Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 24
11. desember 2004 LAUGARDAGUR
Hálfu öðru ári eftir innrásina í Írak
reynir alþjóðasamfélagið að koma
lífinu í landinu í viðunandi horf og
hafa íslensk stjórnvöld meðal ann-
ars lagt 300 milljónir króna til upp-
byggingar – og hjálparstarfs þar.
Það gæti þó reynst þrautinni
þyngri að koma ástandinu í eðlilegt
horf því vargöld ríkir enn í landinu.
Innviðir þjóðfélagsins eru í molum
og hagur landsmanna er bágur.
Ófriðarbálið brennur
Það er tómt mál að tala um skil-
virkt uppbyggingarstarf í landi þar
sem stöðugur ófriður ríkir. Þótt
sjálfri innrásinni í Írak hafi form-
lega lokið í maí á síðasta ári þá er
enn víða barist og landið langt í frá
undir stjórn írösku bráðabirgða-
stjórnarinnar og hernámsliðsins.
Nægir í þessu sambandi að minna á
leyniskýrslu bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA sem lekið var til fjöl-
miðla í vikunni en þar er því haldið
fram að öryggisástandið fari
versnandi í Írak og ólíklegt er að
breyting verði þar á á næstunni.
Enda þótt Bandaríkjamönnum hafi
tekist að berja andspyrnu niður í
borgum á borð við Najaf og Fallu-
jah þá eru aðferðirnar sem notaðar
eru til þess tæpast fallnar til að
vinna hug og hjörtu landsmanna.
Það er mikil einföldun þegar því
er haldið fram að allir þeir sem
berjast gegn hernámsliðinu séu
hryðjuverkamenn á snærum al-
Kaída. Þótt slíkir hópar séu á með-
al þeirra sem reyna að efna til
illinda í landinu, til dæmis flokkur
Jórdaníumannsins illræmda al
Zarqawis, þá er staðan flóknari en
svo. Stór hluti Íraka telur innrásina
einfaldlega ólögmæta og telur það
skyldu sína að koma föðurlandinu
til varnar og berjast gegn innrásar-
liðinu. Ýmsir hópar telja slíkan
skæruhernað styrkja stöðu sína
í augum þjóðarinnar, til dæmis
Mahdi-flokkur Moqtada al Sadr,
eldklerksins frá Najaf. Súnníar
tengdir Baathflokknum sem áður
hélt um valdataumana í landinu
telja sig hafa verið setta til hliðar
og spyrna því við fótum.
Ótrúleg mistök voru gerð á sín-
um tíma þegar íraski herinn var
leystur upp þar sem byggja hefur
þurft upp löggæslulið í landinu að
nýju nánast frá grunni. Það hefur
gengið hægt, meðal annars vegna
þess að íraskir lögreglumenn eru
algeng skotmörk uppreisnarmanna
en bráðabirgðastjórnin í landinu er
af mörgum talin leppstjórn her-
námsveldanna.
Mikið mannfall
Skálmöldin í Írak hefur sett starfi
hjálparsamtaka verulegar skorður
enda hafa þau beinlínis orðið fyrir
barðinu á árásum hryðjuverka-
manna. Höfuðstöðvar Rauða kross-
ins og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í
Bagdad voru
sprengdar upp
með tveggja mán-
aða millibili í
fyrra með þeim
afleiðingum að 32
létu lífið. Hjálpar-
s t a r f s m ö n n u m
hefur verið rænt
og þeir líflátnir
eins og til dæmis
Margaret Hassan,
umdæmisstjóra
CARE í Írak. Af
þessum sökum
hafa samtök á
borð við Oxfam,
CARE og Lækna
án landamæra
hreinlega þurft að
yfirgefa landið.
Rauði krossinn
starfar þar enn en
fer nánast huldu
höfði og aðeins eru
35 útlendingar á vegum SÞ í
Bagdad, samanborið við 300 fyrir
um ári síðan.
Þannig virðist ekkert lát á
mannfallinu í landinu. Ríflega eitt
þúsund bandarískir hermenn
liggja í valnum en mannfall Íraka
er margfalt meira þótt fjöldi lát-
inna sé mjög á reiki. Til dæmis
segir breska læknatímaritið
Lancet að allt að hundrað þúsund
hafi fallið en breska rannsóknar-
verkefnið Iraq Body Count telur að
um sextán þúsund manns hafa látið
lífið af völdum átakanna.
Kosningar í skugga átaka
Það er fyrst og síðast vegna við-
varandi ófriðar að enduruppbygg-
ing írasks samfélags hefur gengið
jafn hægt og raun ber vitni. Vonir
standa til að ástandið batni þegar
Írakar hafa gengið að kjörborðinu
en á meðan svo róstusamt er í land-
inu er erfitt að ímynda sér hvernig
það á að vera hægt. Írakar virðast
því fastir í ákveðnum vítahring.
Þrátt fyrir þetta eru menn ekki
búnir að gefa upp alla von um að
kosningar verði haldnar í janúar-
lok. Ashraf Qazi, erindreki Samein-
uðu þjóðanna í Írak, segist enn
„hóflega bjartsýnn“ en það velti þó
á örygginu í landinu. Leiðandi fylk-
ingar á meðal sjía virðast vera bún-
ir að koma sér saman um sameigin-
legan framboðslista en vitað er að
hann nýtur stuðnings Sistani
æðstaklerks og Moqtada al-Sadr
þótt hvorugur þeirra sé á meðal
frambjóðendanna 228. Á hinn bóg-
inn er útlit fyrir að súnníar muni
margir hverjir hunsa kosningarn-
ar. Það mun þýða að hlutur þess-
arar fyrrverandi forréttindastéttar
verður enn rýrari í stjórn landsins
sem aftur mun leiða af sér ótrygg-
ara ástand og áframhaldandi skær-
ur.
Þar við bætist að enn á eftir að
útfæra framkvæmd kosninganna. Í
stríðshrjáðum löndum hafa SÞ
jafnan borið hitann og þungann af
því starfi en eins áður segir eru
fáir á snærum samtakanna starf-
andi í landinu. Sjálfstæð nefnd
vinnur að undirbúningi kosning-
anna í umboði SÞ en á hennar
vegum eiga 500 manns að setja upp
tæplega 9.000 kjörstaði og þjálfa
40.000 Íraka til að sitja í kjörstjórn-
um. Skráning kjósenda hefur geng-
ið erfiðlega, ekki síst vegna ófrið-
arins. Þannig var heil vöruskemma
full af skráningarseðlum brennd
til kaldra kola í Mósúl á dögunum.
Iyad Allawi, forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar, hefur
stungið upp á að láta kjörfund
standa yfir í þrjár vikur þannig að
hernámsliðið geti einbeitt sér að
afmörkuðum svæðum í einu en
vandamálin virðast vera stærri en
svo að það leysi vandann. Enn eru
þó nokkrar vikur til stefnu.
Innviðirnir í molum
Uppbyggingarstarf í landinu er
skammt á veg komið
en innviðir samfé-
lagsins eru nánast í
molum eftir þrjú stríð
og rúman áratug við-
skiptaþvingana. Starf
hjálparsamtaka hefur
fram að þessu einkum
beinst að því að
tryggja að íbúar
landsins hafi í sig og á
á meðan hernámsliðið
freistar þess að gera
landið öruggara.
Fyrr í haust var
fjórðungur Íraka enn
algerlega upp á mat-
argjafir SÞ kominn.
Margir verða að selja
m a t a r s k a m m t i n n
sinn til að geta keypt
föt og lyf og því er talið
að 27 prósent allra
íraskra barna búi við
vannæringu. Fjörtíu prósent þjóð-
arinnar hafa ekki aðgang að hreinu
vatni, meðal annars vegna um-
hverfishryðjuverka Saddams sem
þurrkaði upp votlendisvæði suður-
hluta Íraks til að refsa sjíum fyrir
uppreisnir í kjölfar Flóabardaga
1991 og viðskiptaþvingana SÞ sem
gerðu viðhald á vatnsveitum ill-
mögulegt. Hið sama er að segja um
fráveitur en mengað vatn eykur
mjög hættuna á sjúkdómum á borð
við kóleru. Raforkuver landsins
hafa náð sömu framleiðslugetu og
fyrir stríð en raflínur og spenni-
stöðvar eru í mikilli niðurníðslu
vegna skemmdarverka og slælegs
viðhalds.
250 spítalar og eitt þúsund
heilsugæslustöðvar þjóna landinu
öllu. Þetta jafngildir því að á
Íslandi væru þrjú sjúkrahús og
ellefu heilsugæslustöðvar. Flestar
þessar stofnanir eru illa tækjum
búnar, enn og aftur afleiðing af við-
skiptaþvingunum SÞ og gripdeild-
um í kjölfar núverandi átaka.
Írösk könnun sem unnin var
fyrir Barnahjálp SÞ fyrir skömmu
leiðir þann ánægjulega sannleik í
ljós að fleiri börn sækja nú skóla
heldur en á tímum Saddamsstjórn-
arinnar. Tæpar fimm milljónir
barna mæta í skólann dag hvern
víðs vegar um landið í stað 3,5
milljóna árið 2000. Hins vegar er
aðbúnaðurinn heldur lakur, annar
hver skóli er án salernisaðstöðu,
kennslugögn eru af skornum
skammti og skólar eru víða þrí-
setnir. Enn sækja mun færri telpur
skólann en piltar, ekki síst vegna
þess að foreldrar þeirra óttast um
öryggi þeirra. Þetta er áhyggjuefni
því skólaganga er veigamikill þátt-
ur í að veita börnum þá reglu og ör-
yggi sem þau þurfa á að halda.
300 milljónir frá Íslandi
Þrátt fyrir allt eru jákvæð teikn á
lofti um framtíðina. Efnahagur
landsins fer batnandi þar sem olíu-
framleiðsla er óðum að ná sér á
strik. Írakar kætast yfir heims-
markaðsverði á olíu sem hefur
verið mjög hátt síðustu misseri en
talið er að ríflega 1000 milljarðar
króna muni streyma í íraska ríkis-
kassann vegna olíutekna á árinu.
Alþjóðastofnanir og flest ríki
veraldar hafa lofað víðtækri aðstoð
og eru Íslendingar þar á meðal.
Samkvæmt upplýsingum frá ut-
anríkisráðuneytinu er ráðgert að
um 300 milljónum króna verði
varið til uppbyggingar- og hjálpar-
starfsins í Írak. Þegar hafa tvö
hundruð milljónir verið greiddar
af fénu. Helmingur þessarar upp-
hæðar rann í mannúðaraðstoð á
fyrstu mánuðum innrásarinnar
með milligöngu Rauða krossins,
Hjálparstarfs kirkjunnar, Barna-
heilla og fleiri samtaka. Hinn helm-
ingurinn var lagður í tvo sjóði á
vegum Alþjóðabankans og SÞ.
Þessum framlögum er ætlað í eig-
inlegt uppbyggingarstarf í Írak og
hefur sá hluti upphæðarinnar sem
Alþjóðabankinn varðveitir verið
sérstaklega eyrnamerktur heil-
brigðismálum. Hvað síðustu hund-
rað milljónirnar áhrærir þá eru
viðræður í gangi á milli stjórn-
valda og Össurar hf. um að koma
stoðtækjaverkefni á fót í bókstaf-
legri merkingu en víst er að mikil
þörf er á slíkum búnaði í þessu
stríðshrjáða landi. sveinng@frettabladid.is
Friður er forsendan
fyrir uppbyggingu Íraks
Hálft annað ár er liðið síðan ráðist var á Írak og ógnarstjórn Saddams steypt af stóli. Engu að síður er
enn róstusamt í landinu og talsvert vantar upp á að þjóðlíf komist í eðlilegt horf.
LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM Írösk fjölskylda skoðar vöruúrvalið í Bagdad undir vökulu auga Ali Sistani erkiklerks sem á dögunum gaf út tilskipun þar sem hann hvatti landsmenn til að taka þátt í kosningunum í janúar.
VÍGAMENN Á VEGUM ÚTI Íraskur lögreglumaður stendur yfir líki uppreisnar-
manns sem lést í gær eftir að sprengja sprakk óvart í höndunum á honum, að
sögn sjónarvotta.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
P
24
24-25 (360 gr) 10.12.2004 18:10 Page 2