Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 6
6 11. desember 2004 LAUGARDAGUR Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra: Innrás í Írak rædd í stjórn STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra upplýsti á Al- þingi í gær að innrásin í Írak hefði verið rædd á ríkisstjórnarfundi 18. mars, eða daginn sem Banda- ríkin og Bretland gerðu innrás í Írak. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna segir ráðherrann vera orðinn tvísaga því hann hefði áður sagt í Kast- ljósi ríkissjónvarpsins að hún hefði ekki verið rædd í ríkis- stjórn. Halldór Ásgrímsson gagnrýndi málflutning stjórnarandstöðunn- ar og sagði að eini stuðningur við innrásina í verki hefði verið að leyfa afnot af Keflavíkurflugvelli. „Hefði Samfylkingin verið á móti því? Það hefði verið í fyrsta sinn sem lýðræðisflokkarnir hefðu hafnað slíkri bón.“ Steingrímur J. sagði með ólík- indum að forsætisráðherra bæri fyrir sig að ljóst hefði verið að ekki hefði tekist að fá stuðning öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna við árásina á Írak. „Forsætisráð- herra sniðgengur öryggisráðið og reynir svo að berjast fyrir kjöri Íslands í ráðið.“ - ás Tjónið nemur einni milljón Tjónið sem varð í fjárhúsunum við bæinn Víðihlíð við Mývatn á fimmtudaginn nemur líklega allt að einni milljón króna. Bóndinn telur að tryggingarnar bæti ekki nema lítinn hluta tjónsins. SLYS Fimmtugur maður var að gefa á garðann þegar gólfið hrundi og maðurinn og um 100 kindur féllu niður um rúmlega einn metra í fjárhúsum við bæinn Víðihlíð við Mývatn á fimmtudag- inn. Féð var nýrúið og ruddist að garðanum þegar maðurinn byrjaði að gefa. „Enginn veit hvað gerðist ann- að en að gólfið hrundi og maður- inn með. Kindurnar fóru á sund innan um spýtnabrakið í kjallar- anum. Það var mjög lítill skítur þarna, þetta var aðallega vatn. Það var nýbúið að hreinsa skítinn út og dæla inn vatni svo að skítur- inn legðist ekki á gólfið,“ segir Héðinn Sverrisson, bóndi á Geit- eyjarströnd í Mývatnssveit. Maðurinn sem féll niður er um fimmtugt. Hann bjargaði sér upp úr kjallaranum með því að klifra upp garðaenda sem hékk ofan í vatnið en varð fyrir áfalli við slys- ið. Hann varð að fara að næsta bæ til að hringja á hjálp því að GSM- síminn hans virkaði ekki eftir að hafa lent í vatninu. Eiginkona Héðins og þýsk vinnukona á bæn- um hringdu á hjálp en sjálfur stökk Héðinn strax upp í dráttarvél og braut upp hurðina á kjallaranum. „Það kom strax þó nokkur hóp- ur syndandi út,“ segir Héðinn. Um 20 kindur drápust en heilsufarið á hinum var þokkalegt og eru þær nú komnar í hús á nágrannabæ. „Það er ótrúlegt hvað kindur sem manni fannst vera að gefa upp öndina hresstust þegar þær komust í hita og fengu rétt meðal. Það leið stuttur tími þangað til þær stóðu á fætur og fóru að éta,“ sagði Héðinn. Maðurinn sem féll niður var ekki búinn að jafna sig til fulls í gær en þó nægilega til þess að fara suður með systur sinni til að sækja bíl sem Héðinn var að kaupa en sú ferð hafði verið skipulögð fyrir löngu. Héðinn og konurnar tvær fengu ammoníaks- bruna og voru böðuð af hjúkrun- arfræðingi. Um 30 manns voru í björgunarliðinu sem kom að fjár- húsunum, þar á meðal félagar í björgunarsveitinni í Mývatns- sveit. Tjónið er hátt í eina milljón króna. Héðinn er vel tryggður en segir að sér skiljist að trygging- arnar borgi ekki nema tjón á fatnaði og síma, ekki húsum eða fénaði. ghs@frettabladid.is Mannfall á Gaza: Skutu sjö ára stúlku GAZA, AFP Sjö ára palestínsk stúlka lést þegar ísraelskir hermenn skutu hana í höfuðið, en faðir hennar særðist í skothríðinni. Yfirstjórn hersins segir að hermenn á þessum slóðum hafi skotið að svæði þaðan sem skotið hafði verið úr sprengju- vörpu að ísraelskri landtökubyggð á Gaza en fólkið sem varð fyrir skot- unum kom ekki nálægt þeirri árás. Tveir Ísraelar særðust í sprengjuvörpuárásinni, annar þeirra barn að aldri. Félagar í Ham- as stóðu að þeirri árás. 4.607 hafa látið lífið í átökum Ísraela og Palestínumanna frá því í september 2000. ■ MASTRIÐ VIÐ STRAUMSVÍK Blasir við vegfarendum sem fara um Reykjanesbraut. Straumsvík: Jólamastur JÓL Mastur Landsvirkjunar við ál- verið í Straumsvík hefur verið sett í jólabúning. Rannveig Rist, forstjóri ALCAN á Íslandi, kveikti á lýsingu sem komið hafði verið fyrir við mastrið. Það var gert í tilefni þess að Landsvirkjun er að verða 40 ára um þessar mundir. Mastrið er það síðasta í röð raf- magnsmastra áður en háspennu- lína Landsvirkjunar fer inn í tengivirki við álverið. Það stendur við Reykjanesbrautina þar sem það blasir við vegfarendum. Mastrið sjálft er 35 ára. - ghg BARNARÆNINGJAR LÍFLÁTNIR Tveir karlmenn og kona voru líf- látin í Yunnanhéraði í Kína. Þau voru fundin sek um að hafa stolið og rænt ellefu drengjum á aldrin- um tveggja til þriggja ára. Fjöl- margir aðrir tengdust ránunum og fengu þeir fangelsisdóma frá sex árum til lífstíðarlanga. TUGIR LÁTAST Í SPRENGINGU 33 létu lífið í enn einni spreng- ingunni í kínverskri kolanámu. 28 námamenn og fimm björgun- armenn létu lífið af völdum sprengingar í kolanámu í Shanxi-héraði í norðurhluta Kína. Hátt í 5.000 kínverskir kolanámumenn hafa látist í slys- um það sem af er árinu. VEISTU SVARIÐ? 1Hver er formaður framkvæmdastjórn-ar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar, WHO? 2Hvern kaus tímaritið Musical Amer-ica sem hljómsveitarstjóra ársins? 3Hver voru valin íþróttafólk ársins hjáfötluðum? Svörin eru á bls. 74 Loksins, loksins! Sannleikurinn um Ísland / ba gg al ut ur .is Viðeyjardóninn afhjúpaður! Allt um lesbíuna í Sandey! Hvað gerist í F élagi eldri bor gara? Hvaðan kom Brúðubíllinn? * ósýnilega mannsins 30% afsláttur Alfræði Baggalúts Einskis er svifist til að koma efninu á framfæri og engum hlíft. Brot úr lærlegg* fylgir hverri seldri bók! Ísland eins og það er í raun og veru! Mjólkurframleiðsla: Sameining MS og MBF LANDBÚNAÐUR Sameining Mjólkur- bús Flóamanna (MBF) og Mjólk- ursamsölunnar (MS) er komin á dagskrá, að því er fram kemur í fulltrúaráðum félaganna. „Stefnt er að því að ákvörðun um samein- ingu þessara tveggja samvinnu- félaga mjólkurframleiðenda verði til formlegrar umfjöllunar á aðal- fundum félaganna í mars á næsta ári,“ segir þar, en á fundum sínum 8. og 9. desember samþykktu full- trúaráðin tillögu stjórna félag- anna um umboð þeim til handa til þess að vinna að sameiningu í samræmi við gildandi lög um samvinnufélög. Áætlað er að ársvelta MBF og MS í sameinuðum rekstri verði 7,6 til 8 milljarðar króna. - óká Athvarfið Konukot formlega opnað: Heimilislausar konur leita gistingar FÉLAGSMÁL Heimilislausar konur eru farnar að nýta sér næturat- hvarfið Konukot, sem tekið var formlega í notkun í gær, að sögn Brynhildar Barðadóttur verkefn- isstjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands. Athvarfið var raunar opnað fyrir nokkrum dögum og reynslan hefur þegar sýnt að full þörf var fyrir það, að sögn Brynhildar. „Þar hafa gist allt upp í fjórar konur á nóttu,“ sagði hún. „Við erum ekki í neinum vafa um að at- hvarfið á eftir að verða fullnýtt allan ársins hring. Það tekur bara tíma að koma þessu af stað.“ Næturathvarfið Konukot er í Eskihlíð 4. Félagsþjónustan lagði húsnæðið til, en það er rekið af Reykjavíkurdeild RKÍ. Þar eru rúm fyrir átta konur auk hrein- lætis- og þvottaaðstöðu. Sam- kvæmt þarfagreiningu sem Reykjavíkurdeildin hefur látið gera eru allt að fjórir tugir kvenna í Reykjavík heimilislaus- ar. Flestar eru á aldrinum 20 - 50 ára, en nær allar eiga þessar konur það sameiginlegt að vera í fíkniefnaneyslu. - jss ■ ASÍA KONUKOT Brynhildur Barðadóttir verkefnisstjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins fyrir utan næturat- hvarfið Konukot. BJÖRGUNARSVEITARMENN Í MÝVATNSSVEIT Björgunarmenn komu að fjárhúsunum og aðstoðuðu við að bjarga kindunum. Hér sjást tveir þeirra draga út kindur. ÍRAK ENN Á DAGSKRÁ Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að innrásin í Írak hafi verið rædd 18. mars á ríkisstjórnarfundi. FLUTT MEÐ SJÚKRABÍL Kona, öku- maður bíls, slasaðist við bílveltu á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Mæri. Hún var flutt ásamt far- þega með sjúkrabíl á heilsugæslu- stöðina á Selfossi. Eftir skoðun þar var hún send á slysadeild Landsspítala - háskólasjúkrahús. Farþeginn skarst lítilsháttar. Öku- maður sat fastur í bílnum og var klipptur út við komu lögreglunnar á Selfossi á slysstað. Um tuttugu mínútur tók að ná henni út úr bílnum og í sjúkrabílinn. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR 06-07 10.12.2004 20.52 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.