Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 41
3LAUGARDAGUR 11. desember 2004
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
...Ei aki neinn
Jólin eru á næsta leiti. Jólainnkaup, jólahlaðborð, jólaglögg, jólaböll,
jólaboð ... jólaumferð. Desember getur reynt á taugarnar í umferð-
inni. Óvenjulega margir á ferli að sinna erindum fyrir jólin, hálka
suma daga, rigning aðra og hvergi laus bílastæði. Gott ef umferðar-
ljósin eru ekki líka rauð eilítið lengur í desember en aðra mánuði –
svona til hátíðabrigða.
En við megum ekki missa sjónir á jólaandanum þó að illa gangi að
komast leiðar sinnar. Til að byrja með skulum við vera meðvituð um
að umferðin er hæg í desember og ætla nægan tíma til að komast á
milli staða og drjúgan aukatíma til að finna stæði. Það er gott að setja
bensín á bílinn þegar við höfum smá afgangs tíma, svo að við þurfum
ekki að gera það í spreng síðar um daginn. Í bílnum ættum við líka að
hafa auka húfu og vettlinga, ef við þyrftum að leggja bílnum úr al-
faraleið og ganga. Gott teppi ætti að vera staðalbúnaður í bílum því
að maður veit aldrei hvenær eitthvað kemur upp á.
Það nýtist líka svo vel um hátíðirnar. Þó að spariföt séu sjaldnast
hlý spígsporum við í þeim um bæinn þveran og endilangan í slyddu og
roki. Þá getur verið gott að hafa teppi í bílnum til að hlýja sér.
Á leiðinni í jólahlaðborðið má taka með sér góð og hlý útiföt í bíln-
um – jafnvel gönguskó líka. Eftir borðhald og tilheyrandi má svo
koma við í bílnum, klæða sig upp og ganga áleiðis heim. Því hvað er
rómantískara og jólalegra en göngutúr síðla kvölds innan um jólaljós-
in og skreytingarnar? Hvort sem við göngum alla leið heim eða
treystum á leigubíl seinni hluta ferðarinnar ættum við að nýta þetta
tækifæri til að hægja á í jólaösinni og hressa okkur aðeins við. Og
mundu: Eftir einn... ■
Á hverju keyra stjörnurnar?
Sterk staða
krónunnar
Bílabúð Benna lækkar verðið.
Sterk staða krónunnar gefur nú tæki-
færi til lækkunar á verði bíla, ekki síst
þeirra amerísku. „Við höfum reyndar
verið að lækka verðið jafnt og þétt
vegna gengisþróunarinnar undanfarin
misseri,“ segir Benedikt Eyjólfsson.
„Porsche Cayenne Sport jeppi hefur til
dæmis lækkað úr 6.600.000 kr í
6.290.000 kr. sem er tæplega 6%
lækkun á nokkrum mánuðum. Breyt-
ing gengisins kemur fyrr fram í bílum
eins og Porsche sem eru sérpantaðir
og því ekki lagervara á gömlu gengi.
Eini ókosturinn er að kvótinn okkar er
að verða uppurinn og aðeins örfáir bíl-
ar til næstu mánuði,“ segir Benedikt.
Tom Cruise leikur ekki aðeins í
hasarmyndum heldur vill helst
að lífið sé hasarmynd og keyrir
um á Porsche 911 Turbo Coupe.
Jennifer Aniston er fínleg og flott
en lætur aldeilis vita af sér á
Mercedes-Benz G500 jeppanum
sínum.
Leonardo DiCaprio er hlédrægur
í sínum bílainnkaupum og velur
hinn umhverfisvæna Toyota Prius.
Justin Timberlake á nóg af
seðlum og sýnir það með því
að keyra um á Cadillac
Escalade pallbílnum.
Hugh Grant heldur greinilega að
hann sé James Bond og keyrir um
á Aston Martin V12 Vanquish.
Madonna sameinar fjölskyldulíf-
ið og þægindi og velur
Mercedes-Benz S600.
Síðast en ekki síst er það Liz
Hurley sem lifir hálfgerðu
kóngalífi og keyrir um á
Bentley Continental GT.
40-41 (02-03) Allt bílar ofl 10.12.2004 14:47 Page 3