Fréttablaðið - 11.12.2004, Qupperneq 8
Yfirvofandi heimsfaraldur af völd-
um nýs flensustofns sem haft gæti
óhemjuafleiðingar um heim allan
er eitt af meginatriðum í ræðu dr.
Lesters M. Crawford, setts for-
stjóra Bandarísku lyfjamálastofn-
unarinnar (FDA) á fundi fram-
kvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO) í
Reykjavík. Crawford sagði að búast
mætti við faraldri á borð við
Spænsku veikina árið 1918 sem
barst um heim allan og kostaði
milljónir manna lífið í Bandaríkjun-
um einum. „Núna eru hins vegar til
bóluefni, þannig að aðstæður eru
dálítið aðrar,“ sagði hann í spjalli
við blaðamann skömmu eftir kom-
una til landsins á fimmtudag.
Bólusetning aukin
Í Bandaríkjunum er verið að hug-
leiða hvort ekki megi safna miklu
magni bóluefna sem væri til reiðu
þegar fuglaflensan í Asíu gæti af
sér nýja og skaðlega flensufarsótt
sem ógnaði almennu heilsufari í
heiminum. „Það væri hægt að safna
upp bóluefni á nokkrum mánuðum,
kannski ári,“ sagði Crawford en
bætti við að vandinn fælist í því að
búa svo um hnútana að bóluefnin
kæmu í raun að einhverju gagni.
„Það er vandinn. Bóluefnin þurfa
uppáskrift FDA en matsferli stofn-
unarinnar er ekki hafið. Þar þurfa
að koma til rannsóknir og leyfis-
veiting í kjölfarið.“ Eins og staðan
er í dag viðurkenndi Crawford að
mjög alvarlegar aðstæður myndu
skapast ef fram kæmi nýr flensu-
stofn frá fuglaflensu á næstu vik-
um. „Það hafa ekki komið upp svip-
aðir stofnar og gerðist árið 1918, þó
svo að smærri stofnar sem ekki
náðu sér almennilega á strik hafi
birst. Næsti heimsfaraldur myndi
líklega bresta á af krafti í Hong
Kong eða á svipuðum slóðum og
myndi nær samstundis berast um
allan heim. „Það er samt erfitt að
spá fyrir um hvað myndi gerast því
nú stöndum við svo miklu framar í
læknavísindum og fjöldi lyfja er í
boði sem dregið gætu úr áhrifum
faraldursins. Ég held að þetta yrði
ekki jafnslæmt og 1918, en slæmt
engu að síður. Heilbrigðiskerfi
munu trúlega bugast undan álagi og
tæpast ráða við að útvega öllum
sjúkrarúm sem þurfa.“
Eins og er sér bara eitt fyrirtæki
um bóluefnisframleiðslu fyrir
Bandaríkin, en stefnt er að því að
tvö bætist við á næsta ári. Craw-
ford segir að til standi að auka bólu-
setningu til muna og að 100 milljón-
ir Bandaríkjamanna verði bólusett-
ar gegn flensu á hverju ári innan
skamms.
Milljarðar í matvælaöryggi
„Ég snerti einnig á öryggi matvæla
í ræðu minni hér,“ sagði Crawford
og bætti við að í Bandaríkjunum
snerist sú umræða að miklu leyti
um varnir gegn matvælahryðju-
verkum og hvernig verjast mætti
þeim. „Í Bandaríkjunum hafa nú
verið sett lög um lífefnahryðju-
verk, en þau snúast mestmegnis um
matvæli. Í lögunum eru fjórar meg-
ingreinar sem gera okkur kleift að
hafa eftirlit með matvælafram-
leiðslu, -innflutningi og -birgðum.
Þetta er mál sem ég ætla að hvetja
önnur lönd til að taka upp,“ sagði
hann og bætti við að lögin hefðu
líka gert aðra þætti matvælaeftir-
lits skilvirkari. „Í stað þess að sætta
okkur við stöku salmonellutilfelli
eru mál nú könnuð til fulls og graf-
ist fyrir um uppruna hlutanna.“
Dr. Crawford svarar þó af fullri
hreinskilni þegar hann er spurður
hver sé í raun hættan á því að
hryðjuverkamenn ráðist á matvæli,
þegar skilvirkari leiðir hljóti að
vera til að valda skaða. „Hættan er
mjög lítil, næstum engin, svona frá
tölfræðilegu sjónarhorni, þar sem
hvorki Bandaríkin né önnur lönd
hafa lent í slíkum árásum. En það
þýðir náttúrlega ekki að þetta geti
ekki gerst þótt vissulega sé hægt að
gera of mikið úr þessum hlutum.“
Crawford segir töluverða umræðu
hafa verið um þessi mál og almenn-
ingi umhugað um þau og fjárútlát
vegna þessa því hafa verið stórauk-
in í Bandaríkjunum. Hann upplýsti
að fyrir árásirnar á tvíburaturnana
11. september 2001 hefði Banda-
ríkjastjórn eytt um það bil 800
þúsund dölum í matvælavarnir,
rúmum 50 milljónum króna. „Núna
eyðum við um 150 milljón dölum á
ári í þessi mál,“ sagði hann, en það
eru tæpir 9,5 milljarðar króna.
Crawford játar því að um háar
upphæðir sé að ræða í samanburði
við litla hættu. „En það sama er
sagt um kúariðu, þar sem skepn-
urnar eiga tiltölulega auðvelt með
að smitast, en mjög litlar líkur eru á
að menn fái í sig riðuafbrigði. Ef al-
menningi er umhugað um einhver
mál eykst þrýstingur á þingið og
það bregst við með fjárveitingum í
málaflokka. Kúariða og lífefna-
hryðjuverk eru bæði hlutir sem al-
menningur hefur áhyggjur af.“
Aðgengi að lyfjamarkaði
Íslendingar hafa haslað sér völl á
sviði lyfjaframleiðslu og vitað er til
þess að fyrirtæki horfa til Banda-
ríkjamarkaðar með samheitalyf.
„Við höfum síðustu áratugi tekið
þann pól í hæðina að hvetja til notk-
unar samheitalyfja,“ sagði Craw-
ford. „Þegar einkaleyfi rennur út
fellur verð lyfsins, en það gerist
samt ekki nema fram komi fleiri en
eitt samheitalyf.“ Hann benti þó á
að lyf fengju ekki aðgang að mark-
aði nema að undangenginni ítar-
legri skoðun Bandarísku lyfjamála-
stofnunarinnar, en hún næði jafnt
til lyfsins sem verksmiðjunnar sem
það væri framleitt í. Þetta ferli seg-
ir hann taka að jafnaði um ár eftir
að sótt hafi verið um leyfi til inn-
flutnings. Öðru máli gegnir þó um
ný lyf. „Lyf sem sett eru í forgang
geta jafnvel fengið afgreiðslu á sex
mánuðum,“ sagði hann, en forgang
fá ekki önnur lyf en þau sem taka á
alvarlegum sjúkdómum, svo sem
krabbameini, rauðum úlfum, eyðni
og fleiri sjúkdómum. „En ferlið
tekur lengri tíma ef lyfjunum
fylgja miklar aukaverkanir, jafnvel
tvö til þrjú ár.“
Crawford segir hins vegar
einnig þörf á auknum sjúkdóma-
rannsóknum. „Það koma stöðugt
upp nýir sjúkdómar, sérstaklega
af völdum vírusa, í matvælum.
Áður fyrr var hættan mest á bakt-
eríusýkingum, en meirihluti sjúk-
dóma sem berast með mat núna er
vírussjúkdómar og lítið sem hönd
á festir um hvernig ná má stjórn
á þessari þróun,“ segir hann og
telur að þegar fram í sæki verði
um og yfir tveir þriðju hlutar mat-
vælasjúkdóma af völdum vírusa.
„Vírusarnir kalla á gjörólíka að-
ferðafræði.“ ■
8 11. desember 2004 LAUGARDAGUR
FRIÐARVERÐLAUN VEITT
Wangari Maathai tók á móti friðarverð-
launum Nóbels í Osló í gær. Maathai er
vistfræðingur frá Kenía og er fyrsta afríska
konan og fyrsti umhverfissinninn til að
hljóta verðlaunin.
Lyfjastofnun um yfirmannsdeiluna:
Á ekki að gæta réttinda fagfélaga
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun er
ekki aðili að máli því sem Lyfja-
fræðingafélag Íslands hefur rekið
gegn Landspítala - háskólasjúkra-
húsi vegna ráðningar yfirmanns
lyfjasviðs þar, segir Rannveig
Gunnarsdóttir forstjóri Lyfja-
stofnunar.
Lyfjafræðingafélagið sendi
Lyfjastofnun bréf fyrir skömmu,
þar sem mælst var til þess að
Lyfjastofnun brygðist við, sæi um
að lögum yrði framfylgt og krefð-
ist þess að ráðinn yrði lyfjafræð-
ingur í stöðu yfirmanns í stað við-
skiptafræðings sem gegnir henni
nú.
Rannveig sagði að það væri
ekki hlutverk Lyfjastofnunar að
gæta réttinda fagfélaga. Hins
vegar hefði stofnunin verið í sam-
skiptum við LSH vegna faglegrar
ábyrgðar í kjölfar ráðningarinnar.
Því máli væri ekki lokið.
„Lyfjastofnun er með mjög
skilgreint hlutverk samkvæmt
lögum,“ sagði hún. „Við erum með
eftirlitshlutverk. Það lýtur að ör-
yggi neytenda. Okkar aðkoma að
málum er því varðandi öryggis-
þáttinn, það er að skýra faglega
ábyrgð.“
- jss
MÓTMÆLA SKÓLAGJÖLDUM
Félag ungra framsóknarmanna í
Skagafirði mótmælir harðlega
hækkun innritunargjalda í ríkis-
reknum háskólum. Í ályktun
stjórnar félagsins segir að skóla-
gjöld séu ekki í samræmi við
stefnu Framsóknarflokksins.
HLYNNTIR SKÓLAGJÖLDUM
Frjálshyggjufélagið telur óeðli-
legt að neyða skattgreiðendur
til að borga fyrir menntun ann-
arra og því er félagið hlynnt
hækkun innritunargjalda í rík-
isreknum skólum. Í ályktun fé-
lagsins segir að fjármögnun
náms verði að öllu jöfnu ekki
erfiðari við upptöku skóla-
gjalda. Það eina sem breytist sé
að þeir bera kostnaðinn sem
valdi honum.
Jarrahúsgögnin frá Suður-Afríku eru safngripir. Borð í
öllum stærðum, stólar og margt fleira. Sérsmíði og pantanir.
Ný send
ing
kominn
Einstök húsgögn með
heillandi sögu.
Opið frá 12:00 - 18:00 virka daga og 12:00 - 16:00 laugardaga.
Úrval fallegrar og óvenjulegrar gjafavöru
■ SKÓLAMÁL
RANNVEIG GUNNARSDÓTTIR
Segir Lyfjastofnun ekki aðila að máli Lyfja-
fræðingafélagsins gegn LSH.
DR. LESTER M. CRAWFORD FORSTJÓRI FDA
Bandaríska lyfjamálastofnunin sér um leyfisveitingar og eftirlit bæði í lyfja- og matvælaeft-
irliti. Crawford upplýsti að á næstunni yrði gripið til aðgerða til að draga úr offitu Banda-
ríkjamanna. Hann segir 3 til 4 hundruð þúsund manns deyja úr offitusjúkdómum í
Bandaríkjunum einum á ári hverju, næstum jafn marga og deyja af völdum reykinga.
SKYNDIBITAR
Nýjar reglur FDA gera skyndibitastöðum
skylt að taka fram á umbúðum hversu
margar kaloríur séu í pakkningunni.
Hvetur þjóðir heims til
að auka matvælavarnir
Bandaríkjamenn eyða næstum tug milljarða á ári í að verja matvæli hryðjuverkaárásum. Hættan á
slíkum árásum er hins vegar nær engin. Forstjóri Bandarísku lyfjamálastofnunarinnar (FDA) segir
sömu rök gilda um viðbúnaðinn og um varnir gegn kúariðu.
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON,
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTAVIÐTAL
FORSTJÓRI BANDARÍSKU
LYFJAMÁLASTOFNUNAR-
INNAR TEKINN TALI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
08-09 10.12.2004 20:08 Page 2