar um
32% og 5 borgarfulltrúa og því
myndu vinstriflokkarnir geta
myndað saman meirihluta tveir
einir eða í samstarfi við Frjáls-
lynda flokkinn.
R-listaflokkarnir stefna að því
að bjóða fram saman – í orði
kveðnu að minnsta kosti – og R-
listinn héldi auðveldlega meiri-
hluta sínum ef fylgi flokkanna er
lagt saman eða um 54%. Það er
svipað og í Gallup-könnun sem
unnin var á sama tíma en þar var
spurt um fylgi við blokkirnar sem
nú starfa í borgarstjórn. Könn-
unin hófst um sama leyti og
Þórólfur Árnason sagði af sér sem
borgarstjóri. - ás
LÖGREGLA Lögreglurannsókn
vegna brunans á Sauðárkróki um
síðustu helgi þar sem ungur mað-
ur lést hefur litlu skilað enn sem
komið er.
Björn Mikaelsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, segir
að beðið sé eftir niðurstöðum úr
sýnatöku tæknideildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann hafi von-
ast eftir því að fá þær fyrir helgi
en sú hafi ekki orðið raunin. Hann
segir að framhald rannsóknarinn-
ar velti mikið á þeim niðurstöðum.
Aðspurður hvort talið sé að
eldurinn hafi kviknað út frá síga-
rettuglóð segir hann að það sé
ekki útilokað. Einnig segir hann
það heldur ekki útilokað að um
íkveikju hafi verið að ræða þar
sem eldsupptök séu ókunn.
Björn segir alveg öruggt að
lögreglan muni þurfa að taka
skýrslur af einhverjum aftur, þar
með talið ungum manni sem slapp
ómeiddur úr brunanum og hefur
fengið réttarstöðu grunaðs
manns.
- th
JÓLAINNKAUPAVEÐUR Fínasta
veður um land allt. Stöku skúrir eða él
vestan til. Þykknar upp sunnan til og fer að
rigna í kvöld. Leiðindi á morgun. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
13 dagar til jóla
Opið
10-22 í dag
VERSLUN Bókanir Íslendinga með
Icelandair til Bandaríkjanna eru
fjörutíu prósentum fleiri nú en
á sama tíma á síðasta ári. Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, segir verslunartengdum
ferðum, einkum til Boston, Minnea-
polis og Baltimore, hafa fjölgað
mikið.
„Það fer ekkert framhjá okkur
að dollarinn er lágur og margir nota
tækifærið til að gera hagstæð inn-
kaup,“ segir hann. „Á vigtum sést að
fólk er að versla, það er með fleiri
töskur og handfarangur á bakaleið-
inni. Þetta blasir við öllum og hefur
verið með vaxandi þunga núna með
haustinu.“
Starfsmenn tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli og Icelandair
finna að kaupglaðir Íslendingar
fljúga í auknum mæli til Bandaríkj-
anna því að margir reyna að smygla
varningnum inn.
„Við verðum mikið varir við
þetta. Fólk virðist ekki gera sér
grein fyrir því hvað má flytja toll-
frjálst til landsins og er því stoppað
hér í stórum stíl og krafið um
greiðslu. Það má ekki kaupa fyrir
meira en 46 þúsund krónur hver og
þar af má einn hlutur aðeins kosta
23 þúsund. Því ber að greiða virðis-
aukaskatt og önnur gjöld af öllum
varningi sem fluttur er til landsins
umfram þessa upphæð,“ segir Kári
Guðlaugsson, aðaldeildarstjóri Toll-
gæslunnar á Keflavíkurflugvelli.
Magnið sem farþegarnir flytja
til landsins er gríðarlegt, langt um-
fram heimildir, líklega 100 til 200
þúsund krónur á mann. Kári segir
að tugir eða hundruð manna hafi
greitt gjöld síðustu vikur og mánuði
og þá einkum af fatnaði, leikföngum
og gjafavöru. Ef dýrari hlutir eru
fluttir til landsins og þeim ekki
framvísað er lagt hald á þá og við-
komandi greiðir sekt. Fólk hefur
greitt hundruð eða milljónir króna í
aðflutningsgjöld síðustu vikur.
„Við erum með nokkur mál í
skoðun, meðal annars gítar, fiðlu og
myndavélar. Það er þó nokkuð um
að hljóðfæri séu flutt svona inn en
það ber að greiða gjöld ef hljóðfær-
ið hefur kostað meira en 23 þúsund
krónur,“ segir hann. - ghs
JÓLAVERSLUN Í BANDARÍKJUNUM Miklu fleiri Íslendingar gera jólainnkaupin í
Bandaríkjunum nú en í fyrra, einkum á fatnaði, leikföngum og gjafavöru. Aðalástæðan er
vafalaust óvenjulágt gengi dollarans.
Jólainnkaup
í útlöndum
Ferðum Íslendinga til Bandaríkjanna hefur
fjölgað um nánast helming. Margir greiða
hundruð þúsunda eða milljónir í gjöld og sektir.
HÚSIÐ VIÐ BÁRUSTÍG Eldurinn kviknaði í húsinu á laugardaginn.
Húsbruni á Sauðárkróki:
Útiloka ekki íkveikju
SKOÐANAKÖNNUN
GALLUP FYRIR D-LISTANN
„Hvaða flokk myndir þú kjósa ef kosið
væri til borgarstjórnar í dag?“
Framkvæmdartími 10.-29. nóvember.
Fjöldi svarenda 558. Svarhlutfall 62,5%
Samfylking
31,7%
5 borgarfulltrúar
Vinstri grænir
17,9%
3 borgarfulltrúar
Framsóknar-
flokkurinn 4,4%
Enginn borgarfulltrúi
Frjálslyndi flokkurinn 5,1%
1 borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokkurinn
40,8%
6 borgarfulltrúar
01 Forsíða 10.12.2004 20.48 Page 1