Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 32
Aparnir ódýrari en sérfræðingar þrifalegri
Nýjasta tölublað tímaritsins Vísbendingar er í senn
fróðlegt og skemmtilegt. Í sérstöku jólablaði eru
nokkrir fræðimenn og sérfræðingar fengnir til að
skjóta niður þekktar mýtur á sínu sviði. Einn þeirra
er Gylfi Magnússon hag-
fræðingur. Hann
fjallar meðal ann-
ars um þá mýtu
að til séu
píramídafyrir-
tæki sem virki.
Um það segir
Gylfi. „Vík burt,
Satan! Einu
píramídarnir sem eru
skoðunar virði eru úr
grjóti og í Egyptalandi.“
Hann skýtur einnig niður
gamla goðsögn í fjár-
festingum sem
segir að api með bundið fyrir augun geti valið arð-
samara hlutabréfasafn heldur en færustu sérfræð-
ingar. Gylfi segir sérfræðingana hafa forskot á
apana og ættu að geta metið áhættu betur. Svo
segir Gylfi: „Sérfræðingarnir eru líka þrifalegri. Ap-
arnir eru hins vegar ódýrari í rekstri.“ Þetta hlýtur
að vera umhugsunarverður valkostur fyrir banka-
stjóra.
Svartsýnn hagfræðingur
Annar álitsgjafi Vísbendingar er hagfræðingurinn
Sigurður Jóhannesson. Hann tekur fyrir þá mýtu að
uppsveiflan í íslensku efnahagslífi sé vegna aukins
frelsis í viðskiptalífinu. Um þetta segir Sigurður að
góðærið stafi fyrst og fremst af almennri bjartsýni í
atvinnulífinu, miklum lántökum og stórum opin-
berum framkvæmdum. Næsta mýtan á eftir góð-
ærismýtunni er hallærismýtan. Sigurður segir að
eftir uppsveifluna komi skellur. „Og hann verður
þeim mun meiri sem uppsveiflan sem nú stendur
yfir verður stærri og langvinnari,“ segir hann.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.282
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 126
Velta: 1.934 milljónir
-2,59%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Kögun hefur nú eignast 82,4
prósenta hlut í Opnum kerfum.
Afhending hlutabréfa í Kögun,
sem fást sem greiðsla vegna yfir-
tökutilboðs, mun eiga sér stað
14. til 17. desember.
Verðbólga í Danmörku á síð-
ustu tólf mánuðum er 1,2 pró-
sent.
Gengisivísitala íslensku krón-
unnar hækkaði í gærmorgun og
virðist vera að ná jafnvægi eftir
hraða styrkingu í kjölfar vaxta-
hækkunar Seðlabankans í lok
síðustu viku.
Útlán Íbúðalánasjóðs í nóv-
ember námu fjórum milljörðum
króna og drógust saman um hálf-
an milljarð frá í október. Þetta
kom fram í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
32 11. desember 2004 LAUGARDAGUR
Verði af kaupum Bakkavarar
á Geest eins og flest bendir til
verður til leiðandi fyrirtæki í
framleiðslu ferskra matvæla
fyrir stórmarkaði. Tækifæri
Bakkavarar liggja í hagræð-
ingu og samlegð, auk sterkari
samningsstöðu á markaði í
krafti stærðar.
Það fór eins og margan grunaði að
Bakkavör myndi hefja yfirtökutil-
raunir á breska matvælafyrirtæk-
inu Geest hið fyrsta eftir að tæki-
færi gafst. Bakkavör mátti hefja
vinnu við yfirtöku 29. nóvember og
þá var þegar hafist handa. Opinbert
ferli hófst svo 9. desember.
Á breskum markaði fá menn
ekki góðar móttökur ef sýnt er fram
á að vinna við yfirtöku hefjist fyrr
en heimilt er. Forsvarsmenn
Bakkavarar hreyfðu því hvorki
legg né lið fyrr en heimilt var.
Bakkavör á fyrir ríflega fimmt-
ungshlut í Geest og hefur því góða
innsýn í reksturinn. Það að fyrir-
tækið leggi strax til atlögu bendir
til þess að það sjái mikla möguleika
í rekstrinum og telji að ekki sé eftir
neinu að bíða. Eignarhluturinn
tryggir að ekki komast aðrir að
borðinu. Ef Bakkavör hefði getað
beðið og freistað þess að sú spenna
í gengi Geest sem tilkomin er vegna
væntinga um yfirtöku Bakkavarar
hyrfi úr verði félagsins. Viðræðurn-
ar um yfirtöku nú sýna að bræðurn-
ir Ágúst og Lýður Guðmundssynir
vilja hefjast handa við að móta
Geest að sínum hugmyndum.
Betri nýting
Bakkavör og Geest eru ólík félög á
margan hátt. Geest er með miklu
meiri veltu en Bakkavör, en Bakka-
vör nýtir fjármuni sína og fram-
leiðslutæki miklu betur. Geest er
með hátt hlutfall eigin fjár miðað
við það sem tíðkast í íslenskum fyr-
irtækjum. Bakkavör getur því
skuldsett fyrirtækið meira en nú er.
Bakkavör þarf því ekki að sækja
sér nema hluta af kaupverðinu á
markað í hlutafjáraukningu.
Víst er að stjórnendur Bakkavarar
sjá tækifæri í að nýta framleiðslu-
tæki og fjármuni Geest mun betur
en raunin er nú.
Það er fleira sem hangir á spýt-
unni. „Eftir kaup á Geest verður
Bakkavör áhættudreifðara félag,“
segir Bjarki Logason, sérfræðingur
hjá greiningardeild Landsbankans.
Hann segir að kennitölur úr rekstri
Bakkavarar séu mun hærri en hjá
Geest. Með sameiningu lækka
kennitölur Bakkavarar.
Framleiðsluvörur Geest eru
mun fleiri, auk þess sem Geest er
þegar með starfsemi á meginlandi
Evrópu og í Asíu. Smásölukeðjan
Tesco er stærsti viðskiptavinur
Bakkavarar. Hlutfall Tesco í við-
skiptamannahópi Bakkavarar
minnkar úr rúmum 60 prósentum í
rúm 50 prósent. Sameinað félag
yrði langstærsta félagið á sínu sviði
á Bretlandi.
Stærðin nýtist
Bjarki segir að stærðin muni nýtast
félaginu vel. Bæði náist fram hag-
ræðing í innkaupum og sterkari
samningsstaða gagnvart birgjum.
Þá standi svo stórt fyrirtæki betur
að vígi í samningum við smásölu-
aðila. Hörð samkeppni er á bresk-
um matvörumarkaði, sem hefur
þýtt að framlegð fyrirtækja sem
framleiða vörur fyrir stórmarkaði
hefur lækkað. Geest hefur ekki far-
ið varhluta af þeirri þróun.
Bakkavör hefur hins vegar tekist að
halda framlegð mun hærri en hjá
samkeppnisaðilunum. Bjarki segir
að það liggi fyrst og fremst í því að
framleiðsluvörur Bakkavarar séu
gæðavörur. „Á þeim hluta markað-
arins ræðst markaðsstaðan fremur
af gæðum vörunnar en verði.“
Bakkavör hefur einnig verið í mun
hraðari vexti en Geest.
Búast má við að sameinað félag
vaxi hægar í fyrstu en Bakkavör
hefur gert undanfarið. Hagsaukinn
fyrir hluthafa Bakkavarar með
kaupum liggur í að með þeim hrað-
ar Bakkavör þróun sinni og festir
sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á
heimsvísu í sinni grein. Sú staða
getur skipt sköpum þegar horft er
til framtíðar. Auk þess kæmi beinn
hagsauki í samlegð og hagræðingu í
rekstri. Stærð og styrkur félagsins
myndi gera samningsstöðu þess
sterkari, bæði gagnvart innkaupum
og í sölusamningum við smásölu-
keðjur. Þess utan gætu legið mögu-
leikar á sölu þeirra rekstarþátta
Geest sem ekki falla að kröfum
Bakkavarar um vöxt og framlegð.
Ólík fyrirtækjamenning
Þrátt fyrir hægari vöxt Geest og að
rekstur þess sé ekki jafn straum-
línulagaður og hjá Bakkavör er ekki
hægt að segja að félagið sé stirt og
staðnað. Stjórnendur þess hafa sótt
fram og leitað nýrra tækifæra.
Geest hefur að undanförnu leitað á
ný mið. Enda þótt bæði Bakkavör
og Geest séu skráð almennings-
hlutafélög er eignarhaldið ólíkt.
Stofnendur Bakkavarar eru kjöl-
festueigendur og stjórnendur fyrir-
tækisins. Ráðdeild og góð nýting
einkennir slík fyrirtæki í meiri
mæli en fyrirtæki í dreifðri eignar-
aðild eins og Geest. Eigendur
Bakkavarar bera virðingu fyrir
stjórnendum Geest og líklegt að
lykilstjórnendur verði áfram hjá
félaginu.
Miðað við rekstrartölur Bakka-
varar og Geest fyrir síðasta ár er
samanlögð velta 132 milljarðar
króna og hagnaður fyrir skatta 7,6
milljarðar. Miðað við þær tölur er
félagið komið í forystu íslenskra
fyrirtækja hvað varðar helstu
rekstrartölur. Starfsfólk sameinaðs
fyrirtækis verða á þrettánda þús-
und. Bakkavör væri því komin í
stærð sem stjórnendur félagsins
reiknuðu með að yrði raunin árið
2013 og menn voru mistrúaðir á.
Kaupin á Geest eru hins vegar
ekki frágengin. Eftir er að semja
um verð. Á breska markaðnum er
talið að stjórn Geest vilji fá 700
pens fyrir hlutinn, en að Bakkavör
hafi boðið mun lægra. Sérfræðing-
ar telja líklegt að endanlegt verð
muni liggja á bilinu 625 til 700 pens
fyrir hlutinn.
Ekki er talið ólíklegt að lending
geti náðst á verðinu 670 til 680 pens
fyrir hlutinn í Geest. Eigendur
Geest eru fagfjárfestar og því þarf
ekki að taka tillit til tilfinninga-
tengsla eigenda við fyrirtækið. Það
verður því verðið eitt sem ræður
niðurstöðu í yfirtöku Bakkavarar á
Geest. ■
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 38,00 -4,10% ... Bakkavör
23,70 -4,05% ... Burðarás 11,75 -3,69% ... Atorka 5,70 -1,72% ... HB
Grandi 7,46 -0,53% ... Íslandsbanki 11,10 -1,77% ... KB banki 431,00 -
2,27% ... Landsbankinn 11,75 -2,89% ... Marel 48,20 -5,12% ... Medcare
5,98 -0,50% ... Og fjarskipti 3,10 -2,21% ... Opin kerfi 27,50 - ... Sam-
herji 10,50 -7,89% ... Straumur 9,55 -0,52% ... Össur 73,20 -4,31%
Tölur frá um kl. 13 í gær. Nýjustu tölur á visir.is
Engar hækkanir Samherji -7,89%
Marel -5,12%
Össur -4,31%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Matvara hækkaði meira en
búist var við og húsnæði
heldur áfram að hækka. Bú-
ast má við að aðgerðir Seðla-
bankans skili sér í næstu
mælingum neysluverðsvísi-
tölunnar.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,46 prósent milli nóvember og
desember. Þetta er meiri hækkun
en greiningardeildir bankanna
höfðu spáð.
Flestar hækkuðu deildirnar
spár sínar þegar kynnt var frum-
varp ríkisstjórnarinnar um hækk-
un á áfengis- og tóbaksgjaldi.
Greiningardeild Íslandsbanka
segir að hækkunina megi meðal
annars rekja til óvæntrar hækk-
unar matvöruverðs en sú hækkun
nam 0,9 prósentum á milli mán-
aða.
Hækkun verðlags síðustu tólf
mánuði er 3,9 prósent en ef ekki
er tekið tillit til hækkunar hús-
næðis er verðbólgan 2,6 prósent.
Síðustu þrjá mánuði hefur hækk-
unin þó verið heldur skarpari og
er 5,9 prósent á ársgrundvelli, en
4,1 prósent ef verðhækkanir á
húsnæði eru undanskildar.
Mest áhrif á hækkunina nú hef-
ur hækkað húsnæðisverð. Þar á
eftir kemur matvælaverðið.
Í Morgunkorni Íslandsbanka í
gær kemur fram að greiningar-
deild bankans telji að verðbólgu-
horfur hafi batnað töluvert eftir
vaxtahækkun Seðlabankans í
mánuðinum en áhrifa hennar gæt-
ir ekki í þessum tölum. Þá eru yf-
irlýsingar Seðlabankans um
áframhaldandi hækkun stýri-
vaxta líklegar til að draga úr
hættu á því að verðbólgan fari
upp fyrir þolmörk Seðlabankans.
- þk
Umsvif Samskipa eru mikil vegna
vöruflutninga í tengslum við
starfsmannaþorp Fjarðaráls-
Alcoa. Í frétt frá Samskipum segir
að vöruflutningaskipið sem lagðist
að bryggju á laugardag sé eitt hið
stærsta sem þangað hefur komið.
Skipið heitir Enchanter og er
138 metra langt og getur borið
tæplega þrettán þúsund tonn.
Skipið landaði sextíu húsum fyrir
vinnubúðir en þau voru flutt frá
Houston í Texas og voru næstum
þrjár vikur á leiðinni.
Fleiri stórskip eru væntanleg
til Reyðarfjarðar með stóra farma
og alls munu Samskip flytja 82 hús
í vinnubúðirnar í vikunni. - þk
Hluthafar hafa forkaupsrétt
á milljarði nýrra hluta á
genginu 10,65. Skráningar-
frestur rennur út 17. desem-
ber.
Íslandsbanki hefur tryggt sér tvo
þriðju hlutafjár í hinum norska
BN banka í yfirtökutilboði sem
rennur út 17. desember. Í ljósi
þessa hefur Íslandsbanki ákveðið
að selja nýtt hlutafé að nafnvirði
1,5 milljarða króna.
Reikna má með að Íslands-
banki fái tæplega sextán millj-
arða króna í útboðinu en kaup-
gengið er 10,65. Núverandi hlut-
hafar í Íslandsbanka hafa for-
kaupsrétt að hlutnum en stjórn
bankans mun taka afstöðu til þess
síðar hvort efni standa til að selja
fimm hundruð milljónir hluta í
viðbót í útboði þar sem forkaups-
réttur yrði ekki til staðar.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka
segir að tilgangur útboðsins sé
tvíþættur. Annars vegar vegna
kaupa á BN bankanum og hins
vegar að styrkja eiginfjárstöðu
bankans vegna mikillar aukning-
ar í útlánum.
Í hlutafjárútboðinu miðast for-
kaupsréttur við hluthafalista
þann 7. desember og geta hluthaf-
ar skráð sig fyrir auknum hlut á
tímabilinu 17. desember til 4. jan-
úar. Greiðsludagur er 25. janúar.
- þk
Íslandsbanki eykur hlutafé
STEFNT AÐ ÞVÍ AÐ STYRKJA BANK-
ANN Hluthöfum gefst tækifæri til að auka
hlut sinn í bankanum. Hlutafjáraukningin
kemur meðal annars til vegna kaupa á BN
bankanum í Danmörku og er ætlað styrkja
eiginfjárstöðu Íslandsbanka.
HEIMURINN UNDIR Bræðurnir í Bakkavör stækka markaðssvæði sitt og auka fjölbreytni
framleiðslunnar með kaupum á Geest. Bakkavör yrði með kaupunum leiðandi fyrirtæki á
sínu sviði í Bretlandi og meðal þeirra allra stærstu í hópi ört vaxandi íslenskra fyrirtækja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Rekstur á fyrri helmingi ársins 2004 Bakkavör Geest
Markaðsvirði 54.813 40.393
Sala 54.571 8.470
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði 4.017 1.379
Framlegðarprósenta 7,40% 16,30%
Hagnaður 1.162 641
Tölur í milljónum króna
Verður leiðandi risi
með kaupum á Geest
ENCHANTER Í REYÐARFIRÐI Vöruflutn-
ingaskipið Enchanter flutti sextíu hús frá
Houston í Texas til Reyðarfjarðar.
Mikil umsvif vegna álvers
Verðbólgan umfram spár
DÝRARA AÐ VERSLA Hækkanir á verð-
lagi voru meiri í síðasta mánuði en spáð
hafði verið. Einkum hækkaði húsnæðis-
verð og matvara. Ekki er þó víst að hærri
verðbólga hafi mikil áhrif á jólaverslunina.
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
YFIRTAKA BAKKAVÖR Á
GEEST
32-33 Viðskipti 10.12.2004 15:02 Page 2