Fréttablaðið - 11.12.2004, Síða 39

Fréttablaðið - 11.12.2004, Síða 39
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 6 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 209 stk. Keypt & selt 41 stk. Þjónusta 35 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 36 stk. Tómstundir & ferðir 8 stk. Húsnæði 37 stk. Atvinna 13 stk. Tilkynningar 4 stk. Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 11. des., 346. dagur ársins 2004. Reykjavík 11.10 13.21 15.32 Akureyri 11.23 13.06 14.48 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Kristina Anderson bakar alltaf lúsíu- brauð með börnunum á aðventunni. „Lúsíuhátíðin er afar falleg enda er lúsían tákn fyrir það góða í lífinu,“ segir hin sænska Kristina Anderson stoðtækja- smiður þegar hún er spurð um Lúsíumess- una sem er þann 13. desember. Hún kveðst árlega taka þátt í slíkri hátíð á veg- um sænska félagsins og slík hátíð verður í Seltjarnarneskirkju á mánudagskvöldið. Dagurinn heitir eftir heilagri Lúsíu sem uppi var á Sikiley um árið 300 og sá siður að halda hann hátíðlegan er inngró- inn í menningarlíf Svía. Þá klæðast börn hvítum kyrtlum og syngja Lúsíusöngva. Ein stúlkan er „Lúsía“ með ljósakórónu á höfði en hin eru með kerti í hendi og nefn- ast stúlkurnar tärnor en strákarnir stjärn- gossar. Kristina er frá Gotlandi og kom fyrst hingað til lands árið 1991 en settist að fyr- ir 10 árum. Hún heldur þeim sið að baka Lúsíubrauð á aðventunni með börnunum sínum, gjarnan fyrstu helgina í aðventu og segir það alltaf skapa vissa stemningu. „Ég geymi brauðið í frystinum og við gæðum okkur á því af og til, meðal annars um þrjúleytið á aðfangadag,“ segir hún og gefur okkur uppskriftina. ■ Lúsían táknar hið góða Citroën C5 fær hæstu ein- kunn stærri fjölskyldubíla í ör- yggisprófi NCAP, en hann hlaut fimm stjörnur eða hæstu einkunn í árekstraprófi. Á heimasíðu Euro NCAP segir að Citroën C5 hafi sýnt mikinn styrk í prófunum. Stöðugt öryggisbúr bílsins veiti öllum farþeg- um góða vörn. C5 hafi fengið nær fullt hús stiga í prófunum NCAP, hvort sem um var að ræða prófun á árekstri frá hlið, beint áfram eða árekstur á staur. Japönsku bílaframleiðend- urnir Nissan og Mitsubisi eru að hugleiða að sameina fyrirtækin í eitt. Fyrirtækið myndi leggja áher- slu á framleiðslu smábíla, en ef af verður gæti fyrirtækið orðið nýr risi á bílamarkaði. Bílasala í Vestur-Evrópu hef- ur verið aldrei verið meiri og nýtt met var slegið í nóvember þegar seldust 1,15 milljónir bíla, sem er 9% aukning frá því á sama tíma í fyrra. Tölvufyrirtækið JD Power- LMC birti þessar tölur og segir að lélegustu markaðirnir í augnablik- inu, sem eru Þýskaland og Frakk- land, hafi einnig aukið sölu í nóv- ember. Fyrirtækið er þó ekki bjartsýnt á bílaárið 2005, sem það segir að líti út fyrir að verða slæmt ár á bíla- markaði vegna samspils ótal nei- kvæðra þátta eins og til dæmis hækkunar olíu- verðs. Það sem af er árinu 2004 hefur bílasala í Vestur-Evrópu verið um það bil 13,6 milljónir bíla, 1,8% meiri en á sama tíma í fyrra. Bílasala á Íslandi í nóvember jókst um 31% frá árinu 2003 og seldust alls 905 fólksbílar í mán- uðinum og 147 sendibílar. Hekla var söluhæsta bílaumboðið í mánuðinum, bæði í fólksbíla- og í sendibílaflokki. Í fólksbílum var Hekla með 23,65% hlutdeild og var Skoda Octavia, sem Hekla sel- ur, söluhæsti bíllinn á Íslandi í nóvember. Þetta er í annað skipti á árinu 2004 sem Skoda Octavia er söluhæsti bíllinn á Íslandi en það gerðist einnig í júlí á þessu ári. Kristina og sonurinn Guðmundur Hjalmar Egilsson með brauðstaflann sem búið er að baka. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í bílum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA JÓLIN KOMA NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA TILBOÐ NEYTENDUR o.fl. KRÍLIN Ef við erum öll Guðs börn, er hann þá einstæður faðir? Viltu krumpur? Flottur súkkulaðibrúnn Shar-Pei hvolp- ur til sölu. Skráður í HRFÍ, tilb. til af- hendingar. Uppl. í s. 422 7557 & 891 8931, www.icepei.is. SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is Lúsíubrauð 50 g smjör 5 dl mjólk 50 g pressuger eða 5 tsk. þurrger 1 tsk. salt 2 tsk. sykur um 1,7 l hveiti 1-2 pokar (1/2 g pk) saffran sykurmoli og brennivínstár 125 g smjör 1 1/2 dl sykur 1 egg Skraut 1 egg, rúsínur og perlusykur Bræðið smjörið (50 g) og hellið mjólkinni í. Velgið það upp í 37 gráður. Leysið upp gerið í mjólkinni og setjið síðan salt, 2 tsk. sykur og meirihluta hveit- isins saman við og hnoðið vel. Látið það síðan lyfta sér þar til það hefur stækkað um helming (um klukkutíma). Á meðan steytið þið saffranið í mortéli með sykurmola og blandið með örlitlu áfengi. Hrærið smjörið og sykurinn létt og blandið egginu og saffraninu við. Þegar deigið hefur lyft sér er saffranhrærunni blandað saman við það og hluta hveitisins sem eftir var en þó er lítið eitt skilið eftir til að bera undir deigið áður en það er rúllað út. Síðan eru gerðar litlar rúllur sem mótaðar eru á ýmsan hátt. Brauðinu er raðað á plötu með bökun- arpappír og látið lyfta sér. Penslað með eggi og skreytt með rúsínum og jafnvel perlusykri. Bakað í miðjum ofni í 8-10 mínútur. bilar@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N 39 (01) Allt forsíða 10.12.2004 15:01 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.