Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 4

Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 4
4 11. desember 2004 LAUGARDAGUR Hækkun gjalda í Mosfellsbæ gagnrýnd: Skuldir vaxa þrátt fyrir auknar tekjur SVEITARSTJÓRNARMÁL Framsóknar- menn í Mosfellsbæ gagnrýna að skuldir á hvern bæjarbúa verði komnar yfir 600 þúsund og að heild- arskuldir bæjarins verði um 4,3 milljarðar króna á næsta ári. Hækkun á gjaldskrám sem sam- þykktar hafi verið á miðvikudag komi harð- ast niður á barnafjö l - skyldum og þeim efna- minni. Hún sé langt um- fram al- m e n n a launaþróun. Þröstur Karlsson, oddviti framsóknarmanna, segir skuldir bæjarins hækka þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir um tæpra tólf prósenta tekjuaukningu á árinu. Stofnanir bæjarfélagsins séu svo sveltar af fjármunum að þær geti tæplega sinnt hlutverki sínu. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir í tilkynningu að gert sé ráð fyrir þriggja til fjögurra prósenta hækkun þjónustugjalda að jafn- aði. Það sé langt undir þeim hækk- unum sem verði á launum. Þjónustugjöld sem nefnd séu í töflu séu í takt við og ívið lægri en í nágrannasveitarfélögum. - gag MARKAÐSTORGIÐ EFTIR ÁRÁSINA Átta óbreyttir borgarar og einn hermaður létust. Um tíu manns særðust alvarlega. Sprengjuárás: Líkin lágu út um allt PAKISTAN, AFP Níu létu lífið og 21 særðist í sprengjuárás á fjöl- mennu markaðstorgi í pakist- önsku borginni Quetta. Árásinni var beint að herbíl sem átti leið um markaðinn en flestir þeirra sem létust voru óbreyttir borgar- ar, vegfarendur og sölumenn. „Enginn vissi hvað hafði gerst. Við héldum að þetta væri jarð- skjálfti,“ sagði ávaxtasalinn Ali Mohammad eftir árásina. „Það voru lík, sært fólk og blóð út um allt.“ Árásin var gerð skömmu fyrir hádegi á tíma þar sem markaður- inn er alla jafna troðfullur af fólki. ■ ORKUFYRIRTÆKI SAMEINAST Danska ríkisrekna olíu- og gas- fyrirtækið DONG sameinast Elsam, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur. Thor Pedersen, fjár- málaráðherra Danmerkur, til- kynnti um þetta eftir 21 klukkustundar langan samninga- fund. Samruninn er háður sam- þykki samkeppnisyfirvalda. ■ NORÐURLÖND Er nauðsynlegt að bæta sam- göngur til Vestmannaeyja? Spurning dagsins í dag: Á miltisbrandssýking eftir að koma upp víðar? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 43,01% 56,99% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun Flóttamannahjálp: Þurfa tugi milljarða GENF, AFP Flóttamannahjálp Samein- uðu þjóðanna þarf á andvirði um 70 milljarða króna að halda á næsta ári til að fjármagna starfsemi sína. Féð á að nota til að aðstoða sautján milljónir flóttamanna, hælisleit- enda og fólks sem snýr aftur til heimkynna sinna. Á síðasta ári aðstoðaði Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna nær 21 milljón manna. Flótta- mannahjálpin bað um andvirði 63 milljarða króna til rekstrarins í ár og hefur að mestu fengið það fé. ■ Kæra ekki ákveðin KENNARAVERKFALL Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort kæra eigi ríkisvaldið til Alþjóðavinnu- málastofnunar fyrir ákvæði sem hún setti gerðardómi við lagasetn- ingu á verkfall grunnskólakenn- ara. Ákvörðunina átti að taka á stjórnarfundi Kennarasambands Íslands í gær. Fundinum var frestað. ■ HERTAR REGLUR Spænsk stjórn- völd hafa ákveðið að herða reglur um meðferð sprengiefna og taka upp opinbert eftirlit með fyrir- tækjum sem nota sprengiefni. Ástæðan er að hryðjuverkamenn- irnir sem gerðu árásina í Madríd keyptu sprengiefni af starfs- mönnum námufyrirtækis. DÝR GÖNGUTÚR Breskur hermað- ur hefur verið sektaður fyrir að ganga um í búningi íslamsks hryðjuverkamanns, hlaðinn sprengiefnum. Maðurinn gekk drukkinn út af grímuballi á dög- unum og var fjölmennt lögreglu- lið kallað á vettvang. Árni Johnsen áritar og les úr bók sinni, Lífsins melódí, hjá bókaverslun Pennans Eymundssonar í Smáralind um helgina frá klukkan 14.00. Jafnframt býður Árni upp á friðarkerti úr stuðlabergi, geisladiskinn Stórhöfða- sveitina og tekur lagið fyrir gesti og gangandi. Árni fer á kostum ■ EVRÓPA HÆKKUN GJALDA Í MOSFELLSBÆ Á NÝJU ÁRI: Sorphirða 18% Bókasafnskírteini 20% Skólamáltíðir 4% Leiga á fél. húsnæði 14% Þjónusta við aldraða 4% Leikskólagjöld 4% ÞRÖSTUR KARLSSON Oddviti Framsóknarflokksins gagnrýnir hækkanir á gjöldum Mosfellsbæjar. RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Segir gjöld í Mosfellsbæ ekki hærri en í öðrum bæjarfélögum. Morgunblaðið í Hádegismóa Skrifstofur og ritstjórn Morgunblaðsins flytjast upp að Rauðavatni og verða við hlið nýrrar prentsmiðju blaðsins. Fasteignin við Kringluna var seld á 2,1 milljarð. Framkvæmdastjóri Árvakurs segir söluna treysta samkeppnisstöðu blaðsins. VIÐSKIPTI Morgunblaðið flytur úr Kringlunni og upp í Hádegismóa við Rauðavatn þar sem ný prent- smiðja blaðsins er. Árvakur, út- gáfufélag Morgunblaðsins, hefur selt fasteign sína við Kringluna fyrir 2,1 milljarð króna. Klasi hf., fasteignafélag í eigu Íslandsbanka, kaupir fasteignir Morgunblaðsins við Kringluna og í kaupsamningi kveður á um að Klasi byggi nýtt húsnæði undir skrifstofur og ritstjórn Morgun- blaðsins við hlið nýju prent- smiðjunnar. Morgunblaðið gerir langtímasamning um leigu hús- næðisins. Að sögn Hallgríms B. Geirsson- ar, framkvæmdastjóra Árvakurs, kom það framkvæmdastjórn fé- lagsins á óvart hve mikil verðmæti væru fólgin í húsakosti og lóð blaðsins. „Þetta var mjög ánægju- leg niðurstaða sem kom að því leyti til á óvart að við gerðum okkur ekki grein fyrir yfir hvaða verð- mætum við byggjum,“ segir hann. Hann segir að þegar Morgun- blaðsmenn hófu undirbúning á sölu gömlu prentsmiðjunnar, sem er í viðbyggingu við húsakynni ritstjórnarinnar, hafi komið í ljós að ýmsir hefðu áhuga á að kaupa hana en auk þess sýnt áhuga á skrifstofuhúsnæðinu í heild sinni og lóðinni. Hann segir aðstæður á fasteignamarkaði um þessar mundir vera Morgunblaðinu hag- stæðar og því hafi færi verið grip- ið til að flytja starfsemina. Hallgrímur segir sölu fasteign- arinnar styrkja stöðu Morgun- blaðsins í samkeppni og treysta rekstur blaðsins. Nýjar höfuðstöðvar Morgun- blaðsins verða ögn minni en húsið við Kringluna. Hallgrímur segir að margt hafi breyst á þeim ellefu árum sem liðin eru síðan Morgun- blaðshúsið við Kringluna var tekið í notkun. Gamla húsið var miðað við fleira starfsfólk en tækni og hagræðing hefur haft í för með sér að ekki hefur verið þörf á þeim fjölda sem áætlaður var. Hallgrímur segir að starfs- menn Morgunblaðsins hafi tekið tíðindum um ætlaðan flutning vel. Margir starfsmenn sakni þó þess að vera nálægt miðbænum þar sem Morgunblaðið hafði lengstum höfuðstöðvar. „Fólkið tekur þessu mjög vel en það er náttúrlega mik- ill lúxus að vera hér við hliðina á Kringlunni,“ segir Hallgrímur en bendir þó á að fyrirhugaðar höfuð- stöðvar séu í landfræðilegri miðju höfuðborgarsvæðisins. Fram- kvæmdir við nýtt skrifstofuhús- næði hefjast næsta vor og gert er ráð fyrir að allur rekstur Morgunblaðsins verði kominn í Hádegismóa fyrir páska árið 2006. thkjart@frettabladid.is MORGUNBLAÐSHÚSIÐ SELT Skrifstofur og ritstjórn Morgunblaðsins flytja úr Kringlunni í Hádegismóa þar sem ný prentsmiðja blaðsins er. Fasteignafélag í eigu Íslandsbanka keypti fasteignir Morgunblaðs- ins við Kringluna á 2,1 milljarð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M 04-05 10.12.2004 20:08 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.