Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 42

Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 42
Jólastund Þegar þú ert búin(n) að finna jólatré og jólaskraut, bjóddu þá endilega vinum þínum heim til að skreyta það. Skemmtileg jólastund í góðra vina hópi.[ Hittast nú alklæddir Maturinn sem borinn er á borð kemur úr hinum ýmsu landshlutum og tengist uppruna Pottverja að nokkru leyti. Pottverjar í Kópavogslaug gera sér glaðan dag á aðventunni, snæða saman og hlýða á jólasögu. Pottverjar í Kópavogslaug héldu sinn árlega að- ventufagnað á dögunum í húsakynnum laugarinnar með sameiginlegu hlaðborði og jólasögu. Þeir hafa hist í heita pottinum í yfir 20 ár en aðventustundin er sú tíunda í röðinni. „Við vorum orðnir svolítið þreytt- ir á því að horfa alltaf hver á annan hálfberan þannig að við ákváðum að hittast alklæddir og fannst al- skemmtilegast að gera það með þessum hætti,“ seg- ir Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri sem er einn Pottverja. Hann segir harðasta kjarnann í hópn- um vera svona 12- 15 manns en alltaf sé einhver hreyfing, nokkrir séu látnir sem byrjuðu en aðrir hafi komið inn. Á fyrsta aðventufagnaðinn hafi mætt 15 en nú hafi þeir verið rúmlega 40 og þar séu mak- arnir með. Ásgeir segir góðmetið sem lagt sé á borð tengjast uppruna ýmissa Pottverja. „Ég er til dæmis með laufabrauð frá Húsavík. Einn leggur til hangi- kjöt af sauðum sínum í Króksfjarðarnesi. Við höfum fengið fugl norðan úr Málmey og harðfisk líka norð- an úr landi en hákarlinn frá Vopnafirði. Þannig verð- ur úr afar þjóðleg veisla. Auk þess er einn félaganna blómaskreytir og hann prýðir jafnan borðið með jólaskreytingum.“ Pottverjar setja sannarlega svip á starfsemi Kópavogslaugarinnar árið um kring og á aðventunni blanda þeir saman mat, menningu og líkamsrækt. gun@frettabladid.is Dömu og herrasloppar. Náttfatnaður, innigallar GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217 Ármúla 36 • 108 Reykjavík s. 588 1560 • www.joiutherji.is Knattspyrnuverslun Við eigum mikið úrval af töskum, bakpokum, fótboltum og o.fl. fyrir knattpyrnumanninn. TUSKU offwhite (Kringlan + Akureyri) ljósblár st. 36-41 Kr. 1.990NEMO (aðeins í Kringlunni) st. 32-39 kr. 1.990 ...og fleiri skemmtilegar tegundir Sími 587 3400 burek@burek.is www.burek.is HEILDSÖLUDREIFING: Ljósakross Það er ódýrara að kaupa ljósakross en að leigja hann Fást um land allt! Hvítu plastkrossarnir frá Búrek henta þeim sem vilja annast lýsinguna fremur en að leigja sér kross. Þeir eru með innbyggðu ljósi og tengjast rafmagnsleiðslu í görðunum eða rafhlöðu sem endist í allt að 20 daga. Dalbrekku 16 • 585 0000 • www.aukaraf.is Talstöðvar og GPS ] FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA 42-43 (04-05) Allt jólin koma 10.12.2004 15:57 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.