Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 57
Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur
alla tíð verið andsnúinn kvótakerfinu
og fært rök fyrir skoðunum sínum.
„Megingalli kerfisins er að sótt er í
verðmætasta fiskinn til að hámarka
tekjur af kvótanum,“ segir hann.
„Rétt nýting dýrastofna er að nýta
allar stærðir og alla aldursflokka
jafnt. Það þarf að rýmka um og
auka fæðuframboð fyrir þann fisk
sem eftir lifir.“ Jón segir manninn
einu dýrategundina á jörðinni sem
velur að fella stærstu einstaklingana
úr hjörðinni, önnur rándýr velja
veiku og litlu dýrin. „Þetta leiðir til
skakkrar nýtingar og minni uppskeru
en ella fengist,“ segir hann.
Jón er ekki í vafa um að kvótakerfið
hafi gert lífríkinu mikið ógagn og
blæs á neyðaróp fiskifræðinga frá
því fyrir rúmum tuttugu árum. „Það
var allt í lagi að veiða allan þann
þorsk sem veiddur var í kringum
1980. Stofninn stóð alveg undir nýt-
ingunni og meint ofveiði var heima-
tilbúin af fiskifræðingum.“
Jón Kristjánsson hefur lengi stigið
ölduna í umræðum um kvótakerfið
og skoðanir hans hafa ekki aflað
honum vinsælda. „Það hefur oft ver-
ið erfitt að gagnrýna kerfið og mér
hefur verið gert erfitt fyrir á öllum
sviðum. Hafrannsóknastofnunin hef-
ur til dæmis rægt mig í útlöndum.“
Hann segist aðspurður hafa siglt á
óánægjufleyinu en leggur áherslu á
að hann hafi aldrei stigið fæti um
borð í öfundarfleyið sem einnig hef-
ur dólað um höfin.
En Jón er ekki einasta þeirrar skoð-
unar að kvótakerfið hafi skaðað líf-
ríki hafsins, hann vill einnig meina
að óbein áhrif þess hafi verið skað-
leg. „Áhrif þessa endalausa ofveiði-
tals hafa verið vatn á myllu samtaka
sem vilja hreinlega stöðva fiskveið-
ar.“ Hans trú er sumsé að menn hafi
kallað gagnrýni á þorskveiðar í Ís-
landshöfum yfir sig með alls óþörf-
um yfirlýsingum.
Jón er sannfærður um að kvótakerf-
ið verði lagt af en veit ekki hvenær
það verður. „Þetta endar með skelf-
ingu og það verður skipt um kerfi.
Heimurinn þarf að fá fisk til að
borða.“
LAUGARDAGUR 11. desember 2004 45
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I
STUND MILLI STRÍÐA Í REYKJAVÍKURHÖFN
Hið umdeilda frjálsa framsal kvótans var lítið sem ekkert rætt þegar það var leitt í lög.
Akureyri Strandgata 3, sími 464-4450 • Keflavík Hafnargata 25, sími 421-3322
Reykjavík Faxafen 12, sími 533-1550
OPIÐ
lau. 11. des. 10 -18
sun. 12. des. 13 -18
Virka daga 10 -18
HELSTU ÁGREININGSEFNI
• Frjálst framsal kvóta
• Brottkast
• Byggðakvóti
• Veiðar smábáta
• Verndun stofnanna
• Áhrifin á byggðirnar
• Löndun fram hjá vigt
• Auðlindagjaldið
• Veðsetning kvóta
• Þátttaka sjómanna í kvótakaupum
• Rétturinn til að sækja sjóinn
Jón Kristjánsson:
Meint ofveiði heimatilbúin
Leiguframsal kvóta er, og hefur alltaf
verið, eitur í beinum sjómannafor-
ystunnar. „Við höfum alltaf lagst
gegn framsali kvóta enda er það
ólíðandi,“ segir Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands Ís-
lands, og rifjar upp þegar hann var í
forsvari fyrir sjómannafélagið í
Grindavík. „Þá þurfti samþykki okkar
til að mega flytja kvóta á milli ver-
stöðva en við gerðum í því að skrifa
ekki upp á. Menn fundu þá smugu í
kerfinu og léku þann leik að flytja
skip til Grindavíkur og fengu kvóta
færðan á þau og fluttu þau svo aftur
í burtu. Það voru alltaf og verða
alltaf til leiðir í þessu kerfi.“
Mörgum sjómönnum svíður kvóta-
brask en með því er þeim gert að
taka þátt í leigu á kvóta. Jafnvel sett-
ur stóllinn fyrir dyrnar. „Þetta hefur
verið aðal ágreiningsefnið og verður
áfram,“ segir Sævar. „Í stjórnarsátt-
málanum er kveðið á um að það
eigi að taka á leiguframsalinu en
ekkert hefur enn verið gert í því.“
Hann rifjar upp að í samningagerð
1992 hafi sjómenn boðið upp á að
festa leiguframsalið eða kvótabrask-
ið í sessi. „Við buðum upp á að sjó-
menn sætu beggja vegna borðsins,
þeir tækju sumsé þátt í leigunni en
fengju einnig skipti úr því sem leigt
væri frá. Auðvitað vissum við að við
myndum aldrei fá hljómgrunn en
opnuðum samt á þetta. Þetta var
vissulega illframkvæmanlegt en við
lögðum þetta fram til að sýna fram
á hvað við ættum við.“
Sævar viðurkennir að kvótabraskið
hafi minnkað og rekur það til þess
að dregið hafi úr leigu á kvóta.
Menn reyni frekar að kaupa til sín
varanlegar heimildir.
Sævar Gunnarsson:
Kvótabraskið ólíðandi með öllu
56-57 (44-45) Kvótinn 10.12.2004 15:05 Page 3