Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 68
56 11. desember 2004 LAUGARDAGUR MAGNÚS ÞÓR GUNNARS- SON. Magnús Þór hefur átt góðu gengi að fagna í bikar- keppni Evrópu í körfuknattleik og nýtti 51,9 % þriggja stiga skota sinna í riðlakeppni Evrópukeppninnar, 24 af 54 fóru rétta leið. Fréttablaðið/Páll. Úrslitin í bikarkeppni Evrópu hefjast í janúar og Keflvíkingar eru komnir þangað: Mæta svissneska liðinu Fribourg KÖRFUBOLTI Keflavík sótti portú- galska liðið Madeira heim í bikar- keppni Evrópu í körfuknattleik í fyrrakvöld. Leikurinn var jafn þangað til í lokaleikhlutanum þar sem Madeira sigldi fram úr og vann með tíu stigum, 92-82. Keflvíkingar réðu lítið við bak- verði heimamanna að þessu sinni. Mario-Gil Fernandes skoraði 24 stig, þar af 18 úr þriggja stiga skotum en maður vallarins var Bobby Joe Hatton sem skoraði 21 stig og gaf 13 stoðsendingar. Fögnuður Madeira var gríðar- legur í lokin enda tryggði liðið sér þriðja sætið í riðlinum og komst þar með áfram í keppninni. Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur Keflavíkurliðsins með 20 stig en Nick Bradford skoraði 19 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Keflvíkingar mæta svissneska liðinu Benetton Fribourg í 8 liða úrslitum en liðin leika tvo leiki og gilda samanlögð úrslit úr leikjun- um tveimur. Fyrri leikurinn fer fram 13. janúar í Sviss en seinni leikurinn 20. janúar í Keflavík. Standi liðin jöfn eftir tvo leiki verður gripið til oddaleiks og eru Keflvíkingar með heimaleikja- réttinn. Fribourg hefur staðið sig ágæt- lega í Evrópukeppninni en ekki í svissnesku deildinni. Liðið er í 9. sæti og er með 10 stig eftir 10 leiki. Nick Bradford, Magnús Þór Gunnarsson og Anthony Glover hafa farið fyrir sínum mönnum í bikarkeppninni til þessa og hafa þeir samanlagt skorað 62,4 stig, 21,4 fráköst og gefið 9 stoðsend- ingar fram til þessa. Gunnar Einarsson byrjaði vel í keppninni en hefur ekki gengið heill til skógar upp á síðkastið. Hann verður vonandi klár í slag- inn fyrir átökin í janúar þar sem Keflavík eygir góða von um að gera betur en í fyrra þegar liðið var slegið út af franska liðinu Dijon í fyrstu umferð úrslita- keppninnar. - SJ Með 13 stig á 35 sekúndum Tracy McGrady hjá Houston fór hamförum gegn San Antonio Spurs í NBA-deildinni í fyrrakvöld KÖRFUBOLTI Áhorfendum á leik Houston Rockets og San Antonio Spurs í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt þótti ekki mikið til McGradys koma þegar rúm mín- úta var til leiksloka. Þá höfðu gestirnir í Spurs 10 stiga forystu, 74–64, og lítið sem ekkert benti til að það myndi breytast fyrir leiks- lok. Hægt og rólega tóku áhorfend- ur að týnast út úr höllinni í þeirri trú að þetta væri búið spil. Þá tók Tracy McGrady, leikmaður Rockets, til sinna ráða og skoraði 13 stig á síðustu 35 sekúndum leiksins. Hann skoraði fjórar þriggja stiga körfur í röð og þar af var ein sem tryggði Rockets eins stigs forystu þegar 1,7 sek- úndur voru til leiksloka. „Ég vildi frekar taka þrist heldur en að jafna. Karfan var óvenju stór í kvöld,“ sagði McGrady. Áhlaup McGradys minnir um margt á gamla rispu frá Reggie Miller þegar hann skoraði átta stig á 8,9 sekúndum í sigurleik Indiana Pacers á New York Knicks, 107-105, í undanúrslitum Austurdeildarinnar 1995. „Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður og er frábær tilfinning,“ sagði McGrady. „Fyrir alla þá sem fóru snemma; þið misstuð af frábærum leik.“ Rockets hafði tapað sjö leikjum í röð gegn San Ant- onio Spurs og vann um leið þriðja leik sinn í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Jeff Van Gundy, þjálf- ari Rockets, var í skýjunum í leiks- lok. „Stundum þegar maður leggur hart að sér gerast kraftaverk,“ sagði Van Gundy. Tim Duncan sagði tapið hafa verið gríðarlega svekkjandi fyrir sína menn enda liðið með unninn leik í höndunum þegar ein mínúta var eftir. „Þeir spiluðu vel síðustu 50 sekúndurnar, s é r s t a k l e g a Tracy. Þeir fundu leið að körfunni og sárt tap er staðreynd,“ sagði Dunc- an sem var bestur í liði S p u r s , skoraði 26 stig og tók 18 fráköst. McGrady var besti maður vallar- ins með 33 stig, 8 fráköst og 5 stolna bolta. smari@frettabladid.is HEITUR Gerði sér lítið fyrir og skoraði 13 stig á rúmlega hálfri mínútu í leik Rockets gegn San Ant- onio Spurs í fyrrinótt. Evrópska mótaröðin í golfi í Suður-Afríku í gær: Birgir Leifur er úr leik GOLF Afríkuför Birgis Leifs Haf- þórssonar, kylfings úr GKG, hlaut snubbóttari endi en Birgir hafði vonast til en hann er úr leik eftir tvo hringi á Dunhill golfmótinu sem fram fer í Suður-Afríku. Birgir Leifur var einu höggi frá því að komast í gegnum niður- skurðinn en hann spilaði fyrstu tvo hringina á fimm höggum yfir pari og endaði í 80. sæti ásamt fleiri keppendum. Árangurinn er dapurlegur fyrir Birgi enda tímafrekt og dýrt að taka þátt í móti alla leið í Suður -Afríku en þetta mót var jafn- framt hið fyrsta sem hann tekur þátt í á evrópsku mótaröðinni sem hann vann sér inn takmarkaðan þátttökurétt á fyrr í haust. Það má gera að því skóna að hvor hringur fyrir sig hafi kostað nálægt 200 þúsund krónum séu út- gjöld Birgis Leifs tekin saman. NÁLÆGT EN ENGINN VINDILL Birgir Leifur var einu höggi frá því að komast gegnum niðurskurðinn á Dunhill mótinu sem fram fór í Afríku. 68-69 (56-57) sport 10.12.2004 19:39 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.