Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 11
11LAUGARDAGUR 11. desember 2004
Tilkynningaskyldan:
Góð sjósókn
í desember
SJÓSÓKN Alls voru 280 bátar á sjó í
hádeginu í fyrradag. Það þykir
gott en daginn áður voru einungis
98 bátar á sjó samkvæmt Tilkynn-
ingaskyldu skipa.
Vaktmaður segir veðrið hafa
mikil áhrif á sjósókn smábáta sem
útskýri helst sveiflurnar í sjó-
sókninni. Hún sé með besta móti
miðað við árstíma. Í september
voru að meðaltali 260 bátar að
veiðum um hádegisbilið. Flestir
voru þeir 595 þann 28. september.
Fyrsta desember var met mánað-
arins slegið þegar bátarnir voru
458.
- gag
VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGS
Nemendur fimmtu bekkja grunnskóla
Garðabæjar lyftu 0,5 lítra vatnsflösku með
blöðrum í tilefni tímamótasamnings sem
einkafyrirtæki gerði við grunnskóla sveitar-
félagsins.
Tímamótasamningur:
Einkafyrir-
tæki styrkir
skóla
SKÓLAMÁL Fyrirtækið Marel styrk-
ir kennslu í nýsköpun og raun-
greinum í grunnskólum Garða-
bæjar um 3,9 milljónir á næstu
þremur árum.
Samkvæmt samningum sem
undirritaðir voru í fyrradag legg-
ur Marel fram 900 þúsund krónur
til kaupa á tækjabúnaði sem nýt-
ist við kennsluna. Þegar hafa tíu
smásjár verið keyptar fyrir hálfa
milljón króna auk þess sem fyrir-
tækið færir skólunum sex rann-
sóknarvogir og greiðir helming-
inn af kostnaði við stöðu kennslu-
ráðgjafa í nýsköpun og raungrein-
um við grunnskóla bæjarins.
- gag
Eldur í kertaskreytingu:
Vöknuðu við
reykskynjara
VOPNAFJÖRÐUR Reykskynjari vakti
fimm manna fjölskyldu á Vopna-
firði á fimmtudag. Eldur logaði í
kertaskreytingu í stofunni. Fjöl-
skyldan náði að slökkva eldinn
með vatni.
Húsmóðirin brenndist á fæti
þegar hún steig á bráðið plast.
Nokkrar skemmdir urðu á hús-
gögnum, teppi og myndum í stof-
unni af reyk, eldi og sóti, að sögn
lögreglu. Fjölskyldan reykræsti
og kallaði til forsvarsmenn
slökkviliðs og tyggingarfélags
eftir að eldurinn hafði verið
slökktur.
- gag
LÍFEYRISMÁL Lífeyrisþegum fjölgar
langt umfram mannfjölda, sam-
kvæmt staðtölum frá Trygginga-
stofnun ríkisins fyrir 2003.
Frá árinu 1993 hefur þeim fjölg-
að um 46% eða úr 46.937 í 68.542
árið 2003 að meðtöldum foreldrum
sem fá greiðslur úr Fæðingar-
orlofssjóði. Á sama tíma fjölgar
landsmönnum um tæp 10%, úr
tæpum 265 þúsund í rúmlega 290.
Á árinu 1993 var hlutfall lífeyris-
þega 17,7% af mannafla en 10
árum síðar var hlutfallið komið í
23,6%.
Einnig má sjá að hlutfall ein-
staklinga með greiðslur örorkulíf-
eyris, endurhæfingarlífeyris eða
örorkustyrks var í desember 2003
4,3% af mannfjölda á meðan hlut-
fallið var 2,7% árið 1993.
Þegar skoðaður er fjöldi bóta-
þega lífeyristrygginga og félags-
legrar aðstoðar og útgjöld á verð-
lagi hvers árs sést að hlutfallslega
mesta aukningin er í uppbótum
vegna bifreiðakaupa. Á árinu 2003
fengu 823 einstaklingar greiddar
samtals 368 m.kr. í uppbætur vegna
bifreiðakaupa. Auk þess voru 163
m.kr. greiddar í bifreiðastyrki und-
ir málaflokknum hjálpartæki. Til
samanburðar fékk 421 einstakling-
ur uppbætur vegna bifreiðakaupa á
árinu 2002, samtals 157 m.kr.
Útgjöld hins opinbera til heil-
brigðismála voru rúmlega 76 millj-
arðar á árinu 2003 þar af voru út-
gjöld sjúkratrygginga tæpir 14
milljarðar. ■
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Útgjöld sjúkratrygginga á árinu 2003 voru tæpir 14 milljarðar af útgjöldum hins opinbera
til heilbrigðismála, sem námu 76 milljörðum króna.
Tölur Tryggingastofnunar um þróunina síðastliðin 10 ár:
Lífeyrisþegum fjölgaði um 46 prósent
KUNNA LÍTIÐ Í SKRIFT Meirihluti
egypskra nemenda á aldrinum
níu til þrettán ára á í vandræðum
með að skrifa nafnið sitt og kann
ekkert að skrifa sagði Ahmed
Gamal Eddin Mussa, mennta-
málaráðherra Egyptalands, þegar
hann kynnti átak um bætta
kennslu í skólum landsins.
■ EGYPTALAND
10-11 10.12.2004 19:53 Page 3