Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 64
BÓKASKÁPURINN
52 11. desember 2004 LAUGARDAGUR
Öðruvísi fjölskylda, barna-bók Guðrúnar Helgadótt-ur, var tilnefnd til Íslensku
barnabókaverðlaunanna á dögun-
um. „Vissulega er það ekki oft að
bækur fyrir börn séu tilnefndar.
Það var mikið gleðiefni þegar
Andri Snær Magnason var til-
nefndur fyrir nokkrum árum, og
hann hlaut reyndar verðlaunin.
Auðvitað gladdi tilnefningin mig,
það væri bara hroki að viður-
kenna það ekki,“ segir Guðrún.
„Nýja bókin mín hafði reyndar
þegar fengið afar góðar umsagn-
ir, en tilnefningin minnir kannski
enn frekar á hana og aðrar góðar
bækur fyrir börnin.“
Ertu sátt við hina hefðbundnu
flokkun bókmenntaverka í barna-
og fullorðinsbækur?
„Ég held að það verði að vera
ljóst að bók sé sérstaklega ætluð
börnum. Ég hef stundum sagt að
ég skrifi bækur sem börn geta
líka lesið. En ég hef aldrei litið á
mig sem annars konar rithöfund
en aðra höfunda, því að ekki er
síður vandasamt að skrifa fyrir
börn en fullorðna. Bækur um
börn og reynsluheim þeirra verða
að vera þannig fram settar, að
þær fangi áhuga barnanna. Ef
það gerist ekki missa þær marks
og verða ekki til þess að auðga
málþroska og víðsýni þeirra sem
hlýtur að vera tilgangurinn.
Börnin eru harðari ganrýnendur
en hinir fullorðnu, þau kvelja sig
ekki til að brjótast í gegnum bæk-
ur sem þau hafa enga ánægju af.
Það gerum við hin fullorðnu
stundum.“
Bók um áhrif stríðs
Er erfiðara að skrifa fyrir full-
orðna en fyrir börn?
„Það er miklu erfiðara að skrifa
bók fyrir börn en fullorðna. Hins
vegar tel ég afar miklvægt að
fullorðnir geti líka haft ánægju af
bókum fyrir börn. Börn vita fátt
betra en að njóta sameiginlegrar
ánægju með hinum fullorðnu.
Fátt er börnum betra en glaðir
foreldrar og aðrir aðstandendur.
Ljúfustu umsagnir um bækurnar
mínar hafa komið frá fjölskyld-
um sem minnast upplestra í
hreinu rúmi pabba og mömmu á
jóladagsmorgni þar sem allir
skemmtu sér saman. Það hefur
velgt mér fyrir hjartanu.“
Eftir lesturinn finnst manni að
skilaboðin í þessari bók séu þau
að fjölskyldur eigi að standa
saman.
„Þessi nýja bók sem er framhald
af bókinni Öðruvísi dagar fjallar í
raun um áhrif heimsstyrjaldar-
innar sem lauk fyrir nær sextíu
árum á tvær fjölskyldur hér uppi
á Íslandi. Og er auðvitað ætlað að
sýna hversu skelfilegar styrjald-
ir eru og láta engan ósnortinn,
ekki heldur börnin, sem verða að
horfa á ofbeldi og hryðjuverk í
fjölmiðlum á degi hverjum. En
bækurnar fjalla líka um vilja
mannanna til að lifa af og finna
sér samastað í tilverunni þó að
allt hafi verið frá þeim tekið. Og
það er ekki vandalaust að skrifa
um svo alvarleg mál á þann veg
að bókin sé jafnframt skemmti-
leg aflestrar, sem ég vona að hún
sé. Mig langaði að skrifa um
þetta. Erum við ekki öll mann-
anna börn ein fjölskylda þegar
öllu er á botninn hvolft? Af
hverju fremjum við þá öll þessi
níðingsverk á systrum okkar og
bræðrum? Hver hefur rétt fyrir
sér? spyr Karen Karlotta og er að
undra þótt barnið spyrji.“
Kúnstin að kunna að hætta
Kemur framhald af þessari bók?
„Ég held á þessu stigi málsins að
ég sé búin að loka þessari sögu. En
ekki skal ég fullyrða að mér detti
ekki eitthvað í hug sem breytir
því. En eins og þú veist er kúnstin
að kunna að hætta mikilvæg.“
Þú skrifar mjög áreynslulausan
stíl, kemur hann auðveldlega til
þín?
„Það er mikil áreynsla að skrifa
áreynslulausan stíl! Og þegar
börnum er ætlað að lesa bók þýð-
ir ekkert að vera með einhverja
tilgerð. Þau hafa engan áhuga á
mínu eigin andlega hugsanarugli.
Hreinn og tær texti er miklu
betri leið að þeirra hjörtum. En
það þýðir ekki að nauðsynlegt sé
að tala við þau á barnamáli, það
eykur þeim ekki orðaforða sem
góð barnabók á að gera. Í stuttu
máli megum við aldrei svíkja
börnin.“
Um hvað verður næsta bók?
„Næsta bók? Veit það ekki ennþá.
En ýmislegt er að flökta um í koll-
inum á mér. Við sjáum til.“
kolla@frettabladid.is
Dan Brown einokar breskan metsölulista
Dan Brown á sannarlega sterka innkomu á metsölulista Sunday Times þessa viku en allar fjór-
ar bækur hans raða sér í efstu sæti skáldsagna kiljulistans. Da Vinci lykillinn er í fyrsta sæti,
Deception Point í öðru sæti, Englar og djöflar í því þriðja og Digital Fortress er í fjórða sæti list-
ans. Nýrrar bókar Dan Brown er beðið með mikilli óþreyju en hún gengur undir nafninu The
Salomons Key og kemur væntanlega út á næsta ári, síðsumars ef áætlanir standast.
Á þessum degi árið 1918 fæddist Alexander Solsénitsín og byrjaði að skrifa strax á barnsaldri.
Árið 1945 var hann handtekinn fyrir að skrifa bréf þar sem hann gagnrýndi Stalín, og dæmdur
í átta ára þrælkunarvinnu og sendur í útlegð til Kazakhstan í þrjú ár. Eftir það kenndi hann og
skrifaði í frístundum, sannfærður um að verk hans yrðu aldrei gefin út. Árið 1961 kom út Dag-
ur í lífi Ivan Denisovitsj sem vakti mikla athygli. Rússnesk stjórnvöld beittu hann ritskoðun og
hann gaf verk sín út erlendis. Solsénitsín hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1970.
Ný bók frá McEwan
Ian McEwan er örugglega í hópi bestu núlifandi skáldsagnahöfunda. Ný skáldsaga
hans er væntanleg á markað í febrúar. Hún nefnist Saturday. Höfundur hefur lítið vilj-
að segja um söguþráðinn en þó það að bókin gerist á einum degi í febrúarmánuði árið
2003 þegar fjölmennustu mótmælaaðgerðir í sögu Lundúnaborgar fóru fram. Rúmlega
ein milljón manna mótmælti Íraksstríðinu. Í bókinni fer taugaskurðlæknirinn Henry
Perowne frá heimili sínu... Og meira fáum við ekki að vita fyrr en í febrúar.
Banki er staður þar sem menn lána
þér regnhlíf þegar veðrið er gott og
heimta hana aftur þegar fer að rigna.
Robert Frost
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
ARABÍUKONUR
Jóhanna Kristjónsdóttir
HALLDÓR LAXNESS - ÆVISAGA
Halldór Guðmundsson
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
ÚTKALL - TÝR ER AÐ SÖKKVA
Óttar Sveinsson
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
ÍSLENSKUR STJÖRNUATLAS
Snævarr Guðmundsson
BARN AÐ EILÍFU
Sigmundur Ernir Rúnarsson
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
BELLADONNA SKJALIÐ
Ian Caldwell
SAMKVÆMISLEIKIR
Bragi Ólafsson
BÍTLAÁVARPIÐ
Einar Már Guðmundsson
FÓLKIÐ Í KJALLARANUM
Auður Jónsdóttir
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU
DAGANA 01.12. - 07. 12. 2004
Í BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSON OG PENNANUM
Megum aldrei svíkja börnin
BÓK GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR: TILNEFND TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA
GUÐRÚN HELGADÓTTIR „Mig
langaði að skrifa um þetta. Erum við
ekki öll mannanna börn ein fjölskylda
þegar öllu er á botninn hvolft?“
Happadrætti Bókatíðinda 2004
Árlegt happadrætti Bókatíðinda er í fullum gangi en eitt númer verður dregið út daglega fram að jólum. Happadrættis-
númerið er að finn innan á kápubaki Bókatíðinda. Vinninga er hægt að vitja í næstu bókabúð gegn framvísun númers-
ins. Hver vinningshafi fær bækur að eigin vali að upphæð 10.000 kr.
Vinninga ber að vitja fyrir 1. júlí 2005.
Eftirtalin númer hafa þegar verið dregin út:
1. des:
8240.
2. des:
58964.
3. des:
35261.
4. des:
92627.
5. des:
77612.
6. des:
37268.
7. des:
27378.
8. des:
31104.
9. des:
33790.
10. des:
5300.
11. des:
66311.
64-65 (52-53) bækur 10.12.2004 14:39 Page 2