Fréttablaðið - 11.12.2004, Síða 40

Fréttablaðið - 11.12.2004, Síða 40
Rúðuþurrkur Nú rignir mikið og gott að hafa góðar rúðuþurrkur. Ef þær þurrka ekki sem skyldi er reynandi að strjúka yfir þær með klút og athuga hvort þær lagast ekki. Ef ekki er um að gera að kaupa nýjar þurrkur.[ ] ALLT Á EINUM STAÐ • HEILSÁRSDEKK • OLÍS SMURSTÖÐ • BÓN OG ÞVOTTUR • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • NAGLADEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • BREMSUKLOSSAR • PÚSTÞJÓNUSTA SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 PURGA-T 2x6lit.ai 12/10/04 11:38:10 AM Öryggis- hurðir B Í L S K Ú R S OG IÐNAÐAR H U RÐ I R Smíðað eftir máli Hurðir til á lager Eldvarnar- hurðir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 B O S S A V E R M I R Er kalt í bílnum? Sætisáklæði í bílinn með hita Aðeins 4.900 kr Klettháls 9 • s: 587 5547 • www.ag-car.is/motorsport Fæst einnig hjá Bónstöðinni, Njarðarnesi 1, Akureyri Alveg geðveikur Rúnar Gíslason kokkur lætur sig dreyma um að eignast glænýjan Porsche sportbíl. „Draumabíllinn minn er Porsche 911,“ svarar Rúnar Gíslason á augabragði aðspurður um drauma- bílinn. „Reyndar hef ég alltaf verið hrifinn af jeppum en mig langar bara í einn léttan og lipran núna,“ segir Rúnar, sem viðurkennir þó ekki að hann sé mikill bíladellukarl en mikið sé um þá í ættinni hans. „Já, jepparnir voru málið hérna áður fyrr, þá lét ég mig dreyma um Patrol á risadekkjum og allan pakkann, en tímarnir breytast,“ segir Rúnar og hlær. Að vissu leyti sér hann Porsche-sportbílinn fyrir sér sem stöðutákn en hann telur að það sé nú ekki það sem heillar hann við bílinn. „Ég vann hjá manni fyrir mörgum árum sem átti einn svona Porsche og mér fannst hann bara geðveikur og hef- ur alltaf langað í einn síðan. Þetta er náttúrlega ekkert venjulegur bíll,“ segir Rúnar og bætir við: „Hann er bara allt öðruvísi en allir aðrir sportbílar, það er bara eitt- hvað við hann.“ ■ Rúnar Gíslason kokkur telur Porsche 911 eiga engan sinn líka. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Mengun er vandamál sem eykst bara ef ekki er tekið á því af ein- hverju viti og virðast bílaframleiðendur vera að vakna til vitundar með því að framleiða umhverfisvænni bíla sem menga minna. Hér eru tíndir til nokkrir þeirra sem finnast í Evrópu og hafa einhverjir þeirra skilað sér á Íslandsstrendur og líklegt er að fleiri eigi eftir að koma hingað til lands. Grænir og vænir bílar Toyota Prius Toyota á Íslandi hefur kynnt þennan bíl hérlendis en hann hlaut verðlaun sem besti bíllinn í Evrópu árið 2004. Hann er sérstaklega sparneytinn og sleppir eng- inn bíll jafnlitlu magni af koltvísýringi út í andrúmsloftið og Priusinn. Hann er svokallaður blendingsbíll sem er bæði drifinn af bensíni og rafmagni. Rafmagns- mótorinn hrekkur í gang þegar bíllinn þarf aukakraft, svo ekki þurfi að kýla bensínið í botn, og hleður sig á orkunni þegar bílnum er ekið. Enginn bíll meng- ar eins lítið og Toyota Prius. Honda Civic 1.3 Ima Executive Yfirburða umhverfisvænn bíll með blendingsvél sem sameinar bensínvél og raf- magnsmótor. Hann hentar sérstaklega vel til innanbæjaraksturs og þegar hann er stöðvaður alveg, eins og til dæmis á rauðu ljósi, drepur hann á sér en ræsir sig sjálfur um leið og stigið er á kúplinguna og hann settur í fyrsta gír og tak- markar þannig mengun frá bílnum. Bensínvél drífur bílinn en rafmagnsmótorinn tekur við þegar gefið er í eða þegar farið er upp brekkur þannig að bíllinn fær aukinn kraft án þess að þurfa að pumpa bensínið. Rafhlaðan í rafmagnsmótorn- um notar orkuna sem myndast þegar bílinn bremsar til að endurhlaða sig. Peugeot 407 Sportbíll sem getur státað af lítilli koltvísýringsmengun auk þess sem hann er til- tölulega sparneytinn. Hann hentar vel þeim sem eru að leita sér að kraftmiklum og rúmgóðum bíl en er á sama tíma umhugað um umhverfið. Bíllinn hlaut sér- staka umhverfisviðurkenningu fyrr á þessu ári. Ford Focus C-Max C-Max er hugsaður sem fjölskyldubíll sem rúmar 7 manns og heilmikið af far- angri og státar af 11 geymslurýmum. Innrétting og áklæði í bílnum er allt unnið úr efni með minnstu áhættu á ofnæmi og bíllinn síar út frjókorn svo þau berist ekki inn í bílinn, en bresku ofnæmissamtökin hafa veitt bílnum viðurkenningu. Form bílsins tryggir sem minnsta eldsneytisnotkun og er þetta því bíll fyrir þá sem vilja hugsa um umhverfið en vilja hafa mikið pláss. Smart Pure Fortwoo Coupe Pínulítill og hrikalega sparneytinn með koltvísýringsútblástur í lágmarki. Smart- bíllinn er óneitanlega smart og þægilegur fyrir einstaklinga sem lifa og hrærast í borginni en hafa enga þörf fyrir utanbæjarakstur enda bíllinn hannaður fyrir slíka einstaklinga. Bíllinn er mjög einfaldur og ekki er mikið lagt upp úr lúxus, sem skilar sér í lágu verði. Framleiðsla eykst á umhverfisvænni bílum með auknum kröfum markaðarins. 40-41 (02-03) Allt bílar ofl 10.12.2004 14:45 Page 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.