Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 62
50 11. desember 2004 LAUGARDAGUR
Barnaplötur á borð við Eniga
Meniga, vísnaplötuna Einu sinni
var og Karíus og Baktus nutu mik-
illar hylli hér á árum áður og lifa
vafalítið í minningum marga full-
orðinna Íslendinga í dag.
Fleiri plötur má nefna: Í sjö-
unda himni með Glámi og Skrámi,
Algjör Sveppur með Gísla Rúnari
Jónssyni, Ómar Ragnarsson syng-
ur fyrir börnin, Hrekkjusvínin og
Dýrin í Hálsaskógi. Allt saman
vinsælar barnaplötur sem eru
fyrir löngu orðnar sígildar. Á
meðal nýlegri barnaplatna eru
Hallilúja eftir Harald Frey Gísla-
son úr Botnleðju og barnaplata
Dr. Gunna þar sem Prumpulagið
naut mikilla vinsælda.
Perlur, Stóra Stundin okkar og
Besta barnaplata í heimi?
Enn eru barnaplötur að koma út,
sem betur fer, og fyrir þessi jól
eru þrjár áberandi í jólaplötuflóð-
inu. Fyrst ber að nefna plötu
Birgittu Haukdal, Perlur, sem hún
vann með fagmönnum á borð við
Þorvald Bjarna Þorvaldsson, Frið-
rik Sturluson og Guðmund Péturs-
son. Þar syngur hún vinsæl barna-
lög á borð við Línu langsokk, Söng
súkkulaðiprinsessunnar, Komdu
niður og Ryksugan á fullu. Þessi
fjögur lög er einnig að finna á
plötunum Stóra Stundin okkar og
Bestu barnalög í heimi?, bæði í
flutningi Birgittu og annarra
söngvara.
Á Stóru Stundinni okkar syngja
margir af þekktustu söngvurum
þjóðarinnar af yngri kynslóðinni
kunn barnalög en á Bestu barna-
plötu í heimi? er aftur á móti að
finna 50 af vinsælustu barnalög-
um síðustu ára, sungnum af upp-
haflegum flytjendum. Tvær síð-
astnefndu plöturnar eru tvöfaldar
en á Stóru Stundinni okkar fylgir
með DVD-diskur með myndbönd-
um við lögin.
Hressleikinn í fyrirrúmi
Stóra Stundin okkar er ágæt
barnaplata þar sem hressleikinn
er í fyrirrúmi. Bestu lögin eru
Komdu niður í flutningi Selmu,
Lagið um það sem er bannað með
Jónsa í Svörtum fötum, Fiskurinn
hennar Stínu með Felix Bergs-
syni, Guttavísur með Önnu
Katrínu og Frost er úti fuglinn
minn í flutningi Heru. Síst er aft-
ur á móti Söngur dýranna í Týrol í
flutningi Sveppa, sem virðist ekki
alveg ráða við lagið. Auk þess
virðist Krummi svaf í klettagjá
einhvern veginn ekki passa í
þennan hóp. Of drungalegt fyrir
barnaplötu. Önnur lög eru alveg
ágæt þó svo að engin glæsitilþrif
séu þar sýnd.
Stór kostur við plötuna er sá að
hægt er að hlusta á öll lögin án
söngs. Þannig geta börnin fengið
að spreyta sig með undirspili í
bakgrunni. DVD-diskurinn er
einnig kærkomin viðbót.
Laddi og Ómar
Á Bestu barnaplötu í heimi? er að
finna fjöldann allan af sígildum
barnalögum, sem allir fullorðnir
ættu að kannast við. Laddi á mörg
lög á plötunni, m.a. sem Eiríkur
Fjalar og Skrámur. Einnig er
Ómar Ragnarsson áberandi enda
hefur hann gefið út mörg
skemmtileg barnalög. Þar má
nefna Lok, lok og læs, Ligga,
ligga, lá og Hí á þig.
Annars er erfitt að draga
ákveðin lög út því flest standast
þau hæstu kröfur. Þó er rétt að
nefna bráðskemmtileg lög á borð
við Einhljóðsfærissinfóníuhljóm-
sveitina með Vilhjálmi Vilhjálms-
syni, Hlustið góðu vinir í flutningi
Diddúar og Ég er vinur þinn með
Bergsveini Árelíussyni og Hreimi
Erni Heimissyni. Inn á milli eru
þó lög sem ekki passa, eins og
Gamla myllan og Hárfinnur
hárfagri. Einnig hefði verið gam-
an að geta lesið textana með lög-
unum.
Þess má geta að fjögur lög á
þessari plötu er líka að finna á
Stóru Stundinni okkar, að vísu í
öðruvísi útgáfum. Þau eru: Lagið
um það sem er bannað, Súrmjólk
í hádeginu, Furðuverk og Gutta-
vísur.
Þó svo að þessar tvær plötur,
ásamt Perlunni hennar Birgittu,
hafi allar að geyma gömul barna-
lög ættu engin börn að vera svik-
in af þeim. Lögin eru flest orðin
sígild og eiga börnin, og ef til vill
foreldrar þeirra, vafalítið eftir að
dilla sér rækilega yfir þeim um
jólin.
freyr@frettabladid.is
Barnastjarnan fyrrverandi Hanna Valdís Guðmundsdóttir átti
fjölmargar metsöluplötur hér á árum áður og er einna þekktust
fyrir lagið um Línu langsokk. Hún flytur einnig lagið Þrír kettling-
ar á Bestu barnaplötu í heimi?
Hún segir að barnaplötur þurfi að vera vandaðar og einlægar til
að þær nái vinsældum. „Mér finnst reyndar þreytandi þegar full-
orðinstextar eru notaðir í barnalögum. Þá syngja flytjendurnir
texta sem fullorðið fólk lætur sér í munn,“ segir Hanna Valdís,
sem starfar sem píanókennari í dag. „Það er líka voða mikið um að
gefið sé út sama efni, eins og á safndiskum. Það vantar meira
frumsamið efni eins og Magnús Þór var að gera, sem samdi lög á
borð við Pósturinn Páll. Það eru alltaf nýir og nýir að flytja sama
efnið,“ segir hún.
Sjálf á Hanna Valdís tvær dætur, 16
og 20 ára, en er löngu hætt að syngja
fyrir þær. „Það er frekar að þær syngi
fyrir mig,“ segir hún og hlær. „Ég man
að þær hlustuðu á sínum tíma á Þrjú á
palli, sem voru með vinsæl lög á heimil-
inu þá. Annars hef ég ekki tekið ástfóstri
við neina sérstaka barnaplötu. Ég heyri
bara ýmis lög útundan mér hjá litlum
frænkum. Það er mikið um þýtt efni eða
bara sungið á ensku.“
Barnaplötur halda áfram að koma út enda markaðurinn ávallt fyrir hendi.
Nokkrar barnaplötur koma út fyrir þessi jól og verður hér fjallað um þrjár
þeirra.
Sungið fyrir börnin PERLURBirgitta Haukdal sendi nýverið frá sér sína fyrstu barnaplötu sem kallast
Perlur.
HALLI OG LADDI
Halli og Laddi sungu inn á plötuna
Í sjöunda himni sem Glámur og
Skrámur. Laddi hefur sungið
fjölmörg barnalög í gegnum tíðina
sem eru fyrir löngu orðin sígild.
ÓMAR RAGNARSSON
Ómar Ragnarsson söng vinsæl lög
á borð við Lok, lok og læs og Ligga,
ligga lá.
M
YN
D
/S
IG
U
R
Ð
U
R
J
Ö
K
U
LL
M
YN
D
/H
A
R
I
Hanna Valdís Guðmundsdóttir:
Vantar meira
frumsamið efni
HANNA VALDÍS
GUÐMUNDSDÓTTIR
Er miðjunni, ásamt
systrum sínum fyrir
mörgum árum. Á
meðal vinsælustu
laga Hönnu Valdísar
var lagið um Línu
langsokk.
62-63 (50-51) Helgarefni 10.12.2004 14:30 Page 2