Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 11. desember 2004 65
Jólaóratórían eftir Jóhann Sebast-
ian Bach er eitt stórbrotnasta tón-
verk sem samið hefur verið í til-
efni jólahátíðarinnar. Margir geta
hreinlega ekki hugsað sér undir-
búning jólanna án þess að hlýða á
þessa undurfögru tónsmíð.
Í dag og á morgun verður fyrri
hluti Jólaóratoríunnar fluttur
í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17 báða dagana,
en það er alþjóðleg barokksveit
frá Hollandi, The Hague Inter-
national Baroque Orchestra, sem
flytur verkið ásamt kammerkórn-
um Schola cantorum og fjórum
ungum íslenskum einsöngvurum
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
„Ég áttaði mig ekki á því, þeg-
ar ég var beðin að koma með
þessa hljómsveit hingað, að þetta
er í fyrsta skipti sem þetta verk
er flutt í þessum búningi hér á
landi,“ segir Guðrún Hrund
Harðardóttir, sem leikur á víólu í
alþjóðlegu barokksveitinni frá
Haag.
Hún er eini Íslendingurinn í
hljómsveitinni, sem notar ein-
göngu hljóðfæri frá barokktíman-
um, ýmist upprunaleg eða smíðuð
eftir gömlum forskriftum.
Erlendis er mjög algengt að
verk frá barokktímanum séu flutt
á upprunaleg hljóðfæri og söngur-
inn taki einnig mið af þeim
söngstíl sem tíðkaðist á þessum
tíma. Hér á landi færist slíkur
flutningur einnig í vöxt, en þetta
er í fyrsta sinn sem fólki gefst
kostur á að hlýða á hina þekktu
Jólaóratóríu eins og hún hljómaði
á dögum Bachs.
„Það verður blæbrigðamunur á
tónlistinni, áferðin er allt önnur.
Til dæmis eru notaðir girnis-
strengir á strengjahljóðfærin og
öðruvísi bogar. Það verður líka
annar hljómur í trompetum og
þverflauturnar eru úr tré. Ein-
hvern veginn verður meiri létt-
leiki yfir tónlistinni, hún verður
gegnsærri.“
Guðrún Hrund, sem er dóttir
Harðar Áskelssonar, organista í
Hallgrímskirkju og stjórnanda á
þessum tónleikum, stundar nám
við barokkdeild konunglega lista-
háskólans í Haag eins og aðrir
hljóðfæraleikarar í barokkhljóm-
sveitinni.
Einsöngvararnir fjórir, þau
Elfa Margrét Ingvadóttir sópran,
Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt,
Eyjólfur Eyjólfsson tenór og
Benedikt Ingólfsson bassi, hafa
öll sungið með Schola cantorum.
Jafnframt eru þau öll í fram-
varðasveit yngri kynslóðar ís-
lenskra söngvara. ■
Hljómurinn
verður tærari
Jólaóratóría Bachs verður flutt í barokkbúningi í Hallgríms-
kirkju í dag og á morgun. Alþjóðleg barokksveit kemur til
landsins til að taka þátt í flutningnum.
FRÁ ÆFINGU Í HALLGRÍMSKIRKJU Hörður Áskelsson stjórnar alþjóðlegri barokk-
hljómsveit sem flytur Jólaóratóríu Bachs í Hallgrímskirkju ásamt Schola cantorum og fjór-
um ungum einsöngvurum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
76-77 (64-65) menning 10.12.2004 19:44 Page 3