Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 24
11. desember 2004 LAUGARDAGUR Hálfu öðru ári eftir innrásina í Írak reynir alþjóðasamfélagið að koma lífinu í landinu í viðunandi horf og hafa íslensk stjórnvöld meðal ann- ars lagt 300 milljónir króna til upp- byggingar – og hjálparstarfs þar. Það gæti þó reynst þrautinni þyngri að koma ástandinu í eðlilegt horf því vargöld ríkir enn í landinu. Innviðir þjóðfélagsins eru í molum og hagur landsmanna er bágur. Ófriðarbálið brennur Það er tómt mál að tala um skil- virkt uppbyggingarstarf í landi þar sem stöðugur ófriður ríkir. Þótt sjálfri innrásinni í Írak hafi form- lega lokið í maí á síðasta ári þá er enn víða barist og landið langt í frá undir stjórn írösku bráðabirgða- stjórnarinnar og hernámsliðsins. Nægir í þessu sambandi að minna á leyniskýrslu bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA sem lekið var til fjöl- miðla í vikunni en þar er því haldið fram að öryggisástandið fari versnandi í Írak og ólíklegt er að breyting verði þar á á næstunni. Enda þótt Bandaríkjamönnum hafi tekist að berja andspyrnu niður í borgum á borð við Najaf og Fallu- jah þá eru aðferðirnar sem notaðar eru til þess tæpast fallnar til að vinna hug og hjörtu landsmanna. Það er mikil einföldun þegar því er haldið fram að allir þeir sem berjast gegn hernámsliðinu séu hryðjuverkamenn á snærum al- Kaída. Þótt slíkir hópar séu á með- al þeirra sem reyna að efna til illinda í landinu, til dæmis flokkur Jórdaníumannsins illræmda al Zarqawis, þá er staðan flóknari en svo. Stór hluti Íraka telur innrásina einfaldlega ólögmæta og telur það skyldu sína að koma föðurlandinu til varnar og berjast gegn innrásar- liðinu. Ýmsir hópar telja slíkan skæruhernað styrkja stöðu sína í augum þjóðarinnar, til dæmis Mahdi-flokkur Moqtada al Sadr, eldklerksins frá Najaf. Súnníar tengdir Baathflokknum sem áður hélt um valdataumana í landinu telja sig hafa verið setta til hliðar og spyrna því við fótum. Ótrúleg mistök voru gerð á sín- um tíma þegar íraski herinn var leystur upp þar sem byggja hefur þurft upp löggæslulið í landinu að nýju nánast frá grunni. Það hefur gengið hægt, meðal annars vegna þess að íraskir lögreglumenn eru algeng skotmörk uppreisnarmanna en bráðabirgðastjórnin í landinu er af mörgum talin leppstjórn her- námsveldanna. Mikið mannfall Skálmöldin í Írak hefur sett starfi hjálparsamtaka verulegar skorður enda hafa þau beinlínis orðið fyrir barðinu á árásum hryðjuverka- manna. Höfuðstöðvar Rauða kross- ins og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bagdad voru sprengdar upp með tveggja mán- aða millibili í fyrra með þeim afleiðingum að 32 létu lífið. Hjálpar- s t a r f s m ö n n u m hefur verið rænt og þeir líflátnir eins og til dæmis Margaret Hassan, umdæmisstjóra CARE í Írak. Af þessum sökum hafa samtök á borð við Oxfam, CARE og Lækna án landamæra hreinlega þurft að yfirgefa landið. Rauði krossinn starfar þar enn en fer nánast huldu höfði og aðeins eru 35 útlendingar á vegum SÞ í Bagdad, samanborið við 300 fyrir um ári síðan. Þannig virðist ekkert lát á mannfallinu í landinu. Ríflega eitt þúsund bandarískir hermenn liggja í valnum en mannfall Íraka er margfalt meira þótt fjöldi lát- inna sé mjög á reiki. Til dæmis segir breska læknatímaritið Lancet að allt að hundrað þúsund hafi fallið en breska rannsóknar- verkefnið Iraq Body Count telur að um sextán þúsund manns hafa látið lífið af völdum átakanna. Kosningar í skugga átaka Það er fyrst og síðast vegna við- varandi ófriðar að enduruppbygg- ing írasks samfélags hefur gengið jafn hægt og raun ber vitni. Vonir standa til að ástandið batni þegar Írakar hafa gengið að kjörborðinu en á meðan svo róstusamt er í land- inu er erfitt að ímynda sér hvernig það á að vera hægt. Írakar virðast því fastir í ákveðnum vítahring. Þrátt fyrir þetta eru menn ekki búnir að gefa upp alla von um að kosningar verði haldnar í janúar- lok. Ashraf Qazi, erindreki Samein- uðu þjóðanna í Írak, segist enn „hóflega bjartsýnn“ en það velti þó á örygginu í landinu. Leiðandi fylk- ingar á meðal sjía virðast vera bún- ir að koma sér saman um sameigin- legan framboðslista en vitað er að hann nýtur stuðnings Sistani æðstaklerks og Moqtada al-Sadr þótt hvorugur þeirra sé á meðal frambjóðendanna 228. Á hinn bóg- inn er útlit fyrir að súnníar muni margir hverjir hunsa kosningarn- ar. Það mun þýða að hlutur þess- arar fyrrverandi forréttindastéttar verður enn rýrari í stjórn landsins sem aftur mun leiða af sér ótrygg- ara ástand og áframhaldandi skær- ur. Þar við bætist að enn á eftir að útfæra framkvæmd kosninganna. Í stríðshrjáðum löndum hafa SÞ jafnan borið hitann og þungann af því starfi en eins áður segir eru fáir á snærum samtakanna starf- andi í landinu. Sjálfstæð nefnd vinnur að undirbúningi kosning- anna í umboði SÞ en á hennar vegum eiga 500 manns að setja upp tæplega 9.000 kjörstaði og þjálfa 40.000 Íraka til að sitja í kjörstjórn- um. Skráning kjósenda hefur geng- ið erfiðlega, ekki síst vegna ófrið- arins. Þannig var heil vöruskemma full af skráningarseðlum brennd til kaldra kola í Mósúl á dögunum. Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, hefur stungið upp á að láta kjörfund standa yfir í þrjár vikur þannig að hernámsliðið geti einbeitt sér að afmörkuðum svæðum í einu en vandamálin virðast vera stærri en svo að það leysi vandann. Enn eru þó nokkrar vikur til stefnu. Innviðirnir í molum Uppbyggingarstarf í landinu er skammt á veg komið en innviðir samfé- lagsins eru nánast í molum eftir þrjú stríð og rúman áratug við- skiptaþvingana. Starf hjálparsamtaka hefur fram að þessu einkum beinst að því að tryggja að íbúar landsins hafi í sig og á á meðan hernámsliðið freistar þess að gera landið öruggara. Fyrr í haust var fjórðungur Íraka enn algerlega upp á mat- argjafir SÞ kominn. Margir verða að selja m a t a r s k a m m t i n n sinn til að geta keypt föt og lyf og því er talið að 27 prósent allra íraskra barna búi við vannæringu. Fjörtíu prósent þjóð- arinnar hafa ekki aðgang að hreinu vatni, meðal annars vegna um- hverfishryðjuverka Saddams sem þurrkaði upp votlendisvæði suður- hluta Íraks til að refsa sjíum fyrir uppreisnir í kjölfar Flóabardaga 1991 og viðskiptaþvingana SÞ sem gerðu viðhald á vatnsveitum ill- mögulegt. Hið sama er að segja um fráveitur en mengað vatn eykur mjög hættuna á sjúkdómum á borð við kóleru. Raforkuver landsins hafa náð sömu framleiðslugetu og fyrir stríð en raflínur og spenni- stöðvar eru í mikilli niðurníðslu vegna skemmdarverka og slælegs viðhalds. 250 spítalar og eitt þúsund heilsugæslustöðvar þjóna landinu öllu. Þetta jafngildir því að á Íslandi væru þrjú sjúkrahús og ellefu heilsugæslustöðvar. Flestar þessar stofnanir eru illa tækjum búnar, enn og aftur afleiðing af við- skiptaþvingunum SÞ og gripdeild- um í kjölfar núverandi átaka. Írösk könnun sem unnin var fyrir Barnahjálp SÞ fyrir skömmu leiðir þann ánægjulega sannleik í ljós að fleiri börn sækja nú skóla heldur en á tímum Saddamsstjórn- arinnar. Tæpar fimm milljónir barna mæta í skólann dag hvern víðs vegar um landið í stað 3,5 milljóna árið 2000. Hins vegar er aðbúnaðurinn heldur lakur, annar hver skóli er án salernisaðstöðu, kennslugögn eru af skornum skammti og skólar eru víða þrí- setnir. Enn sækja mun færri telpur skólann en piltar, ekki síst vegna þess að foreldrar þeirra óttast um öryggi þeirra. Þetta er áhyggjuefni því skólaganga er veigamikill þátt- ur í að veita börnum þá reglu og ör- yggi sem þau þurfa á að halda. 300 milljónir frá Íslandi Þrátt fyrir allt eru jákvæð teikn á lofti um framtíðina. Efnahagur landsins fer batnandi þar sem olíu- framleiðsla er óðum að ná sér á strik. Írakar kætast yfir heims- markaðsverði á olíu sem hefur verið mjög hátt síðustu misseri en talið er að ríflega 1000 milljarðar króna muni streyma í íraska ríkis- kassann vegna olíutekna á árinu. Alþjóðastofnanir og flest ríki veraldar hafa lofað víðtækri aðstoð og eru Íslendingar þar á meðal. Samkvæmt upplýsingum frá ut- anríkisráðuneytinu er ráðgert að um 300 milljónum króna verði varið til uppbyggingar- og hjálpar- starfsins í Írak. Þegar hafa tvö hundruð milljónir verið greiddar af fénu. Helmingur þessarar upp- hæðar rann í mannúðaraðstoð á fyrstu mánuðum innrásarinnar með milligöngu Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar, Barna- heilla og fleiri samtaka. Hinn helm- ingurinn var lagður í tvo sjóði á vegum Alþjóðabankans og SÞ. Þessum framlögum er ætlað í eig- inlegt uppbyggingarstarf í Írak og hefur sá hluti upphæðarinnar sem Alþjóðabankinn varðveitir verið sérstaklega eyrnamerktur heil- brigðismálum. Hvað síðustu hund- rað milljónirnar áhrærir þá eru viðræður í gangi á milli stjórn- valda og Össurar hf. um að koma stoðtækjaverkefni á fót í bókstaf- legri merkingu en víst er að mikil þörf er á slíkum búnaði í þessu stríðshrjáða landi. sveinng@frettabladid.is Friður er forsendan fyrir uppbyggingu Íraks Hálft annað ár er liðið síðan ráðist var á Írak og ógnarstjórn Saddams steypt af stóli. Engu að síður er enn róstusamt í landinu og talsvert vantar upp á að þjóðlíf komist í eðlilegt horf. LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM Írösk fjölskylda skoðar vöruúrvalið í Bagdad undir vökulu auga Ali Sistani erkiklerks sem á dögunum gaf út tilskipun þar sem hann hvatti landsmenn til að taka þátt í kosningunum í janúar. VÍGAMENN Á VEGUM ÚTI Íraskur lögreglumaður stendur yfir líki uppreisnar- manns sem lést í gær eftir að sprengja sprakk óvart í höndunum á honum, að sögn sjónarvotta. Fr ét ta bl að ið /A P 24 24-25 (360 gr) 10.12.2004 18:10 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.